Vikan - 14.11.1968, Qupperneq 30
DrekamerkiS
Colgate fluor
gerir tennurnar sterkari
við hverja burstun.
SPYRJIÐ TANNLÆKNI YÐAR . . .
hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate
Fluor hefur mikla þýðingu fyrir tennur yðar og
allrar f|'ölskyldunnar.
BYRJIÐ í DAG - ÞAÐ ER ALDREI OF SEINT . . .
Frá allra fyrstu burstun styrkir Colgate Fluor
tannglerunginn og ver tennurnar skemmdum.
Með því að bursta tennurnar daglega með Col-
gate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn gegn
sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög
er hætt við að eyðileggi tennurnar, ekki sízt
tennur barnanna.
iuk þess er þetta dásamlega, ferska bragö sem aðeins Colgatc Ftuor tannkrem hefur.
Framhald af bls. 11.
hefur lokið sínu meginætlunar-
verki, er auðfundinn.
Sagt er að drekakonur séu
gjarnari á að berja menn sína
en annað kvenfólk og yfirleitt
niðurlægja þá sem karlmenn,
gera þá að blauðum undirlægj-
um, sem þær hafa algerlega á
valdi sínu. Og varla er það nein
tilviljun að óvenjumargar ekkj-
ur eru í þessu merki. Þó ber við
að þetta ofríki gegn karlkind-
inni snýst við og verður að und-
irlægjuhætti. Líkt og drekakarl-
inn hefur drekakonan nautn af
að kvelja jafnt sjálfa sig og aðra.
Af þessu mætti kannski ætla
að kvenfólk fætt í sporðdreka-
merki væri slík háskafyrirbrigði
að lífshættulegt sé að koma ná-
lægt því, en svo slæmt er það
ekki. Margar þeirra eru sem
betur fer of viljasterkar til að
hinar hættulegri hneigðir þeirra
nái nokkru valdi yfir þeim. Þær
líta gjarnan á ástina sem stríð
milli jarðneskrar fýsnar og guð-
legrar upphafningar og tekst oft
með tilliti til þess að göfga hvat-
ir sínar. Sálrænn styrkur er einn
gæfulegasti eiginleiki sporðdrek-
ans.
UMBROTA-
OG BYLTINGASEGGUR
Drekamaðurinn velur sér oft-
ast starf með tvennu móti. Ann-
að hvort ákveður hann sig
snemma og telur sig hafa köll-
un til einhvers ákveðins, og þá
þýðir engum að leegja hindr-
anir í veg hans. En stundum
kemur hinn sálræni klofningur,
sem oft fylgir honum. því til
leiðar að hann á erfitt með að
velja sér starf og gerir það ekki
fyrr en í síðustu lög. Uppreisn-
areðli hans gerir þá oft að verk-
um að hann velur eitthvað ann-
að starf en föður síns.
I starfinu er hann nvög mis-
jafn, stundum nákvæmur, iðinn
og atorkusamur, stundum latur
og kærulaus. En ekki þolir hann
að aðrir skipti sér af starfshátt-
um hans, hvernig sem þeir eru.
Hann þolir engum að eyðileggja
sína hringa, frekar en Arkímedes.
Undirmönnum sínum er hann
oft náðugur, en heldur þeim þó
yfirleitt í vissri fjarlægð og und-
ir aga. Yfirmönnunum er hann
öllu erfiðari og því verri sem
þeir leggja á hann meiri hömlur.
Þá er aldrei langt í að hann spani
til verkfalla eða byltinga. Um-
brota- og byltingatímar eru mjög
að hans skapi.
Hann kann bezt við störf sem
hafa áhættu í för með sér, krefj-
ast dirfsku, nákvæmni og skarp-
skyggni. Hann vill gjarnan verða
læknir, einkum tannlæknir,
skurðlæknir eða kvensjúkdóma-
fræðingur. Þá verða drekamenn
30 VIKAN 45-tw-