Vikan - 28.11.1968, Side 6
B Ú S L w 0 Ð
LUXOR
LUXOR
LUXOR SJÓNVÖRP
Háþróuð sænsk gæðavara sem hefur
sannað ágæti sitt við íslenzkar að-
stæður og áunnið sér vinsældir. Fjöl-
margar gerðir og stærðir í nýtízku
útliti.
PÓSTSENDUM MYNDIR OG VERÐ-
LISTA.
B Ú S L w 0 Ð
HÚSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATÚN — S(MI 18520
I
h-
^TjÓSAÚRVAL:
Loftljós
Veggljós
Standlampar
Borðlampar
og ýmsar
gjafavörur.
HEIMIUSTÆKI:
Frystikistur
Frystiskápar
Kæliskápar
Eldavélar
og fleira.
VERZLUNARTÆKI:
Djúpfrystir
Kæliborð
Kælihillur
Kæliklefar
í þrem stærðum
og fleira.
Sendum gegn póstkröfu.
RAFTÆKJAVERZLUN
Guðiónsson
- Suðurveri - Sími 37637
Stigahlíð 45
KLUKKNA-
HLJÖMUR ÚR
FJARSKA
Af mannlegri forvitni
eingöngu hef ég lesið hinn
nýja draumráðningaþátt
ykkar í Vikunni. Ég hef
aldrei verið mikill drauma-
maður og löngum vitnað
til hinnar frægu setningar:
„Eigi er mark at draum-
um.“ Þó hefur mig dreymt
stöku sinnum, en sjaldan
hefur mér fundizt vera vit
í „vitleysunni“. Högum
mínum er þannig háttað,
að ég ligg rúmfastur og hef
gert það núna bráðum í
heilt ár. Ég les mikið og
venzlafólk mitt hefur ekki
við að bera til mín bækur
og lesefni. Vikuna fæ ég
alltaf reglulega. Hún hefur
stytt mér margar stundir.
Nú vildi svo til um dag-
Lnn, að mig dreymdi aldr-
ei þessu vant draum, sem
ég hef ekki getað gleymt.
Þess vegna ætla ég að
gamni mínu að lofa ykkur
að heyra hann.
Ég er staddur vestur í
bæ, þar sem ég er fæddur
og uppalinn. Mér finnst ég
vera ungur drengur og er
að leika mér á bernsku-
slóðum mínum. Þess má
geta ef það skyldi hafa
einhverja þýðingu, að allt
er gjörbreytt á þessum
slóðum núna. Það er búið
að rífa gamla húsið okkar
og byggja þar nýtízkulegt
stórhýsi. Ég sit við grind-
verkið og er að leika mér.
Þá heyri ég allt í einu
daufan klukknahljóm.
Fyrst held ég, að um mis-
heyrn sé að ræða. En það
er ekki um að villast. Ég
heyri greinilega í kirkju-
klukkum, en það er eins
og þeir hljómi úr miklum
fjarska. Mér þykir þetta
undarlegt og hleyp inn til
móður minnar og segi
henni frá þessu.
„Þetta er misheyrn hjá
þér,“ segir hún. „Þú getur
ekki hafa heyrt í klukk-
um. Klukkan er ekki nema
klukkan sex, sem þeir ka-
þólsku hringja klukkunum
í Landakoti."
Ég fer aftur út og er
leiður yfir þvi, að móðir
mín skyldi ekki trúa mér.
Þá heyri ég enn þennan
sama, daufa klukknahljóm.
Ég hleyp aftur inn og segi
talsvert önugur við móður
mína:
„Víst er verið að hringja
einhvers staðar. Ég heyrði
það aftur núna.“
„Láttu ekki svona,“ seg-
ir hún og er orðin reið.
„Þetta hlýtur að vera ein-
hver misheyrn hjá þér.“
Ég vil ekki sætta mig við
þessi málalok og bið móð-
ur mína að koma með mér
út og vita, hvort hún heyri
ekki klukknahljóminn
lika.
Hún gerir það. Við
stöndum tvö við grind-
verkið. Og viti menn! Við
heyrum bæði skýrt og
greinilega klukknahljóm
úr fjarska.
Móðir mín brosir og
segir:
„Guði sé lof! Þetta er
rétt hjá þér. Þeir eru að
hringja."
Hún lagði sérstaka á-
herzlu á ,,þeir“.
Að svo búnu vaknaði ég.
Með beztu kveðjum og
von um skjóta afgreiðslu.
P.S. Móðir mín lézt fyrir
nokkrum árum.
S. V. P.
Þetta er mjög góður og
hagstæður draumur. Það
er enginn vafi á því, að
hann táknar umbót á hög-
um þínum. Og þar sem þú
hefur legið rúmfastur
lengi, getur hann táknað,
að þú komist loksins á fæt-
ur aftur og fáir fulla
heilsu. Þegar menn dreym-
ir bernsku sína boðar það
mikla hamingju og við get-
um ekki séð, að þaö breyti
neinu, þótt bernskuslóðir
þínar séu nú orðnar gjör-
breyttar. Ef eitthvað er að
marka drauma, muntu eiga
bjartari daga í vændum.
GENGIÐ í KIRKJU
Kæra Vika!
Þetta er í fyrsta sinn sem
ég skrifa þér og mig lang-
ar til að biðja þig að ráða
draum, sem mig dreymdi
í nótt. Hann er svona:
Ég er að ganga í kirkju
ásamt systur minni. Kirkj-
6 VIKAN 47-tbI-