Vikan


Vikan - 28.11.1968, Side 12

Vikan - 28.11.1968, Side 12
Eftirfarandi uppskriftir geta verið tilbreyting með gomiu uppskrift- unum í jólabaksturinn. Smákökur, tertur og mótkökur. Veljið 3—4 smákökutegundir 1 jólabaksturinn og ef um nýja upp- skrift er að ræða þá borgar sig að prófa lítinn hluta fyrst og ákveða þá hvort hún verði fyrir valinu. Smákökur er sjálfsagt að baka fyrri hluta desembermánaðar sér- staklega þær sem geymast vel eins og t. d. hnoðaðar kökur, einkum kryddkökur. Kökukassamir eru þá límdir aftur með glæru límbandi svo að þeir verði alveg loftþéttir. Athugið að sumar uppskriftanna eru mældar í desilítrum en hér kemur þunginn í grömmum; 1 dl af hveiti vegur 55 gr, hrís- mjöli 60 gr, kartöflumjöli 70 gr, haframjöli 40 gr og strausykri 90 gr. Það er góður og sjálfsagður siður að baka eina prufuköku áður en full plata er látinn í ofninn bæði til að athuga hitann og eins ef eitthvað hefur gleymzt í kökurn- ar. Hnoðaðar tertur er einnig bezt að baka nokkru fyrirfram, en hrærðar mótkökur og tertur þurfa að vera nýbakaðar og eru því bak- aðar síðustu dagana fyrir jól og milli jóla og nýjárs þær, sem borða á um áramótin. Smákökur með súkkati. 250 gr hveiti, % tesk. hjartarsalt, 125 gr smjörlíki, 125 gr sykur, 1 egg, 2—3 matsk. mjólk. Hveitið er sáldrað með hjartar- saltinu, sykrinum blandað saman við og smjörlíkið mulið í. Vætt í með egginu og mjólkinni. — Hnoð- að í mjóar lengjur sem síðan er skipt í bita og mótað í litlar kúl- ur. Súkkatið er skorið í ferkant- aða bita og er einn látinn á miðju hverrar köku. Bakaðar ljósbrúnar við góðan hita. Litlar kryddkökur. Kft 125 gr smjörlíki, 125 gr sykur, 1 lítið egg, 1 sléttfull tesk. matar- sódi, Yz tesk. engifer, % tesk. kardemommur. % tesk. kanell, hvítur pipar á hnífsoddi, 250 gr hveiti. Smjörlíkið er hrært lint og síðan með sykri og eggi þar til það er létt og ljóst. Hveitið er sáldrað með lyftiefninu og kryddinu hrært saman við, hnoðað. Kælt. Mótað og bakað á sama hátt og smákök- ur með súkkati. (Sjá meðf. mynd). Aprikósukökur. 300 gr hveiti, 100 gr flórsykur, 1 tesk. lyftiduft, 1 tesk. rifið sítr- ónuhýði, 175 gr smjörlíki, 1 egg, 1 tesk. rjómi. FYLLING: 175 gr þurrkaðar aprikósur (lagðar í bleyti daginn áður í 2 dl af soðnu vatni), 150 gr sykur, 1 tesk. van- illusykur, 1 matsk. sherry. Deigið er hnoðað á venjulegan hátt. Kælt. Breitt út fremur þunnt. Skorið með glasi eða kringlóttu móti. I helminginn af kökunum eru stungin 1—3 göt eftir því sem hverjum þykir fallegast. Kökurnar eru bakaðar á vel smurðri plötu þar til þær eru ljósgular og stökk- ar (ca. 250 gráðu hiti). Teknar strax af plötunni og kældar. Aprikósurnar eru soðnar í vatn- inu þar til þær eru meyrar, þá eru þær marðar í gegnum gatasigti. Hitaðar með sykrinum, þar til hann er bráðinn. Vaniljusykurinn látinn í og þegar maukið er kælt, er það bragðbætt með sherry ef það er fyrir hendi. — Bezt er að leggja kökurnar saman nokkru áð- ur en þær eru bornar fram. Þær eru því geymdar í vel lokuðum kökukassa, en maukið í krukku eða plastíláti (geymist bezt í ís- skápnum). Franskar piparkökur. 150—200 gr möndlur, 250 gr smjörlíki, 2Mt dl sykur, V/2 dl sýr- óp, 2—3 tesk. kanill, 1—iy2 tesk. negull, 2—3 tesk. engifer, 1 tesk. kardemommur, 1—1 tesk. matar- sódi, 1 tesk. vanilja, 600 gr hveiti. Möndlurnar eru settar í sjóðandi vatn, flysjaðar og saxaðar smátt. Smjörið er hrært lint ásamt sykri, sýrópi og kryddi, þar í matarsód- inn, sem áður er hrærður út í vatni. Síðast er hveiti og möndlum blandað út í og deigið hnoðað í tvær þykkar rúllur, sívalar eða kantaðar. Látið bíða á köldum stað 1—2 daga. Þá skorið í þunnar sneiðar, sem settar eru á smurða plötu og bakaðar við ca. 200—250 gráðu hita. Kökurnar geymast mjög vel í lokuðum kassa. Ódýr marengs. 2 eggjahvítur, 4 dl sykur, 2 te- sk. vaniljusylcur, 1 tesk. hjartar- salt, 4 matsk. kartöflumjöl. Eggjahvíturnar eru þeyttar þar til þær eru vel stífar, sykrinum blandað saman við ásamt kart- öflumjölinu, sem áður er sáldrað með þjartarsaltinu. — Látið með skeið á vel smurða plötu, með góðu millibili þar sem kökurnar renna út við baksturinn. Hiti er hæfileg- ur um 150—175 gráður. Kúrenukökur. 500 gr hvciti, 250 gr sykur, 1 te- 1 tesk. vanilja, 350 gr smjörlíki, 1 sk. matarsódi, V/i tesk. lyftiduft, 1 bolli kúrenur, 2 egg (stór). Deigið er hnoðað á venjulegan hátt. Látið bíða á köldum stað um stund. Flatt út fremur þykkt, tek- ið undan litlu glasi eða móti og bakað við góðan hita, þar til kök- urnar eru fallega ljósbrúnar. Súkkulaðikökur. 200 gr smjörlíki, 100 gr sykur, 100 gr púðursykur, 2 egg, 250 gr hveiti, 1 tesk. lyftiduft, y2 tesk. matarsódi, 1 tesk. vanilja, súkku- Smjörlíkið er hrært með sykri og púðursykri. Eggjunum hrært saman við og hveitið sem áður er sáldrað með lyftidufti og matar- sóda ásamt vaniljunni. Súkkulaðið er saxað fremur smátt, nokkuð af því látið í deigið, sem er sett með teskeið á vel smurða plötu og súkkulaðimola stungið í miðju hverrar köku. Bakað við góðan hita. Þegar kökunum er raðað f kassa er gott að láta smjörpappír milli laganna. Súkkulaðikökur með appelsínubragði. 100 gr smjörlíki, 100 gr flórsyk- ur, 1 egg, 3 matsk. rjómi, 75 gr kartöflumjöl, 50 gr hveiti, y, tesk. iyftiduft, 1 tesk. kanell. Rifið hýði af einni appelsínu, 100 gr súkku- laði. Deigið er hrært á sama hátt og áðurnefndar súkkulaðikökur. App- elsínubörkurinn er látinn í síðast. Einnig er gott að hafa saxaðar rús- ínur og möndlur í þetta deig. Mót- að og bakað eins og áður en nefnt. S ú kk u 1 að ikók oskök u r. 3—4 egg (ca. 200 gr), 250 gr syk- ur, 250 gr kókósmjöl, 50 gr hveiti, 30 gr kartöflumjöl, ca. 150 gr súkkulaði. Eggin eru aðskilin og rauðurnar hrærðar með sykrinum, þar til þær eru ljósar og léttar, kókós- mjólinu blandað þar 1 ásamt hveiti og kartöflumjöli, sem áður er sáldrað. Síðast er súkkulaðið skaf- ið út í og stífþeyttar hvíturnar skornar varlega 1 til að sem mest lyfting verði 1 deiginu. Mótað með teskeið í meðalstórar kökur, sem bakaðar eru við hægan hita ljós- gulbrúnar. Brúnar jólakökur. 250 gr sýróp, 50 gr púðursykur, 2 dl mjólk, ca. 500 gr hvciti, 100 gr kartöflumjöl, 150—200 gr smjör cða smjörlíki, 1 tesk. pipar, 1 tesk. cngifcr, 1 tesk. negull, 1 tesk. mat- arsódi, 1 tcsk. hjartarsalt, (örlítill anis ef vill). Sýróp, sykur, smjörlíki og mjólk er hitað saman í potti. Kartöflu- mjölið, hveitið lyftiefnin og krydd- ið er sáldrað saman og hrært út í smátt og smátt. Hnoðað, látið bíða til næsta dags. Breitt þunnt út, skorið undan kringlótlu eða stjörnulöguðu móti í kökur sem eru penslaðar með vatni og hálf mandla sett á miðju hverrar köku. Bakaðar á vel smurðri plötu við meðal liita. Piparhnetur. 125 gr sýróp, 150 gr smjörlíki, 1 egg, 125 gr sykur, 1 tesk. sítrónu- dropar eða rifið hýði af 1 sítrónu, 1 tesk. pipar, 1 tesk. negull, 1 te- sk. engifer, 300 gr hvciti, 1 tesk. matarsódi. Sýrópið og smjörlíkið er hitað saman. Kælt. Kryddið látið saman við, eggið er þeytt með sykrinum og hveitið sáldrað með matarsód- anum. Allt hnoðað saman, í fingur- þykkar lengjur, sem skornar eru í bita og rúllaðar í kúlur (dálítið flatar). Bakaðar við meðalhita þar 12 VIKAN 47. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.