Vikan


Vikan - 19.10.1967, Síða 12

Vikan - 19.10.1967, Síða 12
ÞIIRFTIEKKI ANNAB EN SYNA SIG-QG ÞA FORU ALLIR AB HLÆJA semi sína. Hann var að leika sér með nokkrum félögum sínum, er þeir fundu einkennilega kúlu. Ing- ólfur þurfti náttúrlega að skoða hana að innan, reyndi að brjóta hana, en tókst það ekki. Hann setti hana loks I vasa sinn, en þá sprakk hún. Hönd Ingólfs tættist sundur og af tók þrjá fingur. Hann komst þó til læknis, sem bjó ein- hvers staðar nálægt, tókst að hringja dyrabjöllunni, en þá leið yfir hann á tröppunum. Þetta atvik. hafði djúp áhrif á Alfred og ekki er ósennilegt, að hann hafi borið þess merki alla ævi. Ingólfur bróðir hans hafði orð- ið fyrir áfalli áður. Hann fékk löm- un upp úr kíghósta og styttist á honum annar fóturinn, svo að hann var fatlaður fyrir. Alfred tók sárt að þurfa að horfa upp á þjáningar bróður síns, sér- staklega þegar verið var að skipta um sáraumbúðir á honum. Angistarveininu gleymdi hann al- drei. LÉK FYRST í STÚKU. Alfred fór í barnaskóla og gekk vel við námið. Hann var alltaf efst- ur í sínum bekk. Til er bók, sem hann fékk í verðlaun fyrir ástund- un, háttvísi og reglusemi. Er hún áletruð af Morthen Hansen, skóla- stjóra. Ungur gerðist Alfred sendill í Smjörhúsinu, og það er til dálítið skemmtileg saga af því, hvernig hann fékk þá stöðu. Geysimargir sóttu um hana, og nokkrir voru teknir til reynslu, þar á meðal Al- fred. Fyrsta daginn var hann lát- inn fara í pakkhúsið og taka þar til. Þegar hann var að sópa rusli, fann hann tíu krónur, en það voru miklir peningar í þá daga. Hann fór þegar með seðilinn og skilaði honum. Þetta þótti svo heiðarlegt og vel af sér vikið, að hann fékk stöðuna. Þegar Alfred var um fermingu, fékk hann vinnu hjá O. Johnson og Kaaber. Þar sem hann hafði sýnt, að hann hafði góða náms- hæfileika og hafði fengið góðar einkunnir í barnaskólanum, hvöttu forráðamenn fyrirtækisins hann til að fara í Verzlunarskólann og kost- uðu hann við námið að einhverju leyti. Þótt leiðir skildu með honum og fyrirtækinu, var Alfred svo þakk- látur fyrir stuðninginn, að hann var í rauninni alla ævi að endur- gjalda hann. Ef hann hitti náms- menn, sem áttu í fjárþröng, reyndi hann eftir beztu getu af sínum litlu efnum að greiða götu þeirra. Snemma beygist krókurinn til þess sem verða vill. Þegar Alfred var í barnaskóla, var hann eitt sinn látinn semja ritgerð um sjálfvalið efni. Hann. skrifaði gagnrýni um leikritið „Kinnahvolssystur", sem hann hafði séð og hrifizt af. Aðal- hlutverkið í leiknum lék Stefanía Guðmundsdóttir. Stíllinn þótti svo góður, að hann var látinn lesa hann upp. Alfred byrjaði að leika í barna- stúkunni Æskunni. Þóra Borg var þar einnig, og þau voru til skiftis kosin æðsti templari. Þau fluttu leikþætti á skemmtikvöldum, og Al- fred söng meira að segja vísur. Siðar lék Alfred með Litla leik- félaginu, sem Þorvaldur Guðmunds- son, veitingamaður, Helgi S. Jóns- Haustrevýa Bláu stjörnunnar 1952: Brynjólfur Jóhanncs- son, Haraldur Á. Sig- urðsson og Alfred. Alfred syngur gam- anvísur í Bláu stjörnunni. Við hljóðfærið er Aagc Lorange. Búningsklcfi í Sjálf- stæðishúsinu, þar sem Bláa stjarnan hafði aðsetur sitt. Innst við borðið sitja Haraldur Á. og Alfred. 12 VIKAN 42 tbI

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.