Vikan - 14.11.1968, Qupperneq 41
Þessi hendi
heldur á pakka sérstaklega gerðum til þess að vernda
og halda hinum sérstæða keim gæða tóbaksins sem notað er
í Philip Morris Multifilter sígaretturnar
Gæðaframieiðsla frá Philip Morris Inc.
í allar áttir, svínaði jafnt á stóra
bíla sem litla og ætti um lands-
byggðina á 150 km hraða. Ég sat
stjarfur við hlið hans í röskan
klukkutíma og trampaði á
ímyndaða bremsu, en svo rann
honum ofurlítið reiðin. Hann
nam staðar í vegarkanti, otaði
að mér einum fingri og sagði
föðurlega.
— Mamounia kapút! Fez —
Thomasdotter. Meknes — Thom-
asdotter. Rabat — Thomasdotter.
Og til áherzlu skrifaði hann með
vísifingri og þumalfingri út í
loftið, í hvert skipti, sem hann
sagði Thomasdotter. Ég flýtti mér
að segja já á sjö tungumálum, og
eftir þetta endurheimti hann
gleði sína og ók eins og maður.
En þá voru ekki eftir nema 550
kílómetrar til Fez, og þar tökum
við upp þráðinn í næsta hluta
frásagnarinnar af verðlaunaferð
Elínar Tómasdóttur til Marokkó.
☆
Framhald af bls. 29.
Hackensack er ekki breið ó. Hún
á upptök sín uppi í sveit, eitthvað
tuttugu mílum norðar en við vor-
um núna og rennur lygn beint nið-
ur á flatneskiuna, þar sem hallinn
er svo lítill í henni að strax svo að
segja fer að gæta mismunar flóðs
og fjöru. Nokkurra mílna vegalengd
heldur þetta flóðasvæði lögun ár-
innar og liggur í ótal hlykkjum:
bakkarnir þéttsetnir verksmiðjum,
sem ausa óhreinindum og efnum
út í lygnt og fúlt vatnið og yfir
hana liggur þétt net af gömlum
járnbrautarbrúm og þjóðvegarbrúm;
síðan liggur hún út í fenin, þetta
gríðarlega stóra fenjaland, kenni-
leitalaust svæði, sem er jafn stórt
og Manhattan og rétt steinsnar
austur af Manhattan. Þegar óin
kemur út í fenin týnir hún bökkum
sínum. Þarna eru fóein mið og
baujur, en að mestu leyti verður
maður að skynja hvert förinni er
heitið, finna hvar maður er, lóta
hugboðið stjórna sér.
Þar sem við vorum núna, var
þetta ennþá ó, og ég hélt mig á
miðju þessu sundi og stýrði hægt
suðureftir. Shlakmann vildi að ég
yki hraðann og guð veit að mig
blóðlangaði til þess sjólfan, en ég
kom honum í skilning um, að það
væri heimska að þeysa ofan eftir
dimmri ó um nótt.
— Þar að auki, sagði ég, — vilj-
um við ekki vekja neina sérstaka
athygli á okkur. Það er nógur há-
vaði í mót.rnum eins og er, ef ég
gef honunr meira verður hávaðinn
eins og í flugvél.
— Þekkirðu þessa á?
— Ég bekki hana nógu vel til
þess að komast ofan í fenin, sagði
ég-
Við þrjú vorum þögul, þegar við
runnum ofan eftir ánni niður að
fenjunum. Ég sat öðrum megin í
skutnum með hendina á stjórnar-
armi utanborðsmótorsins, en Alísa
hinum megin. Einu sinni lagði hún
hönd sína yfir mína og þrýsti fast.
Ég get ekki lýst því hve þakklátur
ég var fyrir þetta merki um nokkra
fyrirgefningu, en ég sagði ekki
neitt.
Shlakmann sat frammi í stafni,
afkáralega stór og sköpulagslaus.
Ég var feginn að ég sá ekki and-
litsdrætti hans í myrkrinu; ég hafði
enga ánægju af að horfa á hann.
Brýrnar bjuggu yfir sínu eigin
lífi, þegar við fórum undir þær.
Sumar þeirra nötruðu af bílaum-
ferð. Einu sinni þaut lest yfir höfð-
um okkar, endalaus röð af myrk-
um tónum og glamrandi flutninga-
vögnum. Einu sinni hrópaði einhver
eitthvað til okkar.
En að mestu leyti vorum við í
okkar eigin heimi, heimi sem var
langt burtu frá húsaþyrpingunum,
fólkinu, verzlununum og búðunum,
sem lögðu undir sig þurrlendið í
kring. Allt þetta var langt í burtu
frá okkur og skilið frá okkur af
þessum sérkennilegu endimörkum
menningarinnar, sem heitir ár-
bakki.
Jafnvel að degi til er á eins og
Hackensack sérstæður og einstæður
staður. Á náttarþeli er hún sinn eig-
in heimur og þegar tunglið hækk-
aði á himni og breyttist úr appel-
sínugulu í silfurblátt, var áin jafn-
vel enn fjarlægari heiminum i
kring. í fyrstu glampaði tunglið á
verksmiðjunum á vestari bakka ár-
innar, en eftir þvl sem við nálg-
uðumst fenin meir tók vatnið á sig
æ meiri silfurblæ og jaðraðist sam-
an við myrkrið með draugslegri
endurspeglun. Við renndum fram
úr ármynninu út í nyrðri jaðar
fenjanna og Shlakmann sagði:
— Camber — veiztu hvar Berry's
Creek kanallinn er?
Við vorum nú á eins konar flóa,
sem er sæmilega stór í dagsbirtu
og virðist griðarlega víðáttumiki11 í
tunglsljósi, umkringdur háum, þurr-
um marhálmi, sem teygðist enda-
laust til vesturs og myndaði vegg
í austur milli okkar og Jersey járn-
brautarinnar. Þar í fjarska sáum við
Ijósin á bílunum, sem þutu eftir
þessari miklu hraðbraut og lengra,
yfir brúnni, Ijósnálina sem var turn-
inn á Empire State Building.
— Ég held ég geti fundið Berry's
Creek, að degi til, sagði ég.
— Það er ekki dagur núna.
— Ég ætla að reyna að finna
kanalinn — drottinn minn, heldurðu
að ég ætli ekki að reyna að finna
hann?
— Hve langt er héðan til Berry's
Creek?
— Ég veit það ekki. Ég benti á
fyrsta miðið og beindi athygli
Shlakmanns að því. — Þarna er mið.
Áin rennur gegnum fenin, en hún
hefur enga bakka. Ef nú væri fjara
45. tw. VIKAN 41