Vikan - 18.06.1964, Blaðsíða 43
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
Pantið
tímanlega
Volkswagen er ætið ungur
„BREYTINGAR" til þess eins „AÐ BREYTA TIL" hefir aldrei verið stefna VOLKSWAGEN
og þess vegna getur Volkswagen elzt að órum en þó haldist í háu endursölu-
verði. — Engu að síður er Volkswagen í fremstu röð tæknilega, því síðan
1948 hafa ekki færri en 900 gagnlegar endurbætur farið fram
á honum og nú síðast nýtt hitunarkerfi • Gjörið svo vel
að líta inn og okkur er ánægja að sýna yður
Volkswagen og afgreiða hann í sumar.
Ferðist I Volkswagen
Varahlutaþjónuata Volkswagen er þegar landskunn
HEILDVERZLUHIII
HEKLA hf
S'imi
21240
Laugavegi
170-172
Sumarið
er komið
í, en síðan eggjunum, einu í
senn. Sett á smurða plötu sem
litlar bollur, en það verður að
vera nóg rúm á milli þeirra. Bak-
að við ca. 200 gráðu hita í 18—
20 mín., en fyrstu mínúturnar
má ekki opna ofnhurðina, því að
þá geta kökurnar fallið. Fylltar
með rjóma og smurðar með glas-
súr eða flórsykri stráð á þær.
Líka má fylla þær með vanilluís
og bera með volga súkkulaði-
sósu, en þá eru þær notaðar sem
ábætisréttur.
NOKKIJR ORÐ UM NOTKUN
OLIU í MATARGERÐ.
Sé olía notuð til að steikja
úr, má maturinn ekki fljóta í
olíunni, heldur á olían aðeins að
vera á botni pönnunnar. Þegar
grillsteikt er, á að smyrja mat-
inn með olíunni, áður en byrjað
er að steikja. Sé steikt í málm-
pappír, þarf mjög litla olíu, en
pappírinn er þá smurður með
henni í byrjun. Hafi eitthvað
verið djúpsteikt í olíu, má nota
hana aftur, ef hún er síuð og ef
hún hefur ekki hitnað of mikið.
Gott er að setja ¥j dl. af olíu
í pönnudeigið, þá þarf ekki að
bera á pönnuna, og laukur verð-
ur stökkur og fallega brúnn sé
hann djúpsteiktur í olíu og það
má steikja mikið af honum í einu
og geyma svo til seinni tíma í
krukku með þéttu loki. ★
LÆKNIRINN VAR
DÆMDUR FYRIR
MORÐ ...
Framhald af bls. 15.
skurðaðgerðir, ekki aðeins á
föngum heldur einnig á fanga-
vörðum. Það kom t.d. fyrir alveg
nýlega, að fangavörður veiktist
hastarlega í fangelsinu af hjarta-
krampa. Dr. Sheppard lét strax
flytja fárveikan manninn á
skurðarborðið, þar sem hann kom
hjarta hans af stað á nýjan leik
með hjartanuddi eftir fimm mín-
útna hlé á slögum þess.
Fyrir fjórum eða fimm árum
hvatti ameríska krabbameins-
rannsóknrafélagið fanga í ríkis-
fangelsinu í Ohio til að gefa sig
fram til tilrauna. Dr. Sheppard
var sá fyrsti, sem lét sprauta
krabbameinsfrumum inn í hand-
legg sinn, þar sem þær voru látn-
ar þroskast í tilraunaskyni.
Fyrir nokkrum árum reyndi
stofnun, sem kallar sig „Síðasta
úrræðið“, að taka mál dr. Shepp-
ards upp aftur. Stofnuninni veit-
ir forstöðu hinn frægi leynilög-
reglusagnahöfundur Erle Stan-
ley Gardner — höfundur sagn-
anna um Perry Mason. Þessi úr-
slitadómstóll tekur að sér að
rannsaka mál, þar sem ætla
mætti að sakborningur hafi ver-
ið dæmdur saklaus, og í mörg-
um málum hefur hann náð mikl-
um árangri.
Á tíu árum hefur þessi stofn-
un sannað sakleysi þrjátíu
manna, sem dæmdir höfðu ver-
ið fyrir morð, og hefur henni
tekizt að fá þá lausa úr fangels-
unum.
En í Sheppard-málinu báru
rannsóknir hennar engan árang-
ur. Sönnunargögnin voru svo trú-
leg, að ekki var hægt að ætla
annað en að dómurinn væri rétt-
mætur. Þó hafði stofnunin málið
til meðferðar í heilt ár.
Á þessu ári er búizt við að dr.
Sheppard verði látinn laus.
Bræðrum hans hefur verið gefið
í skyn, að verði framferði hans
með jafnmiklum ágætum og ver-
ið hefur öll þessi ár í fangelsinu,
megi gera ráð fyrir því að hann
verði frjáls maður í júlímánuði.
Ameríska læknasambandið hef-
ur strikað nafn dr. Sheppards af
læknaskrá sinni, svo að hann
getur ekki starfað sjálfstætt, þeg-
ar hann kemur úr fangelsinu. En
bræður hans í Bay Village bíða
eftir honum með sjúkrahúsið
þerira í fullum gangi, og líklega
verður hann ráðinn að nafninu
til sem hjúkrunarmaður. Þeir
eru báðir, eins og allir íbúar Bay
Village, enn sannfærðir um að
Samuel Sheppard hafi ekki myrt
konuna sína. Þeir bíða þess enn
að það hafist upp á rétta morð-
ingjanum. Þá hvílir ekki lengur
neinn skuggi á nafni dr. Samuels
Sheppards. -A;
VIKAN 25. tM. —