Vikan


Vikan - 09.11.1967, Qupperneq 45

Vikan - 09.11.1967, Qupperneq 45
yfir naggrísinn. — Honum er svo kalt. Er fólkinu ajltaf svona kalt, þegar það deyr? Adrienne lagði handleggina ut- an um axlir drengsins og þrýsti honum að sér. Hún laumaðist til að taka naggrísinn af honum og leggja hann á gólfið. — Þér er ískalt á höndunum Jamie. Ég er með bílinn fyrir utan. Við verð- um að fara heim, þegar í stað. Hún fann að iakkinn hans var gegnvotur. — Pabbi þinn er líka að leita að þér, Jamie. Hann verður bálreiður, þegar hann fær að vita hvar þú hefur verið. — Ég ætlaði að jarða Cuth- bert. — Ég er með litla kistu handa honum. Ég ætla að grafa hann hérna í þessu horni. Og enginn nema ég og þú mega vita um það. Ég get ekki farið heim fyrr en ég er búinn að jarða Cuthbert. Það var auðséð á svip hans að það þýddi ekki að mögla. Hótun um föðurlega reiði og hverskon- ar refsingu mundi ekki hrína á honum fremur en vatn á gæs, fyrr en hann hefói lokið verki sínu. Varlega og af mestu um- hyggju lagði hann lífvana lík- ama Cuthberts í kassann, hutdi hann með mosa, sem hann skrap- aði af gólfinu og kom „kistunni“, fyrir í lítilli gröf, sem hann hafði tekið upp við vegginn. Þegar hann hafði lokað gröfinni tók Adrienne rösklega í hendina á honum og leiddi hann að bílnum. Tuttugu mínútum síðar sat hann í hægindastólnum fyrir framan arineldinn í bókastofunni, með fæturna í fati með heitu vatni. Martha Hart tók vota sokkana hans og reis á fætur. — Ég þurrka þetta í eldhúsinu, muldr- aði hún og gekk til dyra. — Ég hellti koníaki í glas handa þér og sloppurinn þinn liggur þarna á stólnum. Adrienne. Farðu úr hessum votu fötum undir eins. Ég mundi hafa fataskipti, áður en ég færi til Westbury, ef ég væri í þínum sporum. Adrienne fylgdi ráðleggingum hennar og dró svo stól að sím- anum. Martin Westbury var ekki heima, en gjallandi konurödd gaf unplýsingar um að það væri hægt að ná sambandi við hann í gegn- um lögreglustöðina. Liögreglu- þjónninn sem var á vakt var snöggur upp á lagið, en vel starfi sínu vaxinn og stundarfjórðungi síðar hringdi Martin og sagðist vera á leið til Drumbeat. Hún lagði símann á og sneri sér að Jamie, sem horfði alvarlegur á hana. — Er hann reiður? Hann var óskaplega hrædd- ur um þig. Heldurðu að þú getir útskýrt almennilega hversvegna þú varst svona óþægur? — Hann veit ekki að ég var í mýllunni — og fær ekki að vita það, nema þú segir honum það. — Það breytir ekki þeirri staðreynd að þú fórst þangað af ásettu ráði, jafnvel þótt þér hefði verið stranglega bannað að fara þangað. Það gat allt gerst. Grein hefði getað brotnað af tré og lent á þér. — Já, og þú hefðir getað dottið í ána, þegar þú fórst yfir brúna. — Nei, ekki aldeilis. Svolítill vindur getur ekki fellt mig. Ég er sterkur. Sjáðu bara. Jamie rak út annan handlegginn, krepptan um olnbogann og kreppti hnefann. -— Finndu vöðv- ana. — Finndu hér, sagði hann, við Mörthu Hart, þegar hún kom inn með glas af heitu límonaði. Með hinni hendi þreif hann glas- ið feginsamlega og Martha káf- aði á kúlunni á upphandlegg hans. — Þetta er næstum eins hart eins og handleggurinn á pabba, grobbaði hann. — Þú færð áreiðanlega tæki- færi til að reyna afl við hann, þegar hann hefur fullvissað sig um að þú ert heili á húfi, spáði Martha með ógnþrunginni röddu. Það sljákkaði ofurlítið í Jamie. — Hvernig gaztu vitað hvar ég var? — Ég vissi það ekki, ég leit- aði fyrst í garðhúsinu og þegar Cuthbert var þar ekki, grunaði mig hvað gerst hafði. Jamie belgdi út brjóstið. — Þú hefur sjálfsagt haldið að ég sæti og væri að grenja, þegar þú fannst mig, en ég var ekki að því. Hann strauk lokk frá enn- inu. •— Ég hef víst bara kvefast svolítið. Adrienne tók upp vasaklút og þurrkaði kinnar hans. — Nei, það datt mér ekki í hug að þú gerðir, stórir strákar gráta ekki. Jamie leit undan. — Nei, ég grenja minnsta kosti ekki. Ég vældi ekki einu sinni þegar ég meiddi mig á fætinum, jafnvel þótt þú helltir á hann þessu vonda, brúna vatni, sem svíður svo helvíti undan. Hann tók eftir ásökunaraugnaráði hennar. —- Mig svíður að minnsta kosti anzi mikið. Ég er viss um að ég myndi ekki einu sinni grenja þótt ég hálsbryti mig. Martha og Adrienne skiptust á augnaráði. — Kannski ættirðu að senda Jamie út í eldhúsið aftur. Ég get gefið honum svo- lítið að borða, áður en pabbi hans kemur. — Ég er ekke!rl sérstaklega svangur. Jamie þurrkaði sér um fæturna og trítlaði berfættur að stól Adrienne. — Eins og þú vilt, sagði Martha. — Ég get ekki boðið upp á annað en beikon og eggja- hræru. Það var eins og orðin héngu í loftinu, þegar hún var farin, og gæfu frá sér yl eins og hinn freistandi réttur sjálfur. — Mér þykir nú beikon og eggjahræra gott, sagði Jamie. -— Ég veit það. Það er aldrei neitt eftir, þegar þú hefur verið hér. Adrienne reis á fætur, gekk að skápnum fyrir aftan dyrnar. Framhald á bls. 48. 00X3 Skin Cream NOXZEMA skin cream hreinsar, græðir, og ver húð yðar betur enn flest önnur krem. Húðsérfræðingar með NOXZEMA kremi. mæla skinn Ummæli snyrtifræðinga nokk- urra þekktra kvennablaða: Noxzema skin cream . . fró- bært .... berið það á andlitið, nuddið því þétt inn í húðina með fingurgómunum, skolið síð- an með volgu vatni, það gegnir fleiri hlutverkum, svo sem næt- ur- og dagkrem, og undir make- up. .... She. Græðir bólur og rispur, Noxzema skin cream verndar húðina og hreinsar vel, það er dásamlega áhrifaríkt á allan hátt. .... The Queen. Létt og fitulaust, hreinsar vel, gott sem daga- og næturkrem og undir make-up, heldur húðinni mjúkri og rakri, og er fljótgræðandi. .... Woman's Cronicle. Noxzema skin cream, fæst í öllum lyfja- og snyrtivöru- verzlunum. Heildsölubirgðir: FRIÐRIK BERTELSEN Laufásvegi 12. — Sími 36620. 45. tbi. VIKAN 45

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.