Vikan - 18.06.1964, Blaðsíða 8
NÝTT GRILON MERINO GARN ER
KOMIÐ Á MARKAÐINN. ÞAÐ
HLEYPUR EKKI, ER MÖLVARIÐ
OG HVER HESPA ER NÚMERUÐ
SEM GEFUR LITARÖRYGGI.
GAMLA GÓÐA SLITÞOLIÐ.GEFJ UN
Kökur og smáréttir
EPLASALAl.
3 epli, 100 gr. hvítkál, 50 gr. rúsínur, 1 dós smurostur, V2
dl. rjómi, saft úr appelsínu.
Eplin eru rifin á grófu járni og hvítkálið sneitt mjög smátt,
blandað saman og rúsínum bætt í. Osturinn hrærður út með
rjómanum og appelsínusafanum hellt í eftir smekk og sós-
unni hellt yfir eplablönduna og látið samlagast. Bætiefnaríkt
og bragðgott.
NORSKAR VÖFFLUR.
250 gr. hveiti, 4 dl. mjólk, Vz tsk. kardimommur, 3 egg,
3 matsk. matarolía, 2 tsk. sykur, rifinn sítrónubörkur.
Öllu hrært saman, en eggjahvíturnar þeyttar vel og blandað
í síðast. Vöfflujárnið penslað með olíu og staflið ekki vöffl-
unum saman meðan þær eru heitar, því að þá verða þær ekki
stökkar. Bornar fram með rjóma og sultu, eða með sírópi.
EPLA- O G SÚRMJÓLKURÁBÆTIR.
3 epli, Vi 1. súrmjólk, 2 matsk. kókósmjöl, rifið rúgbrauð,
2 matsk. púðursykur, V2 tsk. mulið engifer.
Eplin rifin á rifjárni og blandað í súrmjólkina með kókós-
mjölinu, en betra er að þeyta súrmjólkina áður. Rifnu rúg-
brauði, púðursykri og engifer blandað vel saman og stráð
út í skálina.
KARTÖFLUKÖKUR.
Jafnmikið, t.d. 100 gr. af hverju, af soðnum kartöflum,
hveiti og smjörlíki er hnoðað saman, en kartöflurnar rifnar
áður á járni. Flatt út og skorið út með glasi. Á hverja köku
er sett tsk. af eplastöppu eða sultu og kakan brotin sam-
an um það og þrýst á með gaífli. Penslað með eggi og gróf-
um sykri stráð á, og síðan bakaðar í vel heitum ofni í 10—12
mínútur. Borðaðar volgar.
FYLLTIR TÓMATAR.
4 tómatar, 3 egg, 2 matsk. rifinn ostur, % tsk. basilikum.
Skorið ofan af tómötunum og innihaldið skafið út með
teskeið. Eggin þeytt saman og rifna ostinum og maukinu
innan úr tómötunum blandað í og kryddað með basilikum.
Steikt á pönnu eins og hrærð egg, þ.e.a.s. hrært hægt í eggja-
blöndunni, meðan hún stífnar. Tómatarnir fylltir með blönd-
unni og ristað brauð borið með.
HEITUR HRÍ SGRJÓN ABÚÐINGUR.
175 gr. hrísgrjón, 6 dl. mjólk, 2 egg, 2 matsk. sykur, 2 matsk.
rúsínur, 2 matsk. hakkaður pomeransbörkur.
Hrísgrj ónin soðin í mjólkinni á sama hátt og hrísgrjóna-
Framhald á bls. 41.
8
VIKAN 25. tbl.