Vikan - 28.11.1968, Page 9
Loksins hillir undir þá langþráðu stund, er
Akureyringar geta sezt við sjónvarpstækin
sín og séð eitthvað annað en stillimyndina.
Stefnt er að því, að sjónvarpið nái til Norð-
urlands fyrir jól, og sérstök dagskrá er þeg-
ar tilbúin til að fagna þeim degi. Hún er
að sjálfsögðu helguð Akureyri og Norður-
landi.
„Vor Akureyri" nefnist skemmtiþáttur
með hinni vinsælu hljómsveit Ingimars Ey-
dal, og stjórnaði Andrés Indriðason upptöku
hans. Þátturinn er tekinn á ýmsum stöðum
á Akureyri, Ráðhústorginu til dæmis og víð-
ar. Þetta er í fyrsta skipti, sem sjónvarpið
tekur skemmtiþátt eingöngu á kvikmynda-
filmu, en eklci á myndsegulband í stúdíói
eins og oftast hefur verið.
Hljómsveit Ingimars Eydal er þegar orðin
kunn sj ónvarpsnotendum hér sunnanlands af
mörgum góðum þáttum, sem hún hefur flutt.
En nú gefst heimamönnum loksins tækifæri
til að sjá sína ágætu hljómsveit á skermin-
um. Hljómsveit Ingimars Eydal leikur í hin-
um nýja þætti sínum vinsæl dægurlög, bæði
gömul og ný, og söngvarar eru sem fyrr Þor-
valdur Halldórsson og Helena Eyjólfsdóttir.
Textinn við inngangslag þáttarins er gerður
af Kristjáni frá Djúpalæk og hendir hann
góðlátlegt gaman að höfuðstað Norðurlands
og íbúum hans. Fyrsta erindið er þannig:
Vor Akureyri er öðrum meiri
með útgerð, dráttarbraut og Sjallans paradís.
Við höfum Lindu, við höfum KEA
og heilsudrykkinn Thule, Amaro og SÍS.
Þá hefur sjónvarpið látið gera þrjá aðra
þætti um Akureyri, sem teknir voru undir
stjórn Magnúsar Bjarnfreðssonar. Sá fyrsti
er yfirlitsþáttur um bæinn, og verður hann
væntanlega fluttur kvöldið, sem sjónvarpið
sést fyrir norðan. Annar þátturinn mun fjalla
um skáldahúsin þrjú, Nonnahúsið, hús Matt-
híasar Jocumssonar og Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi. Þriðji þátturinn verður um
iðnaðinn á Akureyri.
Einnig er líklegt, að Stundin okkar flytji
efni frá Akureyri, og sitthvað fleira verður
ugglaust á boðstólum til þess að gera Norð-
lendingum fyrsta sjónvarpskvöldið sem
ánægjulegast.
☆
Kvikmyndatökumaðurinn liggur í grasinu og tekur
atriði, sem fer fram rétt við flugvöllinn á Akur-
eyri. (Ljósmyndir: A. I.).
Helena Eyjólfs-
dóttir hvílir sig á
milli atriða.
Þorvaldur og
Helena syngja
hið vinsæla,
danska lag „Lille
sommerfugl“.
Þótt þau standi
við fuglabúr má
ekki halda, að
þau viti ekki, að
sommerfugl þýðir
fiörildi á dönsku.
47. tbi. VIKAN 9