Vikan - 03.02.1966, Page 50
Heimskir negrar
r
APPELSÍN
SÍTRÖN
LIME
Svalandi - ómissandi
á hverju heimili
iSunfiesK
Framhald af bls. 25.
Meðal plantekrueigendanna er
jörðin sjálf miklu meira virði en
stjórnmálaviðhorfin. Hér hafa menn
lagt allt sitt lífsstarf í jörðina, og
margir eru hér, eins og í Kenya,
reiðubúnir til að sitja sem fastast
þótt til pólitískra óeirða komi í
framtíðinni.
— Þið Evrópumenn sem hafið
byrjað leik hér á meginlandinu, ger-
ið það á eigin ábyrgð, segir Ham-
mond. — En það verður aldrei fyr-
irgefið. Við höfum unnið stórvirki
hér, en það líða hundrað ár áður
en aliir okkar draumar rætast. Þá
blómstrar alit þetta stóra land eins
og trjágarður vegna tiikomu nýrra
vatna og stíflugarða. Þá verður
líka komin hér ný miðstétt af inn-
fæddum Afríkubúum, sem hafa
góða afkomu. En við verðum að
vekja þá til lífsins. Ég get ekki
ímyndað mér að nokkur fylgi á-
kvörðunarrétti meiri hlutans þeg-
ar meiri hlutinn er ekki fær um að
stjórna.
Við þolum ekki að heyra nefnt
nýtízku samveldi. Þegar því er
stjórnað af hvítum mönnum var allt
í lagi og maður gat reiknað með
samveldinu. Nú verðum við að
reyna að bjarga okkur eins og við
bezt getum. Það var Macmillan
sem byrjaði þessa nýju stjórnmála-
stefnu. Macleod hélt í uxann og
Duncan Sandy seldi hagsmuni okk-
ar. Þessi þrenning eru hinir raun-
verulegu negravinir!
Þótt herra Hammor.d sé fæddur
og uppalinn í Rodesiu og hafi bú-
ið þar allt sitt líf og sömuleiðis kon-
an hans, hefir honum tekizt að
skapa sér al-enskt heimili. Húsið
gæti alveg eins verið prestssetur í
Sussex. Vogue, Punch og Country
Life liggur þar á borðunum og það
er kroketvöllur á grasflötinni. í
bókahillu er hægt að finna Kipling
og frú Hammond býður upp á te.
En þarna eru líka blöð og tíma-
rit sem gefin eru út í Rodesiu og
félagslíf er töluvert, ýmist í heima
húsum eða í klúbbnum, sem plant-
ekrueigendur byggðu sjálfir árið
1958.
I trjágarðinum blómstrar boug-
ainvillea og orkideur. Nóttin kemur
með þægilegum svala. í fjarska
heyrum við Afríkubúa skemmta sér
í vikulokin.
— Ég reikna með að þeir drekki
sig fulla, segir Hammond, — og þv(
skyldu þeir ekki gera það. Þeir
hafa ekki margt annað að skemmta
sér við. Það sem ég er mest undr-
andi yfir er að þeir hafa einhverja
aðferð til að takmarka barnsfæð-
ingar. Þeir nota til þess einhverja
dularfulla jurt.
— Já, kæru vinir, segír frú Ham-
mond, — þegar Afríkubúar fara að
kynnast menningunni þá eru ham-
ingjudagar þeirra á enda. Við get-
um setið hér og talað þangað til
við blánum í framan, en við getum
ekki breytt framgangi málanna. ★
V eizlnmáltíð
Veizlumáltíð þarf ekki nauðsynlega að hafa fjóra rétti. Uppástungurnar hér
á eftir, eru allar með þremur réttum, en auðvitað má bæta millirétti inn á milli.
Skjaldbökusúpa.
Hreindýrshryggur.
Melbaperur.
Kaupið skjalbökusúpu í dós og gerið hana eftir leiðbeiningum á dósinni. Ber-
ið fram sjóðandi heita í súpudiskum eða súlubollum. Ostastengur eða lítil
heit rúndstykki borin með.
Hryggur 2\2 — 3 kg. að þyngd fyrir átta manns. Nuddið með salti og pipar
og steikið í ofni við 200 — 225 gr. hita. Reiknið með 45 mín. á hvert kíló. Þeg-
ar steikin er vel brún er blandi af vatni og mjólk hellt yfir og þegar 30 mín.
eru eftir af steikingartímanum, er hellt pela af rjóma út í soðið. Þá eru skorn-
ar þunnar sneiðar báðum megin við hrygginn, en kjötið lagt aftur á sama
stað. Sósan er bragðbætt með salt- og sólberjagelé, jöfnuð upp með maisena-
mjöli og dekkt með sósulit. Þetta er skreytt með ristuðum sveppum og tómöt-
um, sem hafa verið fylltir með: hökkuðum sveppum, saxaðri skinku og svo-
lítilli chilisósu, öllu steiktu í smjöri svolitla stund á pönnu. Kartöflukúlur
bornar með.
Melba ísinn er gerður 2 hálfum perum á mann, mega vera niðursoðnar. í
ábætisskál er settur vanilluís, perurnar þar ofan á og yfir er hellt sósu af
mörðum, frystum jarðarberjum, sem hrærð hafa verið með svolitlum legi af
perunum. Ristuðum möndlusneiðum stráð ofan á.
Við þennan málsverð er vel viðeigandi að bera fram þurrt sherry með súp-
unni, rautt búrgundarvín með hryggnum og hálfsætt kampavín með ísnum.
Tartalettur.
Glaseraðar nautalundir og tunga.
Frönsk eplakaka.
Fyllið tartaletturnar með jafningi úr rækjum og sveppum. Kjötið má mat-
búa daginn áður og er það þunnar sneiðar af nautafilet og reykt tunga, en er
glaserað með kjötgelé. Hrásteiktar kartöflur bornar með. Eplakakan er epla-
mós þakið af möndludeigi, sem steikt er inni í ofni þar til deigið er ljósbrúnt.
Borin fram með köldum rjóma.
Snittur.
Sveppagratineraður kjúklingur.
Sítrónufromage.
Þunnar snittur með reyktum lax, gæsalifur úr dós eða annarri góðri lifrar-
kæfu, svörtum kavíar, rækjum, humar, osti og olívum, og reiknað er með 3 —
4 á mann. Að'alrétturinn er kjúklingur, skorinn 1 hluta, en áætlið y2 kjúkling
á ™an”- Þekið stykkin með sveppajafningi og bakið í ofni. Borinn fram með
hnsgrjónum og grænum baunum. Ábætirinn er sítrónufromage með litlum
möndlumakkarónum.
gQ VIKAN 5. tbl.