Vikan - 19.10.1967, Side 2
í FULLRI HLVÖRU
FORD CORTINA 1968 er lítið breytt eftir
hinar gagngerðu breytingar fyrra órs. —
Hinir fjölmörgu CORTINA - eigendur eru
beztu meðmælendurnir.
Hin nýja kraftmikla 5 höfuðlegu vél gefur
bifreiðinni mjúkan og öruggan akstur.
Gúmmíhlífar yfir höggdeyfurum varna
skemmdum vegna óhreininda. Kraftmikil
miðstöð og loftræsting með lokaðar rúður.
Mikið farangursrými.
SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMI 22466
UMBOÐSMENN AKRANES: BERGUR ARNBJÖRNSSON
OKKAR ÚTI Á LANDI- BOLUNGARVÍK: BERNÓDUS HALLDÓRSSON
SIGLUFJÖRÐUR: GESTUR FANNDAL
VESTM.EYJAR: BÍLALEIGAN A.S.
MEÐALVEGURINN
Nú er íslenzka sjónvarpið orð-
ið eitt um að flytja á skerminum
fræðslu- og skemmtiefni fyrir
almenning — að nafninu til. Þeg-
ar þetta er ritað sést Keflavíkur-
sjónvarpið enn víða í Reykja-
vík, þótt svo eigi að heita, að
því hafi verið lokað. Er þá ótalið
„næsta nágrenni Keflavíkur“ sem
reyndist miklu stærra en almennt
var reiknað með. Þessi lokun
Keflavíkursjónvarpsins er orðin
svolítið einkennileg og nánast
brosleg. Valdhafanna vegna er
skást sú skýring, að þeir hafi
reynt eftir beztu getu að rata
hinn rétta meðalveg í málinu
með þessu móti! Þegar liðnir at-
burðir verða rifjaðir upp um
næstu áramót, verður með sanni
hægt að segja, að Keflavíkur-
sjónvarpinu hafi verið lokað á
árinu, og þó ekki lokað ...
Dagskrá íslenzka sjónvarpsins
hefur á margan hátt verið góð,
síðan útsendingardögunum fjölg-
aði. Erlent efni hefur aukizt, en
hið innlenda staðið í stað, eins
og við var búizt. Fréttimar eru
enn sem fyrr bezta efni sjón-
varpsins.
Því verður ekki neitað að dag-
skráin hefur í heild þynnzt svo-
lítið, þótt fjölbreytni hennar hafi
aukizt. Má því búast við, að
gagnrýnin verði ekki eins já-
kvæð og hún var í fyrstu. Sum-
um finnst hneisa, að bandarísk
kúrekamynd skuli vera sýnd á
bezta tíma vikunnar, sunnudags-
kvöldum. Öðrum finnst fráleitt
að sýna sömu kvikmyndina tvisv-
ar sinnum í sömu vikunni á
sama tímanum. Þær myndir eru
sýndar kl. 9 á kvöldin, og oft
er þess getið, að þær séu ekki
ætlaðar bömum. Vera má, að á
fyrirmyndarheimilum séu börn
komin í háttinn á þeim tíma, en
ætli þau vaki ekki eitthvað leng-
ur fram eftir víðast hvar? Getur
þá reynzt erfitt að koma í veg
fyrir að þau sjái þessar forboðnu
myndir. Bezti tíminn til að sýna
langar myndir væri síðar á kvöld-
in, þegar börnin eru komin í
háttinn og húsmóðirin hefur lok-
ið verkum sínum í eldhúsinu.
Þannig mætti lengi telja upp
sitt af hverju. sem betur mætti
fara. íslenzka sjónvarpið er orð-
inn svo snar þáttur í daglegu
lífi almennings, að það hlýtur að
sæta gagnrýni, þótt ekki megi
gleyma því sem vel er gert.
G.Gr.