Vikan


Vikan - 14.11.1968, Page 2

Vikan - 14.11.1968, Page 2
Fyrir rúmum tíu árum buðu Samvinnutryggingar.fyrst allra tryggingafélaga hér á landi, HEIMILISTRYGGINGU, og nú er’hún talin sjálfsögð trygging fyrir heimilið og fjölskylduna. HEIMILISTRYGGING tryggir allt innbú fjölskyldunnar fyrir tjónum af völdum bruna, vatns, innbrota og þjófnaðar. Húsmóðirin og börnin eru slysatryggð gegn varanlegri örorku og ábyrgðartrygging fyrir alla fjölskylduna er innifalin. HEIMILISTRYGGING er ódýr, kostar frá kr. 300,00 á ári, og hún er hagkvæm fyrir allar fjölskyldur. ÁRMÚLI 3 * SÍMI 38500 SAMVIIMMJTRYGGIINGAR Oviðráðanleg ábyrgð Mönnum er í fersku minni dómurinn um séneverbátinn úr Grindavík, sem dæmdur var af eiganda sínum þótt sá góði maöur hefði hvcrgi ná- lægt smyglinu komið og sjálf- sagt aldrei látið sér detta í hug, að hægt væri að fleyta koppnum til Hollands hvað þa heim aftur. Oþaríi er að riíja upp viðbrögð fólks við þeim dómi eða hvern enda hann fékk. En cr ekki tímabært að hyggja ögn að því, hvort lög um ábyrgð margs konar séu ekki úrelt og ranglát? Ég fæ íil dæmis ekki betur skilið, en eigandi trésmíðaverkstæð- is með 100 manns í vinnu sé ábyrgur, ef einhver strákgop- inn tekur vélsög og rekur hana í rassinn á kumpáni sín- um til ao sjá hvernig honum verður við. Ég fæ ekki betur séð, en eigandi bifreiðar sé ábyrgur, ef steinn hrekkur undan hjóli bílsins og veldur skaða á nálægu verðmæti. Mér er sagt, að jarðareigandi sé ábyrgur, ef strákur ganar í hugsunarleysi upp á súr- heysturn á býli jarðareigand- ans og dettur ofan í turninn, þótt eigandinn hafi hvergi verið nærri né fengið rönd við reist. Mér skilst. að ef sjó- maður meiðir sig eða verður fyrir búsifjum af því að skip- ið fær á sig sjó og illviðri, sé eigandi skipsins ábyrgur gagnvarl því. Og þannig mætti lengi telja. Gæti ekki margnefndur ódómur um séneverbátinn orðið til þess, að öll lög um ábyrgð séu endurskoðuð með tilliti til þess, að þar séu ekki fráleitar ábyrgðarkröfur á hendur mönnum, sem ómögu- lega geta verið með nefið svo nærri, að þeim sé kleift að koma í veg fyrir óhöppin? Á sama hátt og gera verður kröfu til allrar réttmætrar ábyrgðar einstaklinganna, hljóta einstaklingarnir að krefjast þess, að þeim sé ekki lögskipuð meiri ábyrgð en unnt er að standa undir. V 'J 2 VIKAN 45-tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.