Vikan


Vikan - 09.11.1967, Side 7

Vikan - 09.11.1967, Side 7
veitli henni eftirför. Ég veit al- veg í hvaða götu hún fór, en hins vegar tókst mér ekki að sjá inn í hvaða hús hún fór. Þó þykir mér líklegt, að það hafi verið nálægt horninu, af því að það leið ekki langur tími þang- að til ég kom fyrir hornið á eft- ir henni. Ég hef farið í þessum strætó á hverjum degi síðan, en aldrei rekizt á hana aftur. Ég hef oft gengið þarna eftir götunni í von um að sjá hana, en árangurs- laust. Hún var í fylgd með ann- arri stelpu, sem kallaði hana Dollí eða Doddí. Ég heyrði ekki hvort heldur var. Mig dreymir hana á nóttunni og ég hef enga matarlyst. Mamma gamla verður að pína matnum ofan í mig. — Hvað á ég að gera? Á ég að fá símanúmerin hjá öllum þarna í götunni og hringja svo eins og brjálaður maður? En ég veit ekki einu sinni, hvort hún á heima þarna eða var bara í heimsókn! Hún er Ijóshærð, stuttklippt, grönn, en ekki horuð og með á- kaflega háa og fallega fótleggi; frekar lítil, en ekki um of. Bjarg- aðu mér nú úr þessum ógöngum, Póstur minn, áður en ég svelt í hel. Horgrindin. Þessi ljóshærða, granna með löngu Iappirnar er harðtrúlofuð. Auk þess er hún kverkmælt og drepleiðinleg. Hins vegar sáum við eina í Hafnarfjarðarvagnin- um um daginn, sem er miklu fal- legri. Athugaðu hana! SJÓMANNSLÍF. Kæri Póstur! Nú fer óðum að þrenjast í búi hjá smáfuglunum. Þeir ætla að fara að senda síldarsöltunarskip á miðin, og hvað skeður þá? Við vitum það svo sem. Sjómennirnir koma ekki lengur að landi eins oft og skyldi. Okkur langar til að koma á framfæri tillögu þess efnis, að ríkisstjórnin leggi til skip til afnota fyrir sjómanns- konur og flytji þær á miðin hæfi- lega oft. því að annars má búast við, að sjómennirnir labbi sig í land. Við óskum eftir áliti ann- arra eiginkvenna sjómanna og einnig áliti þínu, Póstur góður. Þrjár skelfingu lostnar eiginkonur. Við höfum fyllstu samúð með einmana sjómannskonum, sem fá ekki að sjá menn sína nema með höppum og glöppum. En ætli hæstvirt ríkisstjórn telji sig hafa efni á að verða við svo frómri ósk, meðan sjálf þjóðarskútan er orðin hriplek og þarf að ausa nótt og dag til þess að halda henni á floti? ÞRÍHYRNINGUR. Kæri Póstur! Mig hefur lengi langað til að skrifa þér og ætla nú loksins að láta verða af því. Vandamál mitt er svoleiðis, að ég er ofsahrifin af stráknum, sem ég hef verið með frá því snemma á þessu ári. En svo gerðist það um eina helgi, að ég, vinkona mín og strákur- inn fórum saman á dansleik. Ég reifst svolítið við strákinn minn, en þá gerði hann sér lítið fyrir og stakk mig af — með vinkonu minni! Kæri Póstur: Hvað á ég að gera? Halda áfram að tala við þau og láta sem ekkert hafi gerzt? Gefðu mér nú góð ráð, kæri Póstur, og svaraðu mér fljótt. Fyrirfram þökk, Ein hrifin. Þú skalt láta eins og ekkcrt hafi í skorizt. Og næst, þegar þú hittir vinkonu þína, skaltu segja við hana eitthvað á þessa leið: Mikið var ég fegin, að þú skyld- ir fara með stráknum mínum! Ég var orðin svo dauðleið á hon- um, en vissi bara ekki, hvernig ég ætti að losna við hann . . . Nei, vinurinn, ég fer ekki á fæt- ur. Það er hátíðisdagur í dag, afmælisdagur A1 Capones...! X EG KÝS Ballerup HRÆRIVEL Hún hjálpar mér við að HRÆRA — ÞEYTA — HNOÐA — HAKKA — SKILJA SKRÆLA —< RÍFA — PRESSA — MALA — BLANDA MÓTA — BORA — BÓNA — BURSTA — SKERPA Ballerup ’&aMe&v-- HAND- hrærivél Fæst með standi og skil. Mörg aukatæki |*FALLEGAR *VANDAÐAR |*FJÖLHÆFAR Ballina r NÝ khi ' AF H lNÝ BRAGI RÆRIVf AFBRAI DS ’ :L 3ÐS i L TÆKNI J STÓR-hrærivél 6S0 W. Fyrir mötuneyti, skip og stór heimili. ÁBYRGÐ OG TRAUST VIÐGERÐAR- ÞJÓNUSTA * Elektrónisk hraðastilling * Sama afl á öllum hröð- um * Sjálfvirkur tímarofi * Stálskál * Hulin raf- magnssnúra: dregst inn í vélina * Mjög öflugur 400 W mótor !:i Yfirálagsöryggi * Beinar tengingar allra aukatœkja * Tvöfalt hringdrif. SÍMI 2 4420 - SUÐURGÖTU 10 - REYKJAVlK. Sendið undirrit. mynd af Balfcrup hrærivél með nánari upplýsingum, m.a, um verð og greiðsluskilmála NAFN ...................................................... HEIMILI .................................................. TIL Fönix S.f. pósthólf 1421, Reykjavík 45. tbi. VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.