Vikan


Vikan - 03.02.1966, Blaðsíða 46

Vikan - 03.02.1966, Blaðsíða 46
 VIKAN OG HEIMIUÐ ritstjóri: Gudridur Gisladóttir. • ý .......... t. f M&M Hátíðlegt kvilMaiM Þótt það komi ef til vill ekki oft fyrir venjulega fjölskyldu, að halda hátíðlegt miðdegisverðarboð, getur komið sér vel að vita ýmislegt um tilhögun á form- föstum málsverði. Þeir, sem nóg hús- rými hafa, halda í heimahúsum mið- degisverðarboð við brúðkaup, ferming- ar og fleiri shk tilefni, og alltaf geta skapazt þannig aðstæður, að kona þurfi að vera stjórnandi þannig máltíða. Sum- um konum er þetta daglegt brauð, ef svo má segja, og auðvitað má gera ráð fyrir, að þær viti flest af þessu, sem hér fer á eftir. Áður fyrr þótti sjólfsagt að dúka borðið með hvítum dúk og serviettum, og telzt það enn mjög viðeigandi, en ekki nauðsyn- legt. Ljósir pastellitir koma vel til greina.. eða hvítur dúkur og serviettur t.d. f sama lit og blómin á borðinu, þannig að ef gular rósir væru borðskrautið, gætu servietturnar verið í sama gula litnum. Ef ekki er nógu stórt borð fvrir alla gestina.. mó dúka fleiri smóborð, en hafa þá dúkana eins eða í svipuðum litum á þeim öllum, sömuleiðis sama borðskrautið, t.d. blóm og kerti. Séu gestirnir við hátíðlega máltíð fleiri en átta, þarf helzt tvær stúlkur til að ganga um beina, svo að maturinn verði ekki kaldur áður en allir hafa fengið á diskana. Húsmóðir- in ráðfærir sig alltaf vandlega við stúlkurnar áður en máltíð- in byrjar, það kemur sér betur fyrir báðar. Sé aðeins ein stúlka að ganga um beina og þá með eitt fat, byrjar hún á því að bjóða dömunni, sem situr hægra megin við húsbóndann, og þaðan heldur hún áfram kringum borðið og endar á húsbóndanum. Séu þær tvær, byrjar önnur á sama stað og áður er sagt, en hin til vinstri við húsbóndann, þann- ig að húsmóðirin fái síðast. Oft er hún þó látin byrja fyrst í annarri umferð, til þess að gefa gott fordæmi og gestirnir þori að þiggja aftur á diskana. Gestunum er svo boðið af fötunum frá vinstri, en súpudiskar eru settir fyrir þá frá hægri, sömu- leiðis er hellt í vínglösin frá hægri. Óhreinir diskar eru teknir frá hægri hlið og hreinir settir frá sömu hlið. Það gildir þó ekki, ef óhreinu diskarnir eru teknir um leið og þeir hreinu eru settir. Stúlkan hefur þá með sér hreina diskinn, sem hún heldur í hægri hendi. Hún tekur því notaða diskinn með vinstri hendi frá vinstri og setur þann hreina frá hægri hlið með hægri hendi. Sumum þykir þessi aðferð vera skemmtilegust, þótt hún taki nokkurn tíma. Áður en ábætisrétturinn er borinn fram, verður að fjar- lægja öll föt, saltker og sömuleiðis undirlagsdiskana. Glösin mega standa. Munið að aldrei má hella glas fyllra en % af gjasinu. Séu glösin óvenjulega stór, á ekki að hella þau nema hálf. Góð regla er það, að hata kert in há, en blómaskrantið Jágt. Háu ljósin gefa andlitunum mildari blæ, lága skreytingin byrgir ekki sýn yfir borðið.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.