Vikan - 14.11.1968, Blaðsíða 3
r
á
K
VIKIi BRDS
' ^
.. .. « v' 'i V
> - * ;> 1 ;\:
íSiwSna*'
V
1
f \ í) (f ’h M í fr á
"'l h ft \ f
A-
IÞESSARIVIKU
Hann vill ekki berjast, hann
segist vilja semja!
Bls. 4
Bls. 6
Bls. 8
Bls. 12
Bls. 14
Bls. 16
BIs. 18
Bls. 22
Bls. 24
Bls. 29
Bls. 46
FRANSKUR BALLON UPP I HEIÐHVOLF....
PÓSTURINN .........................
DREKAMERKIÐ .......................
SAGAN AF MANNINUM MEÐ GULLHEILANN
SAGA FORSYTE.ETTARINNAR ...........
ONASSIS ...........................
SVO GEFUR ÞÚ MÉR SÍGARETTU, MONSIEUR
SÆLURÍKI FRÚ BLOSSOM ..............
SAGA BÍTLANNA .....................
ALÍSA .............................
VIKAN OG HEIMILIÐ .................
t>AÐ STOÐ í BLAÐINU! f
SAMNORRÆNN KLÆÐSKERI
„Hann er forstöðumaður Norræna hússins og hefur fengið
framkvæmdastjóranafnbót. í tilefni af þessu hefur hann saum-
að sér tvenn föt, önnur snotur, dökkgrá, en hin spari, dökkblá,
til að nota við hátíðleg tækifæri. . . .“
Morgunblaðið, 3. nóvember 1968.
VÍSUR VIKUNNAR:
Það virðist löngum lítið um djörfung og þor
loforð bregðast og samkomulag er rofið
og margan furðar hve fjármálaséní vor
fast og lengi hafa á verðinum sofið.
Það syfjar margan er sífellt má glíma við
sundurþykkt fólk er kvartar um lítil efni
og ríkisstjórn vor hefur löngum þann leiða sið
að láta jafnan dálítið illa í svefni.
RT. v
FORSÍÐAN:
■ arsi
I frar
riliESTO
VIKAN brá sér til Marokkó á dögunum með tvo unga les-
endur sína, en annar þeirra hlaut ferðina sem verðlaun í sum-
argetraun blaðsins. Þessi mynd er af stúlkunum í Marokkó, en
á bls. 18—21 er annar hluti frásagnar Sigurðar Hreiðars af
ferðalaginu um þessar framandi og heillandi slóðir.
VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaða-
maður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson.
Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 40.00. Áskriftarverð er 400 kr,
ársfjórðungslega, eða 750 kr. misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrir-
fram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst.
A hverjum vetri eru þing-
mennirnir og störf þeirra
undir smásjá almennings.
Sumir vilja meina, að hið háa
alþingi njóti ekki jafn mik-
illar virðingar og áður var og
þingmennirnir séu ekki skör-
ungar á borð við forvera
þeirra. Þess vegna mun mörg-
um þykja forvitnilegt að lesa
Palladóma um alþingismenn,
sem hefjast í næstu Viku.
Fjallað verður um hvern
þingmann í sérstakri grein og
tíundaðir bæði kostir hans og
gallar. Fyrsta greinin er um
forseta Sameinaðs þings,
Birgi Finnsson.
„Af stórborgum heimsins er
Glasgow sú, sem næst er Is-
landi. Hún er nær Reykjavík
en nokkur af höfuðborgum
Norðurlanda. Þangað hafa ís-
lendingar mjög sótt á síðari
árum í innkaupaferðir þær,
sem þeir eru frægir fyrir. En
líklega hafa ekki allir vitað,
að í Glasgow er meira um
glæpi og afbrot en á öðrum
stöðum. Líti maður í glæpa-
dálka brezkra blaða bregzt
varla að afbrotin sem sagt er
frá séu framin í Glasgow eða
þá að minnsta kosti af Glasg-
owbúum.“ í næsta blaði birt-
ist grein, sem heitir Glasgow
glæpahreiður Norður-Evr-
ópu.
Þá ber að nefna greinina
Fjöldagrafir og- þrælahald,
síðari hluta frásagnar um
Lettland, sem Dagur Þorleifs-
son hefur tekið saman. Þar
segir meðal annars frá
ákvörðun Stalins um að drepa
eða setja í fangelsi alla þá
íbúa Lettlands, sem hugsan-
legt var að gætu haft nokkra
forystu fyrir löndum sínum.
Smásagan er að þessu sinni
úr safni Alfreds Hitchcocks,
og að lokum minnum við á
framhaldsefni blaðsins: grein-
arnar um Onassis og Bítlana
og hina vinsælu Sögu Forsyte-
ættarinnar.
45. tw. VTTTAN 3