Vikan


Vikan - 13.01.1966, Síða 21

Vikan - 13.01.1966, Síða 21
in og vegna refsingar fyrir brot gegn siðaboðunum. Enginn einstaklingur vex upp sið- laus heldur aðeins við góða eða slæma siði, fagra eða Ijóta siði, kurteisi eða dónaskap, eftir því hverju haldið er að honum ó fjöl- skylduheimilinu og í mótunarum- hverfinu með fordæmi, fræðslu, ög- un og verðlaunum. En hvers vegna er talað um góða og slæma siði, fagra og Ijóta siði? Eru ekki allir siðir jafngóðir, ef þeir eru bara nógu útbreiddir? Nei, síður en svo. Grófir og Ijótir siðir, eins og ruddaskapur, hóreisti, rifrildi, að troða illsakir við aðra, drykkjuskap- ur, tilIitsleysi við aðra, o.s.frv. eru Ijótir siðir, ókurteisi einmitt af því að þeir eru mannskemmandi og tor- velda friðsamleg samskipti manna, vinna gagn þroskamöguleikum mannsins, halda honum nær dýr- inu en hann þarf að vera og er jafnvel eðlilegt að vera. Góðir og fagrir siðir, kurteisi, vel- vilji, tilIitssemi við aðra, eru aftur ó móti góðir og fagrir siðir, af því að þeir hafa jákvæð áhrif á félags- mótun og þroskamöguleika og þroskaviðleitni einstaklingsins, stuðla að friðsamlegum samskipt- um hans við aðra, vellíðan hans og annarra í öllum þeirra sam- skiptum, en höfuðtilgangur kurteis- innar er einmitt friðsamleg sam- skipti einstaklinga og mannbætur í siðrænum skilningi. Þeir, sem skilja þennan megin- grundvöll kurteisinnar, sjá á auga- bragði, hversu grunnfærnislegt það er, sem stundum heyrist, að kurteis- isvenjur séu einskisverðar „snobb- reglur" fyrir „toppfígúrur". Sllk sjónarmið bera vott um aumkvun- arverða fávizku og brenglað mat á gildi kurteisinnar, sem er vissulega beinlínis hagnýt fyrir einstakling- inn í öllum hans samskiptum við annað fólk. Sá einstaklingur, sem er alinn upp við slæma siði, Ijóta breytni, ókurteisi og ruddaskap kemst t.d. undantekningarlaust í vandræði ein- hvern tíma síðar á lífsleiðinni, af því að hann kann ekki að hegða sér sæmilega innan um siðað fólk. Hann verður e.t.v. feiminn eða ó- framfærinn, uppburðarlítill eða jafnvel ruddalegur. Hans slæmu siðir eru honum eðlilegir og hann verður fyrst í stað klaufalegur, þeg- ar honum finnst hann allt I einu þurfa að breyta til og fara að haga sér eins og siðað fólk. Hinn einstaklingurinn, sem van- izt hefur góðum siðum og tamið sér kurteisi, er yfirleitt ekki feim- inn, af því að hann kann að hegða sér í samræmi við siðareglur mann- félagsins, hefur tamið sér kurteisi, og breytni í samræmi við hana er honum eðlileg. Hann hefur velvild- arviðhorf til annarra, er tillitssam- ur við aðra, talar vel um þá, sýn- ir þeim góðvild, hann kann öll meginatriði algengra kurteisissiða og breytni í samræmi við þá er honum eðlileg breytni. En jafn- framt veit hann, að þvi aðeins eru kurteisissiðir þess virði, að breytt sé í samræmi við þá, að það sé gert af einlægni en ekki yfirdreps- skap, því kurteis einstaklingur er heiðarlegur, réttlátur, einlægur og hreinskiptinn þótt hann sé vinsam- legur, umburðarlyndur og tillitssam- ur við aðra. Þegar einstaklingurinn vex og þroskast þarf hann auk almennra kurteisissiða að kunna skil á helztu samkvæmissiðum til þess að verða ekki hikandi, klaufalegur, feiminn eða ruddalegur ( umgengni við aðra í samkvæmislífinu, en um sam- kvæmissiðina gildir það sama sem um aðrar kurteisisvenjur að tilgang- ur þeirra er að kalla fram hið góða og fagra í fari manna og auðvelda vinsamleg samskipti þeirra. 1. Að heilsa: Ekki þarf að ræða það, að kunnugir heilsast, þegar þeir mætast, annað hvort með hneigingu eða handabandi. Konan heilsar kunnugum manni fyrst, þeg- ar þau sjást á götu úti, í sam- kvæmi eða annars staðar á al- mannafæri. Þetta gerir hún með því að nikka eða brosa eða hvort- tveggja, ef þau mætast á götu úti, en rétta fram höndina, ef þau mæt- ast á samkomu eða í samkvæmi. Mjög góðir kunningjar sitt af hvoru kyni heilsast yfirleitt eðlilega nokk- urn veginn samtímis. Maðurinn tekur alltaf ofan og hneigir sig fyrir konu, sem hann heilsar á götu úti, en konan nikk- ar eða brosir. Sé maðurinn með sígarettu eða vindil í munninum, þegar hann sér kunnuga konu, sem hann tekur ofan fyrir, þá tekur hann fyrst út úr sér sígarettuna eða vindilinn. Ekki þarf heldur að taka fram, að þegar við heilsum og kveðjum fólk, þá eigum vð að gera það eðlilega innilega en stillilega, og á almannafæri á að vekja eins litla eftirtekt annarra og mögulegt er, þegar heilsazt er, forðast t.d. all- ar upphrópanir og hávaðalæti í því sambandi. Eldra fólk heilsar yngra fólki fyrst, en ungar stúlkur heilsa hvor annarri nokkurn veginn samtímis og ungir piltar hverjum öðrum sömuleiðis. Aftur á móti heilsar ung stúlka ungum pilti fyrst en ekki öfugt, þar sem það er á valdi stúlkunnar að þekkja piltinn eða ekki. Fólk, sem hittist oft á dag, þarf ekki að heilsast hátíðlega í hvert sinn, sem það mætist. Vinsamlegt bros eða annað merki eftirtektar nægir. Þegar fólk heilsast og kveðst með handabandi réttir konan mann- inum höndina fyrst, eldri maður yngri manni og eldri kona yngri konu. 2. AS kynna: Kynningunni er fyrst og fremst ætlað það hlutverk að stofna til vinsamlegra samskipta og viðræðna áður ókunnugra ein- staklinga. Kynninguna má því telja eins konar frekari útbreiðslu vin- áttunnar. Sá, sem kynnir, má aldr- ei gleyma þessu. Við kynningu næg- ir ekki að nefna aðeins nöfn þeirra, sem kynntir eru, og hlaupast svo brott frá þeim og sinna öðrum gestum, heldur er það skylda þess, sem kynninguna annast, að leitast við að stofna til vinsamlegra við- ræðna þeirra, sem kynntir hafa verið, þótt rétt sé að taka fram, að aðstæður geta þó verið þannig, að þær leyfi ekki annað en að fólk skiptist á örfáum setningum. Aðalreglan um form kynningar er sú, að maður er kynntur fyrir konu, yngri einstaklingur af sama kyni fyrir eldri persónu, ógift stúlka kynnt fyrir giftri konu, starfs- maður fyrirtækis eða stofnunar er kynntur fyrir verkstjóra eða for- stjóra þess af sama kyni, en karl- ar, sama hvaða störfum þeir gegna, eru alltaf kynntir fyrir fullvöxnum konum, nema ef þjóðhöfðingjar eiga í hlut. Undantekningarlaust allir eru kynntir fyrir þjóðhöfðingj- um. Sumir mundu vilja láta þessa venju ná til forsætisráðherra, for- seta hæstaréttar og jafnvel allra ráðherra, en það er óþarfi og mun yfirleitt ekki gert hér á landi, þótt það komi fyrir. Um unglinga gildir sú kurteisis- venja í þessu sambandi, að þeir eru yfirleitt kynntir fyrir eldra fólki, t.d. mundi 15 — 18 ára stúlka kynnt fyrir rosknum föður vinkonu hennar, og er þar um frávik frá aðalreglunni að ræða. Byggist þetta frávik á þeirri hugsun, að ungl- ingurinn er ekki enn orðinn full- vaxinn persóna. Við kynningu takast þeir, sem kynntir eru, í hendur og hneigja sig. Sem dæmi um framkvæmd kynn- ingar má t.d. hugsa sér karl kynnt- an þannig fyrir konu: „Má ég kynna Jón Pétursson, frú Ósk Jósepsdótt- ir". Eða: „Jón Pétursson, Ósk Jósepsdóttir". Þeir sem þannig eru kynntir takast í hendur, heilsast og hneigja sig. í báðum þessum tilfellum var nafn þess, sem kynntur er, nefnt fyrst. Einhvers staðar hef ég séð það haft eftir íslenzkri tízkuskóla- stýru, að þetta sé og eigi alltaf að vera þannig, að nafn þess, sem kynntur er, sé nefnt fyrst. Svo er þó ekki. Form kynningarinnar get- ur verið með þeim hætti, að nafna- röðin snúist við í upphafi, t.d. þann- ig, að sá, sem einhvern á að kynna fyrir, sé ávarpaður fyrst með nafni og beðinn leyfis til kynningar, t.d. þannig: „Frú Ósk Jósepsdóttir. Má ég kynna Jón Pétursson, banka- fulltrúa fyrir yður"? Svari hún „Já", þá heldur þessi hátíðlega kynning áfram og sá, sem kynnir segir: „Jón Pétursson. Frú Ósk Jósepsdóttir". Einnig er þetta form framkvæmt þannig, ef sá, sem kynnir, og sá, sem kynna á einhvern fyrir, eru mjög góðir vinir, að upphaflega ávarpið miðast við skírnarnafnið eitt saman, t.d. þannig: „Ósk, má ég kynna Jón Pétursson, bankarit- ara fyrir þér"? „Já", „Jón Péturs- son, frú Ósk Jósepsdóttir". Hitt er líka ekki óalgengt að fyrra ávarp- ið miðist við titil viðkomandi per- sónu, t.d. „ráðherra", „banka- stjóri", „prófessor", „rektor", for- stjóri", o.s.frv., t.d. þannig: „Borg- arstjóri, má ég kynna Bjarna Ing- ólfsson, kennara fyrir þér"? svari borgarstjórinn „já", þá heldur kynningin áfram og sá, sem kynn- ir, segir: „Bjarni Ingólfsson, kenn- ari, Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri". Þetta form er hátíðlegt og sum- um finnst það þunglamalegt, enda er ástæðulaust að nota það nema mikill virðingarmunur sé á fólki. Þess vegna er það sáralítið notað, en eigi að síður sjálfsögð kurteisi í sérstökum tilfellum, t.d. þegar ný- liði í fyrirtæki eða stofnun er kynnt- ur fyrir forstjóranum, bankaritari fyrir bankastjórafrúnni, aðstoðar- maður ( ráðuneyti fyrir ráðherra, laganemi fyrir hæstaréttardómara o.s.frv. En aðalreglan er sem sé sú, að Framhald á bls. 33. 0 í boðinu fræga að Bergþórshvoli, vildi Bergþóra, að Hallgerður þokaði fyrir Þórhöllu, tengdadóttur sinni. En Hallgerður vildi engin hornkerling vera og spunnust sjö mannvíg og fé- bætur af þessari ó- heppilegu niðurröð- un við veizluborð- ið. VIKAN 2. tbl. 21

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.