Vikan - 19.10.1967, Qupperneq 18
Karl Sighvatsson.
Ilafn Haraldsson.
Allt var blfmim skrítt
Það var sannarlega blómlegt um að litast í TJarn-
arbúð, þegar hljómsveitin Flowers lét í sér heyra
fyrsta sinni. Húsið var allt blómum skrýtt, og á
einum veggnum mátti líta heiti hljómsvcitarinnar
skráð með blómsveigum. — Sjálfir voru piltarnir
Andrés Indriðason
Engelbert Humperdinck er orðinn vel
þekktur hérlendis fyrir lögin sín „Release
me“, „Xhere goes my everything" og nú síð-
ast „The last walz", sem er í efsta sætl vin-
sældalistans brezka, þegar þetta er skrifað.
Engelbert heitir réttu nafni Gerry Dorsey,
og undir því nafni sendi hann frá sér plötur
í rúmlega tíu ár. Það var ekki fyrr en hann
komst í samband við umboðsmann Tom Jon-
es, að plötur hans tóku að seljast. Umboðs-
maðurinn ráðlagði honum, að taka upp ann-
að nafn og útvegaði honum síðan plötusamn-
ing og lagið „Release me“, sem upphaflega
var ætlað Tom Jones. Þetta var allur gald-
urinn, og lagið hafnaði í efsta sæti vinsælda-
listans — og jafnvel Bítlamir gátu ekki þok-
að því þaðan með laginu Penny Lane. Engel-
bert þykir minna nokkuð á Tom Jones, og
þeir eiga það báðir sameiginlegt að geta
sungið músik af ýmsu tagi — „pop“ músik
og sígild dægurlög.
Innan skamms megum við vænta nýrrar
hljómplötu frá Ragnari Bjarnasyni og hljóm-
sveit hans. Ragnar syngur á þessari plötu
fjögur lög, þar á meðal tvö lög, sem brezki
söngvarinn Engelbert Humperdinck hefur
gert vinsæl — „Almost Persuaded" og „There
goes my everything". Ekki vitum við á þessu
stigi málsins hvað lögin munu heita á ís-
lenzku, en bæði eru þau sérlega falleg, og
síðara lagið hefur notið mikilla vinsælda
hérlendis. Þá verður og á plötunni lag, sem
Ragnar og hljómsveit hans fluttu í sjónvarp-
ið sl. vor, gamanbragur, sem nefnist „Úti í
Hamborg“. Breytingar standa nú fyrir dyr-
um á hljómsveit Ragnars, og munu þrír nýir
menn vera með í spilinu í vetur. Þeir eru'
Jón Páll Bjarnason, gítarleikari, sem undan-
farin ár hefur leikið með ‘hljómsveit í Dan-
mörku, Árni Elvar, píanó- og básúnuleikari
og Guðjón Ingi Sigurðsson, trommuleikari.
Alli Rúts hefur oft komið fólki í gott skap
með ýmsum skemmtilegum uppátækjum sín-
um. Hann syngur gamanvísur og er hermi-
kráka hin mesta, og hann bregður sér í hin
ýmsu gerfi, ef slíku er að skipta. Hér er hann
til dæmis að útskýra helztu nýjungar í kven-
fatatízkunni. Alli er ættaður frá Siglufirði
og hefur skemmt landsmönnum undanfarin
þrjú ár. í ráði er að hann syngi inn á plötu
innan tíðar. .... .......