Vikan - 30.01.1964, Page 20
Upppuni og ævi
John Fitzgepald Kennedy
/
1. HLUTI
ÁSMUNDUR
EINARSSON BLAÐAM.
TÖK SAMAN
Yið Barrow-fljót á Suður-ír-
landi stendur lítið markaðs-
þorp, sem ber nafnið New
Ross. Meðal íbúanna eru
nokkrar sálir af Kennedy-
ætttinni, búsettar í kofum
með stráþökum, hvítþvegnum veggj-
um og moldargólfi. Þetta fólk veit
fátt um þá ríku og frægu ættingja
sína í hinni stóru Ameríku. Þegar
John Fitzgerald Kennedy, sem síð-
ar átti eftir að verða 35. forseti
Bandaríkjanna, kom í stutta heim-
sókn á fornar ættarslóðir, lagði
hann leið sína til kofans, sem nú
hafði fengið þakjárn í stað stráþekj-
unnar. Hann sat dágóða stund með
fólkinu og rabbaði við það. Jú, það
minntist þess, að Patrick nokkur
Kennedy, sem reyndar var afi gests-
ins, hafði litið inn, einum 35 árum
áður. Það var allt og sumt, sem
fólkið hafði af hinum amerísku
Kennedyum haft að segja. Og það
leit ekki á sig lengur sem ætt, held-
ur nokkra fátæklinga með þessu
nafni, sem voru þarna til þess eins
að strita fram í andlátið.
í augum bandarískrar frúar, sem
var í för með hinum unga stjórn-
málamanni voru New Ross og
Kennedy-kofinn einskonar Tobacco
Roud þeirra írlendinga, fátækt,
saur, siðleysi og fáfræði, en í huga
John Fitzgerald Kennedy var New
Ross og allt, sem þorpinu fylgdi,
heilagt og ljómandi. Þarna stóðu
rætur hinnar miklu og voldugu
Kennedy^ættar í Boston, Massac-
husetts í Bandaríkjum Norður
Ameríku. Þær teygðu sig yfir haf-
ið, sugu næringu úr tveimur álf-
um, tvennskonar jarðvegi, súrum og
2Q — VIKAN 5. tbl.