Vikan


Vikan - 13.01.1966, Page 14

Vikan - 13.01.1966, Page 14
 -r!j : [.•. ::: ..•••' t. .V > <■ -r að var klukkan 11.15 að morgni, 4. júní 1965 að Chevroletbíll kom til Big Springs, Nebraska, og staðnæmdist fyrir fram- an Búnaðarbankann þar. Lögregluforinginn Harry Shaw ók þar framhjá og sá ökumann- inn. Þetta var vel klæddur og laglegur maður og lögreglufor- ingjanum datt í hug að þettaværi einn af umsjónarmönnum bank- ans. Ókunni maðurinn gekk að skrifborði bankastjórans, Andre- as Kjeldgaards, sem var 77 ára gamall milljónari. Hann bað um lán til búgarðs föður síns. Þegar honum var sagt að bankinn lán- aði ekki fé til búskapar, tók hann, ósköp rólegur, byssu upp úr tösku sinni og miðaði á banka- stjórann. Þarna í herberginu voru þrír aðrir starfsmenn, sem sátu í búr- um sínum: Frank Kjeldgaard, frændi bankastjórans, 25 ára gamall; frú Louis Ann Hothan, 35 ára gömul ekkja, sem átti tvo syni; og Glenn Hendrickson, 59 ára gamall, sem var gjaldkeri. Þau tæmdu skúffur sínar og settu þá peninga sem í þeim voru, 1.598 dollara í tösku byssumanns- ins. Frú Hothan sagðist ekki geta opnað öryggisgeymslu bankans, þar sem iæsingin var tímastillt. Þessi ungi glæpamaður var mjög mjúkmáll og bað fólkið vin- samlega um að leggjast á mag- ann á gólfið. Frank Kjeldgaard sá að byssan, sem hann beindi að þeim var með hljóðdeyfi. Glæpamaðurinn sagði ekki orð, en hleypti af skoti í háls banka- stjórans og öðru í bak hans. Síð- ara skotið hitti hjartað. Svo fann Frank Kjeldgaard byssuhlaupið við sinn eigin háls. Hann heyrði dauft hljóð og fann þegar kúlan smaug inn í hálsinn á honum. Hann missti samt ekki meðvitund og fann þegar næsta kúla hitti hann í mjóhrygginn. Hann hafði það mikla meðvitund að hann gat einbeitt sér að því að iátast vera dauður. Glenn Hendrickson og frú Hothan voru skotin á sama hátt. Síðan sneri glæpamaðurinn sér við og gekk rólega í burtu. í dyrunum rakst hann á bóndann Ótto Mauser, sem var að koma inn. Hann bauð góðan daginn, gekk út að bílnum og ók burt. Maður að nafni Paul Collison stóð hinum megin við götuna og fannst það ískyggilegt að ekkert númer var á bílnum. Þá kom bóndinn Ottó Mauser æðandi út og sagði að bankinn hefði verið rændur og að það væru að minnsta kosti tvö lík þar inni. Líkin voru reyndar þrjú, næst- um því fjögur. Frank Kjeldgaard var iamaður frá mitti, en hann lifði þetta af. Kúlan hafði snert mænuna í mjóhrygg hans. Innan 36 klukkustunda var rík- islögreglan búin að fá nákvæma VIKAN 2. tbl. Starfsmaður ríkislögreglunnar að færa Duane Pope í fangclsi. Fólk fyrir framan andyri Bún- aðarbankans í Big Springs.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.