Vikan - 28.11.1968, Qupperneq 7
DAGLEGT: HEILSUFAR
TAUGAVEIKLAÐ
FÖLK ÆTTI AÐ
VARAST RAUÐA
LITINN
fnnanhússarkitektar segja
akkur oft að við eigum að
umeangast liti á heimilum
ukkar með varúð. Fram til
bessa hefir manni helzt
dottið í hug að það sé
vegna þess að þessi og hinn
liturinn sé fallegri en hinn
og fari betur. En að litirnir
í umhverfi okkar hafi á-
hrif á andlega heilsu, séu
þess megnugir að stuðla að
góðu hjónabandi, eða
eyðileggja gott hjónaband,
geti verið orsök höfuðkvala
og hækkandi blóðþrýstings,
og að uppáhaldslitur okk-
ar geti upplýst annað fólk
um það hvaða manngerð
við erum, hefði engum
dottið í hug hér áður og
fyrr.
Nýlega birtu nokkrir há-
skólar í Bandaríkjunum
skýrslur um rannsóknir
sínar á þessu sviði. Hér
eru nokkrar af niðurstöð-
um þeirra:
Konur eru næmari fyrir
litum en karlmenn; þær
taugaveikluðu og tilfinn-
inganæmu frekar en þær
rólvndu. Það eru sérstak-
lega rauðir og blágrænir
litir sem hafa áhrif á okk-
ur. í herbergi, þar sem
rauði liturinn er ríkjandi,
er hægt að búast við
fimmföldum áhrifum: —
Blóðþrýstingur hækkar. 2.
Vöðvaviðbrögð verða
sneggri. 3. Eirðarleysi ger-
ir vart við sig. 4. Óþæg-
inda gætir fyrir umhverf-
inu. 5. Tíminn virðist lengi
að líða.
Taugaveiklað og yfir-
spennt fólk ætti að varast
sem mest rauða liti á heim-
ilum sínum. Grænir og blá-
ir litir eru mikið æskilegri,
þeir eiga að hafa róandi á-
hrif á taugarnar. (Saman-
ber „græna borðið“).
Einn liður . af þessum
rannsóknum var á þá leið
að tvö herbergi voru búin
nákvæmlega eins, að öðru
leyti en því að í öðru voru
allir litir daufir, nærri út-
vatnaðir, en í hinu bjartir
og hressandi.
Fólkið sem sett var í það
fyrrnefnda, átti það til að
vera óánægt, þreytt og
þrætugjarnt, jafnvel hat-
ursfullt; en 1 síðarnefnda
herberginu varð þetta sama
fólk glaðlegra, fannst yfir-
leitt allt í sómanum með
lífið og tilveruna.
Ennfremur segir í skýrsl-
unum að uppáhaldslitur
segi töluvert um lyndisein-
kenni og persónuleika okk-
ar. Stúdentunum, sem
hafðir voru til rannsókna
var skipt í tvo hópa, þá,
sem kusu daufu litina, og
aðra, sem meira voru fyr-
ir bjarta og hreina liti.
f fyrrnefnda hópnum
voru aðallega innhverfir
einstaklingar, þ.e.a.s. þeir
sem kjósa að lifa í sínum
eigin hugarheimi, og eiga
erfitt með að semja sig að
siðum annarra. Þessi hóp-
ur hafði tilhneigingu til að
vera dómaharður, tor-
trygginn og ákaflega ó-
raunsær.
Hinir, sem heldur kusu
hreinu og björtu litina,
reyndust raunsærri, meiri
félagsverur, voru ekkert
fyrir heimspekilegar íhug-
anir. En þeir höfðu líka
ákveðnari skoðanir um líf-
ið og tilveruna.
Hvað er þá að segja um
fólkið, sem ekki hefir mik-
ið litaskyn?
Ja, eftir rannsóknunum
er það ekki sérlega upp-
örvandi að heyra þeim
hópi til. Sálfræðingarnir
segja að það sé yfirleitt
fólk sem hefur niðurbæld-
ar tilfinningar, fólk, sem
er smásmugulegt og ná-
kvæmt í allri framkomu,
og í samskiptum við aðra,
en er yfirleitt ekki í jafn-
vægi.
Sama er að segja þegar
um fatnað er að ræða. Þeir
sem kjósa skæra og glað-
lega liti eru yfirleitt rólegt
og ánægt fólk.
Gráir og svartir litir hafa
dapurleg áhrif, en litir
náttúrunnar lyfta geðinu.
Það er vitað mál að flest-
ir verða hressir og kátir,
þegar sólin skín í heiði og
Framhald á bls. 48.
HOOVER
KEYMATIO DE LUX 91
Nýjasta gerS, sjálívirk þvottavél með
16 þvottaaðferðum
Hoover þvottavélar 8 gerðir
Hoover kæliskópar 5 gerðir
Hoover ryksugur 8 gerðir
Hoover bónvélar 2 gerðir
Hoover rafmagnsofnar 3 gerðir
Hoover straujórn Hoover uppþvottavélar Hoover hórþurrkur Hoover hrærivélar Hoover teppaburstar Hoover eldavélahimnar 3 gerðir
Hoover vörurnar fóst í Hoover-kjallaranum, Austurstræti 17, Reykjavík,
sími 14376.
Einnig víða í verzlunum úti á landi.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta að Hverfisgötu 72, sími 20670.
Einkaumboð:
MAGNÚS KJARAN
Umboðs- & heildverzlun
47. tbi. VIKAN 7