Vikan - 14.11.1968, Page 6
HAGSÝN
HÚSMÓÐIR
NOTAR
6pStóVEGI22-M
SÍMAR: 30ZB0-322GZ
Gólfdúkur — plast, vinyl og línólíum.
Postulíns-veggflísar -- stærðir 7'/2Xl5, 11x11 og 15x15 cm.
Amerískar gólfflísar — Godd Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar — DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baSgólfdúkur.
Málningarvörur — frá Hörpu hf., Mólning hf. og Slippfél. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi.
Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóSur — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
L_______________________________________________________________________✓
ENGLAND OG FÆREYJAR
Kæri Póstur!
Þú ert svo úrræðagóður
og vilt öllum gott gera. Mig
langar að biðja þig að gera
mér greiða. Mig langar til
að eignast pennavini í
Færeyjum og Englandi. —
Þeir mega vera á aldrinum
16—20 ára, bæði stúlkur
og drengir. En ég veit ekki,
hvernig ég á að snúa mér í
þeim efnum. Ég skrifa
bara á íslenzku. Nú langar
mig að biðja þig að koma
nafninu mínu í færeyskt
og enskt blað, ef þú getur.
Aðaláhugamál mín eru
pop-músik, ljósmyndir,
tízkuklæðnaður og hestar.
Svo hef ég mikinn áhuga
á að fara bæði til Færeyja
og Englands og vera þar í
ár og læra málin og kynn-
ast þjóðunum.
Mér finnst Vikan alveg
stórfín, sérstaklega Saga
Bítlanna og Gissur gull-
rass.
Þúsund kossar, Póstur
góður, og fyrirfram þakk-
læti fyrir svarið.
Jonný.
Það er engin leið fyrir
þig að skrifast á við Eng-
lendinga, fyrr en þú ert
orðin sendibréfsfær á
ensku. Hins vegar geturðu
skrifazt á við Færeyinga á
islenzku. Þeir geta auð-
veldlega lesið íslenzku og
skilið hana, og við getum
einnig lesið færeysku að
mestu lcyti, þótt við eigum
ekki auðvelt með að skilja
talmálið vegna óvenjulegs
framburðar. Við ráðleggj-
um þér því að skrifa
stærsta blaði Færeyja,
Dimmalættning, Þórshöfn,
og biðja þá að koma nafn-
inu þínu á framfæri. Láttu
brezka ljónið bíða, þar til
|>ú hefur lært málið.
TERTUBOTNARNIR
SVÍNAFÓÐUR?
Kæra Vika!
Ég hef skrifað þér
nokkrum sinnum áður og
þú hefur alltaf svarað mér.
Ég les alltaf Póstinn þinn
og hef gaman af honum.
Sérstaklega les ég með
áfergju allt sem snertir
einkamál lesenda þinna, en
það er sennilega af því að
ég er svo forvitinn og
hnýsinn um hagi annarra.
Mér finnst mjög fróðlegt,
þegar fólk snýr sér til þín
með vandamál sín. Og það
verður að segja þér til
hróss, að þú hefur skánað
í seinni tíð. Hér áður var
slíkum bréfum, sem skrif-
uð eru í fúlustu alvöru,
alltaf svarað með útúr-
snúningum og skætingi.
Mér fannst það alls ekki
réttlátt. Upp á síðkastið
hefur slíkum bréfum ver-
ið svarað mestan part í al-
vöru, eins og vera ber.
Litlu vandamálin kunna að
virðast fáfengileg í augum
annarra, en það hafa allir
við slík vandamál að
stríða, og þau geta orðið
býsna stór í augum manns
sjálfs.
Jæja, en sleppum þessari
þvælu. Erindið sem ég á
við þig í þetta sinn er að
segja þér sögu, sem ég
heyrði nýlega og þótti
mjög góð. Kannski er hér
um kjaftasögu að ræða, en
það þarf alls ekki að vera.
Hún gæti að minnsta kosti
verið sönn, hvort sem hún
er það eða ekki. Sagan er
á þessa leið:
Það hefur verið mikið
fjasað út af tertubotnun-
um, sem fluttir hafa verið
inn í tíð núverandi og auð-
vitað hæstvirtrar ríkis-
stjórnar, svo að öllum
kurteisisreglum sé nú fylgt.
Þessir tertubotnar hafa
ákaft verið gagnrýndir.
Þeir hafa orðið eins konar
gagnrýnistákn stjórnar-
andstöðunnar. Þessir bless-
aðir botnar hafa lítið sem
ekkert selzt og þess vegna
hljóta þeir að hafa
skemmzt í stórum stíl. Og
þá kemur rúsínan í pylsu-
endanum:
Svínahirðir, sem vinur
minn segist þekkja, og býr
fyrir austan fjall, segist um
daginn hafa fengið gefins
hjá heildsala nokkrum 400
skemmda tertubotna! Hann
sagði, að þetta væri alveg
fyrirtaks svínafóður og lof-
aði ríkisstjórnina ákaft
fyrir ótrúlega framsýni og
hugulsemi í garð svína-
ræktenda!
6 VIKAN
45. tbl.