Vikan - 10.06.1965, Page 47
Það er hægt að
geyma kökurnar
fullbakaðar f frysti
Þannig er búið um skreytta tertu, áð-
ur en hún er fryst:
1. Klæðið hæfilega stóran pappa-
kassa með málmpappír.
2. Látið tertuna fyrst án umbúða í
frystinn, svo að hún harðni dálítið,
en setjið hana svo í kassann. Setjið
málmpappír yfir kökuna og lokið
kassanum vel með glæru límbandi.
Setjið síðan plastpoka utan um kass-
ann og lokið honum vel.
í matarþættinum aftar í blaðinu
verða gefnar nokkrar uppskriftir að
brauði og kökum, sem heppilegt er
að frysta.
Mjúkar kökur er ágætt að frysta fullbakaðar, og tertur er hægt að
frysta skreyttar, t.d. með smjörkremi eða möndlumassa, en eigi að vera
rjómaskreyting á þeim, er betra að setja hana á, eftir að kökumar hafa
þiðnað. Smákökur má geyma í frysti hvort sem er fullbakaðar eða, sér-
staklega ef þær eru hnoðaðar, óbakaðar í rúllum, sem svo er skorið af,
þegar á að baka þær. Wienarbrauð má geyma bökuð eða óbökuð, sömu-
leiðis smjördeig.
Brauð, mjúkar kökur og Wienarbrauð má geyma í plastpokum, smá-
kökurnar í plastdósum, svo að þær molni ekki, en tertur þurfa að vera
í pappakössum, sem þaktir eru að innan með málmpappír.
Bezt er að þíða brauð við herbergishita 1 þeim umbúðum, sem það var
fryst í, þannig verður það mýkst. Bollur og Wienarbrauð má snöggþíða
inn í ofni, en betra er að þekja það með málmpappír fyrst. Óbakað
smákökudeig er hægt að skera frosið og baka strax. Bakaðar smákökur
eru þíddar í herbergishita í 1 — 2 klukkutíma eða í 10 mín, 1 heitum
ofni.
Venjulega er óhætt að geyma þetta í 1 — 6 mánuði og jafnvel lengur.
Buxur-
treyja og
koddaver
SnlOfn eru á bl. 45
Búið til sniðin eftir skýr-
ingarmyndinni með því að
strika ferninga á pappír,
2X2 sm. hvern. Teiknið
stðan útlínur sniðanna og
klippið út.
Sniðin eru saumfarslaus,
leggið því til saumför um
leið og sniðið er.
Efni: Blá- og ihvítköflótt
og einlitt hvítt poplinefni.
Buxur: XJm 75x50 sm.
af blá- og hvítköflóttu efni.
Leggið sniðin á tvöfalt
efnið og ath, að örvarmerki
liggi þráðrétt. Hafið 1 sm.
í saumfar í skrefi, að aftan
og framan, en 3 sm. saum-
far að ofan og á skálmun-
um.
Saumið fyrst saman skref-
saumana með skyrtusaumi,
þá í einu lagi fram- og
aftursaum með tvöföldum
saumi, og ath., að skref-
saumarnir mœtist og ójöfn-
ur verði ekki að ofan. Brjót-
ið þá falda inn á röngu að
ofan og á skálmar. Brjótið
fyrst % sm., síðan 2% sm.,
þrœðið og saumiö tæpt í
brún. Saumið aftur rúml. 1
sm. frá fyrvi stungu fyrir
teygju.
Festið i litlar tölur inn
á framstykkið, sem smekkn-
um er síðan fest við.
Laus smekkur og axlábönd.
Smekkurinn mœlir um 15
X15 sm. og axlaböndin um
36x3 sm. og bœði saumast
tvöföld. Litla kanínumunstr-
ið er saumað með víxlsaumi
(zig-zag) við efra borð
smekksins og tvö lmappagöt
í gegn um hann tvöfaldan.
Saumið 4 litlar hneppslur
eða hnappagöt neðst á
smekkinn, gagnstætt tölun-
um á buxunum. Axlaböndin
eru saumuð tvöföld, látin
enda með odda að framan
og tveimur tölum. Þeim er
fest á sama hátt og smekk-
urinn er festur við buxurnar.
Framhald á næstu síðu.
VXKAN 23. tbl.