Vikan


Vikan - 19.10.1967, Page 32

Vikan - 19.10.1967, Page 32
r Tvistar eru ekki ómerkilegri spil en hver önnur, eins og sannast í spilinu hér á eftir: A D-7 y 10-9-7-6-5-2 4 Á-8-6 A 5-3 ▲ G-6-4-2 y 8-4-3 4 5-4 Jf, G-10-9-8 N V A 8 A K-9-8-5 y K-D-G 4 9-7-3 Jf, K-D-4 4 Á-10-3 y Á 4 K-D-G-10-2 Jf, Á-7-6-2 Austur opnar á einu laufi (Vínarsagnkerfið), en Suður kemst að lokum í fimm tígla. Vestur lætur út laufgosa, sem er gefinn. Sagnhafi ætlar sér að gefa lauf tvisvar og vinna síðan spilið með víxltrompi, þ. e. eftir að spaða hefur verið kastað í laufásinn. En Vestur lætur út tígulfimm, sem Suður tekur heima á tíuna. Nú er spilað á hjartaásinn, laufás tekinn og láglauf er trompað með tíguláttu í borði. Nú er hjarta Irompað með tígulgosa. Síðasta lauf Suðurs er trompað með tígulásnum í borði, og Austur lætur í spaðafimm. Ef Austur hefði verið vel á verði, hefði hann séð hvert stefndi. Eina leiðin til þess að hnekkja spilinu á þessu stigi málsins er, að Austur fleygi tígulníunni þegar trompað er með tígulásnum í borði! Þetta virðist heldur hastarlegt, en ef Austur hugsar sig um, þá hlýtur að vakna spurningin, hversvegna Suður trompaði hjarta með tígulgosanum en ekki lágtígli. Einhverra hluta vegna er hann að halda í lágtígul. Jæja, Norður var inni á tígulás, og nú var spilað hjarta, sem Suður trompaði með tíguldrottningunni. í síðasta hjart- að féll svo hjartakóngurinn, svo að Suður vissi, að Austur hafði upp- haflega átt þrjú hjörtu og þrjú lauf. Þessvegna hlaut Austur að hafa átt þrjú tromp, því að annars hefði hann opnað á einum spaða en ekki einu laufi. Austur hlýtur að eiga spaðakóng, ellegar hefði hann ekki opnað. Staðan eftir átta slagi var þessi: A D-7 V 10-9-7 ♦ ekkert * ekkert <4 G-6-4-2 N A K-9-8 y ekkert V ekkert ♦ 4 ♦ 9-3 Jf, ekkert S * ekkert A Á-10-3 V ekkert ♦ K-2 * ekkert Suður lét út trompkóng og fleygði hjarta úr borði. Og nú var loks Austri spiiað inn með tígultvístinum. Þetta var annar og síðasti slagurinn, sem vörnin náði í. Eigum við ekki að hætta að kalla tvistinn hund? Kilríllir Það er miklu minni fyrirhöfn að búa til eina langa rúllu í stað’ margra smákálböggla. Með chilisósu og ólívum ofan á verður þetta nýstárlegur og bragðgóður réttur. — Efnið í kálrúlluna: 1 stórt hvítkálshöfuð, vatn, 2 tsk. salt í lítra af vatni. Fylling: 300 gr hakkað nautakjöt, 100 gr hakkað svínakjöt, 1 egg, salt, pipar, 1 dl rjómi, IV2 dl vatn, IVi matsk. rasp. Til að steikja úr: 2 matsk. smjörlíki, 2—3 dl soð af kjötteningum. Til skreytingar: Chilisósa, skornar ólívur, steikt kál, söxuð persilja. 1. Leggið kálhaus- inn í sjóðandi saltvatn og látið sjóða í 5 mín. — Losið blöðin og látið renna af þeim og leggið þétt saman á borðið. Látið brúnirnar koma vel hvor yfir aðra og hafið kállengj- una margfalda. 2. Biandið saman rjóma, vatni og raspi. Hrærið saman hakkaða kjötið og eggið, ásamt kryddinu og jafnið með raspblöndunni. Setjið farsið eftir endilangri kál- lengjunni. 3. Rúllið saman eins og rúllutertu og setjið lengjuna í ofnpönnu með brúnuðu smjörlík- inu í. Steikið við meðalofnhita (200 gr.) í ca. klukkutíma. Ausið nokkrum sinnum yfir með kjötsoðinu. 4. Setjið rúlluna á fat og breiðið chilisósu eftir henni endilangri og setjið olívu- sneiðar ofan á. Minnstu kálblöðin er gott að steikja í smjöri og raða utan með ásamt persiljunni. Berið soðnar kartöflur og tómatsósu með. 36 VIKAN 42- tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.