Vikan - 18.06.1964, Blaðsíða 34
Jafnan fyrirliggjandi úrval
yirUfU&tuUr*
myndavéla fyrir hina vandlátu
VITORET
CLR
BESSAMATIC
Fljót og góð
afgreiffsla.
Voigtlander
er með
innbyggðum
Ijósmæli og
fjarlægðarmæli -
bara miða og
þrýsta á hnappinn
- og þér fáið
skínandi Ijós-
myndir í hvaða
veðri sem er.
Vér önnumst líka
framköllun,
koperingu og
stækkun á
myndum yðar.
Gleymið ekki
GEVAERT filmum
í sumarleyfið
EINKAUMOÐ FYRIR VOIGTLANDER A/G.
H.F. SVEINN BJÖRNSSON & CO.
GarSastræti 35, sími 24204
SÖLUUMBOÐ:
GEVAFÓTO
Lækjartorgi, sími 24209.
Og ég held að síðustu daga sé
ég farin að sjá við þér. Mig grun-
ar að innst inni sértu svolítið
hræddur við okkur.
— Hvers vegna, sagði Mr.
Pimm, hvers vegna, hvernig dett-
ur þér það í hug?
— Ég held að þú sért feim-
inn. Að undir niðri sé feiminn og
óframfærinn Mr. Pimm. Viður-
kenndu það.
— Kæra Miss Matilda, guð
blessi þig, almáttugur minn, sagði
Mr. Pimm, — nei, sko, sérðu litla
fuglinn þama við gluggann,
hann er að koma í heimsókn til
okkar.
Skiptum okkur ekki af fuglun-
um, Mr. Pimm, viðurkenndu það.
Ég held, að jafnvel þótt þú vild-
ir biðja einhvern að kvænast þér,
þá hefðirðu aldrei hugrekki til
þess. Er það ekki satt?
— Nú, kæra Miss Matilda, ég
hefi aldrei hugsað út í það.
— Jæja þá, það er bezt að ég
gefi þér hollráð. Þegar að því
kemur, þá verðurðu að sýna hug-
rekki. Þú verður að grípa gæs-
ina meðan hún gefst. Það er mjög
óskynsamlegt af þér að umgang-
ast bara unga menn og láta þig
dreyma um alls kyns þorpara-
brögð. Ég held að þú sért hálf-
gerður flautaþyrill. Áður en var-
ir verðurðu sennilega kominn til
Parísar, og byrjaður á öllu á
ný. Og þá verður þér sennilega
alveg sama hvað um mig verður.
— Kæra Miss Matilda, hvert
sem ég fer, þá get ég aldrei
gleymt þér.
— Ég vildi að ég gæti trúað
þér.
— En ég segi það satt, það er
heilagur sannleikur. Þetta fór
allt vel hjá Annabelle. Og ef það
væri hægt á nokkurn hátt að
koma því við, þá gæti ég ekki
hugsað mér neitt betra en að
verða hér eftir og gæta hags-
muna þinna, kæra Miss Matilda.
— Hvers vegna gerirðu það þá
ekki?
— Hvernig get ég það? Nú
veiztu, hvað ég er viðsjárverður.
— Þú ættir að minnast þess, að
ég hefi fundið ýmislegt gott í
fari þínu líka.
— En Miss Matilda, sagði Mr.
Pimm, — þér getur ekki verið
alvara, eftir allt sem fyrir hef-
ur' komið, þú gætir ekki sætt
þig við að ég yrði hér áfram.
— Það væri mér ekkert þæg-
ara.
Mr. Pimm sagði vantrúaður:
— En hvernig dettur þér í hug
að segja þetta eftir að þú veizt
hvernig ég gifti Miriam Harrison
og Dulcie Waters. Getur það ver-
ið, að þú viljir, að ég verði hér
áfram í Cannes og sjái til þess
að þú fáir eiginmann?
— Þú verður að reyna að bug-
ast á feimni þinni, Mr. Pimm.
— Heyri ég rétt? Og þú sem
veizt hvernig ég gifti Margaret
del Campo, Mary-Jo Mander-
ville, Pricilla Whipple, áttu við,
að þú sættir þig við mig þrátt
fyrir allt?
— Já, Pimm. Já.
— Og þú sem veizt, að ég er
bannsettur þorpari?
— Já. Já.
Mr. Pimm vissi ekki hvaðan á
sig stóð veðrið: — En Miss Mat-
ilda, hvernig gæti ég stofnað til
hjónabands? Hvernig gæti ég
það, eftir að þú veizt allt af létta?
-— Kæri Mr. Pimm, sagði Miss
Matilda rjóð í vöngum, — þú
gætir kvnæzt mér einfaldlega
með því að biðja mín eins og
ég bað þín. Og ég svara játandi
af öllu hjarta.
— Þú, þú svarar játandi, Miss
Matilda?
— Já.
— En ekki, nei, nei, ekki gift-
ast mér!
-— Gat þér nokkurn tíma dott-
ið í hug, að ég mundi neita?
Mr. Pimm opnaði munninn til
þess að segja eitthvað, en hann
kom ekki upp einu einasta orði.
Hann var skelfingin uppmáluð.
Hann var svo skjálfhentur, að
tebollinn dansaði á undirskálinni.
— Eeeeen, sagði hann, — kkkæra
Miss Mmmm . . .
Bollinn tókst á loft og brotn-
aði við fætur hans. — Miss Mat-
ilda tókst honum að stynja upp,
— þú verður að fyrirgefa mér,
ég verð að hl-hlaupa. Stra-strax.
— Auðvitað, Timothy, sagði
hún, ég skil. En hringdu í mig
um leið og þú kemur heim.
Mr. Pimm forðaði sér út úr
húsinu.
Þegar Annabelle kom heim
sagði hún: — Matilda frænka!
Þegar Peggy kom heim, sagði
hún: — Það er enginn öruggur
fyrir þeim; þetta er hræðilegt.
Þegar Augustus Green kom
— VIKAN 25. tbl.