Vikan


Vikan - 18.06.1964, Blaðsíða 24

Vikan - 18.06.1964, Blaðsíða 24
Maðurinn á myndinni heitir Czeslav Bojarski og hefur helzt unnið það sér til frægðar, að vera óánægður með peningaprentun franska ríkisbankans. Honum fannst hann geta gert miklu betur á sígarettupappír, með sæmilegum tækjum. Peningaseðlarnir hans eru svo vel gerðir, að bankarnir sáu ekkert athugavert við þá, og eru þó margir hverjir vel. á verði gegn fölsurum. Það komst ekki upp um hann, fyrr en hann hafði falsað sem nemur um 6 milljónum íslenzkra króna, og þá vegna þess, að það þótti grunsam- legt, hve hann og ættingjar hans keyptu mikið af frönskum ríkisskuldabréfum. Hann bíður nú dóms, sem er talinn verða minnst 30 ára fangelsi. Myndirnar úr prentverkinu voru teknar með sjálfvirkri myndavél til þess að sanna athæfi Czeslav, áður en hann vissi að grunur hafði fallið á hann. Gömul kona, milljónamær- ingur, að nafni Philoméne de Gras, fædd Verbecke, sveif nýlega inn í eilífðina frá heimili sínu í Amsterdam. Einkaerfingi hennar var mað- ur að nafni Charles Verbecke, einn af slæpingjum Parísar, þeim sem sofa undir brúnum og eyða ævinni í það að snapa daglega saman nóga fjármuni til þess að geta keypt sér rauðvín og svo sem einn metra af brauði. Charles Verbecke hafði fyr- ir löngu gleymt Philoménu frænku sinni, en hún ekki honum. Lögreglan fann Char- les eftir langa leit, þar sem hann svaf í kirkjugarði í Mouscron, lítilli borg á landa- mærum Frakklands og Þýzkalands, þar sem hann var að „skemmta sér“. Og í kirkjugarðinum var honum tjáð, að hann væri nú um það bil sjö milljónum ríkari. í fyrsta sinn árum saman var Charles settur í bað og klæddur upp, yzt sem innst. En hann veigraði sér við að sofa í rúminu í hótelherberginu sínu. Það var allt of fínt og mjúkt. Þess í stað lagðist hann til svefns á gólfmottuna. Næsta dag fór hann í kirkju og keypti þrjú kerti handa dýrlingnum, en síðan fékk hann sér aftur nokkur glös í góðum félags- skap. Því næst var komið mál til að uppfylla gamlan draum. Hann hafði alltaf dreymt um að fara á Lido de Paris og sjá „The Blue Bell Girls“. Nú gerði hann alvöru úr þessu og sem nýbakaður milljóneri fékk hann kræsilegar móttökur hjá fegurðardís- unum. Svo horfði hann á sýningu hjá þeim og skolaði henni niður með kampavíni af beztu tegund. Svo sneri hann baki við hóglífi. Hann sneri sér að því að koma sér upp hænsnabúi, og tók til sín dóttur sína Marie-Sylvie —• dóttur síðari konu hans. En ástæðan fyrir vesaldómi hans á tímabili var sú, að hann hafði staðið í tveimur misheppnuðum hjóna- böndum, og var auk þess síþyrstur. 24 VIKAN 25. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.