Vikan


Vikan - 19.10.1967, Side 44

Vikan - 19.10.1967, Side 44
VIII. Einn dag um sumarið sátum við í rökkrinu og snæddum kvöldverð. Það hafði ekki rignt í nokkra daga og borgin ólgaði af hita. Vatnið í Dóná var græn- leitt og mollufnykur lá yfir bæn- um. Þurrahiti geislaði út frá gluggunum á glersvölum okkar og dró allan þrótt úr líkama og sál. Daginn áður hafði ég haft verk í öxlunum og í dag jukust þrautirnar. Mér var þungt yfir höfði og hár mitt þurrt. Ég strauk um höfuð mitt og hugs- aði: „Ég þarf að láta klippa mig.“ Svo varð mér litið á konuna mína og sá, að hún hafði látið hár sitt vaxa. Hafði hún þó gengið með stuttklippt hár, síð- an konur tóku upp herraklipp- ingu. „Það er, eins og ég þoli ekki að ganga með svolítið hár,“ hugsaði ég með sjálfum mér, „en þessi manneskja lætur sér vaxa hár eins og á páfugli án þess svo mikið sem að spyrja mig, hvort það sé fallegt.“ Annars fór henni þessi greiðsla mjög vel. En ég var í slæmu skapi. Ég hratt stólnum mínum frá borðinu, eins og það þrengdi að mér, reif miðjuna úr brauð- hleif og fór að tönnla. Ég hafði ekki nefnt hann á nafn við hana í nokkra daga og óþarft er að taka það fram, að hún minntist ekki á hann við mig. Þessa dag- ana hafði ég lítið talað við hana, og ef ég yrti á hana, var það ónotalaust. Allt í einu sagði ég: „Mér hefur flogið nokkuð í hug.“ Hún kinkaði kolli og svaraði: „Já ég er á sama máli.“ „Veiztu þá, um hvað ég er að hugsa?“ spurði ég. „Ef þú veizt það, þá segðu mér.“ Hún hvíslaði: „Skilnað." Um leið og hún sagði þetta, leit hún upp og horfði á mig hrygg í bragði. Mig tók í hjartað og ég varð hlýrri í viðmóti. „Mikið ert þú auvirðilegur maður,“ sagði ég við sjálfan mig, „að fara svona með konuna þína og valda henni harma. Ég lækk- aði róminn og spurði: „Hvernig veizt þú, hvað ég hugsa?“ Hún mælti: „Eins og ég geri annað daginn út og daginn inn, en að brjóta heilann um þig, vinur minn.“ Áður en ég vissi af, hafði ég spurt: „Ert þú þá samþykk því?“ Hún leit til mín og spurði: „ — skilnaði?" Ég horfði í gaupnir mér og kinkaði kolli til samþykkis. „Hvort sem ég vil eða ekki,“ mælti hún, „þá fellst ég á allt sem þú óskar, aðeins til að minnka þjáningar þínar.“ „Jafnvel skilnað?“ „Jafnvel skilnað!“ Ég vissi hvað ég missti. En töluð orð verða ekki aftur tek- in, og löngunin til að láta mig sjálfan gjalda þess gerði það að verkum, að ég gætti mín ekki. Ég kreppti báða hnefa og sagði: „Ágætt!“ Nú liðu nokkrir dagar svo, að ég minntist livorki á skilnað, né mann þann sem var upphaf ógæfu okkar. Hvað eftir annað sagði ég við sjálfan mig: „Þrjú ár eru liðin, síðan hún kvænt- ist þér. Það er svei mér tími til kominn, að rífa þetta með rót- um úr hjarta sér. Hefði hún ver- ið ekkja eða fráskilin, þegar ég giftist henni, myndi ég aldrei hafa álasað henni. Segjum þá bara sem svo, að hún hafi ann- að hvort verið ekkja eða frá- skilin." Og eftir að ég hafði tekið þessa ákvörðun, ásakaði ég sjálfan mig daglega fyrir að hafa valdið henni hryggðar, og hét því með sjálfum mér að vera henni góður. Þessa daga varð ég að nýjum manni og fann að ástin fór að vakna með mér, eins og fyrst þegar ég kynntist henni. Ég var fyrirfram sannfærður um, að líðan hvers fer eftir hans eigin vilja. Ef mað- urinn svo vill, getur hann hleypt reiði, beizkju eða afbrýðissemi inn í hjarta sitt, á sama hátt sem hann getur lifað í friði við allt og alla, ef honum sýnist. Sé það svo, hví skal þá ala með sér reiðina sjálfum sér til meins, þegar hægt er að lifa í friði og fögnuði. Þannig hugsaði ég, þangað til nokkuð kom fyrir og allt sótti í sama horfið sem áður fyrr. IX. Hvað kom fyrir? Einn góðan veðurdag var sjúklingur lagður inn á spítalann. Ég skoðaði hann og lagði fyrir hjúkrunarkon- urnar að baða hann og leggja 'í rekkju. Um kvöldið var ég á stofugangi og kom að rúmi hans, las nafnið á skránni yfir höfðalaginu, og vissi, hver hann var. Hvað á maður að gera? Ég er læknir og ég annaðist hann, ef til vill af meiri umhyggju en nauðsyn krafði, enda öfunduðu hinir hann og kölluðu hann upp- áhaldssjúlíling læknisins. Og það var ekki fjarri sanni. Hvort sem nauðsyn bar til, eða ekki, veitti ég honum alla aðhlynn- ingu. Ég sagði hjúkrunarkon- unum að hér hefði ég fundið áður óþekktan sjúkleika, sem ég vildi rannsaka. Skipaði ég að gefa honum góðan mat og stund- um gaf ég honum vínglas, svo hann væri ánægður með veru sína á spítalanum. Eins bað ég þær að taka ekki mjög hart á því, þótt han gerði sér dálítið dælt við þær og færi ekki ná- kvæmlega eftir öllum reglum. Þarna lá hann við allskyns eftirlæti, át og drakk. Ég kom til hans, skoðaði hann hvað eft- ir annað, spurði hvort hann ætti 48 VTKAN 42- tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.