Vikan


Vikan - 28.11.1968, Side 25

Vikan - 28.11.1968, Side 25
EFTIR HUNTER DAVIES NIÐURLAG EINKARÉTTUR Á ISLANDI VIKAN „En aðdáendaskarinn var um tíma orðinn hrein- asta plága,“ segir Elsie. „Hamagangurinn var að verða með öllu óþolandi. En nú er þetta miklu betra. Samt eiga strákarnir enn í erfiðleikum vegna hinna ótrúlegu vin- sælda þeirra. Eg hef séð Ringo sitja hér inni og bíða, þar til dimmt yrði. Hann þorði ekki að fara út fyrir hússins dyr meðan bjart var. Eg sá á svip hans, að honum leið fjarska illa. En það verður eklci á allt kosið í veröldinni, eða hvað? Hér fáum við sem betur fer að vera í friði nú orðið. Hér er kyrrlátt. Eg er því mjög mótfallin að láta á mér bera. Þessir eilífu blaðasnápar fóru í taugarnar á mér, og ég átti stundum bágt með að þola hnýsni og frekju bláókunnugs fólks.“ Foreldrum allra Bítlanna er í nöp við blaðamenn, jafnvel hr. og frú Harrison. Blaðamenn fá aldrei að eiga viðtöl við þá. Ummæli þeirra hafa oft verið rang- túlkuð og liafa orðið sonum þeirra til ills eins. „Mér finnst þetta allt hafa verið mjög óraunverulegt,“ segir Elsie. „Síðustu fimrn árin hafa sannarlega verið ævintýri likust. Bítlarnir hafa náð eins langt og liægt er . En hvað verður um þá í framtíðinni? Eg hef enn áhvggjur af Ringo. Eg hef áhyggjur af heilsu hans, eftir allt það sem hann hefur þurft að ganga í gegnum. Ég veit, að liann er nú fullorðinn maður, kvæntur og á sín eigin börn. Samt. hef ég áhyggjur af honum.“ Sautjándi lcajli BÍTLARNIR NÚ Á DÖGUM 'A' Jolin. Áður en Jolm skildi við konu sína, Cyntiu, síðastlið- ið sumar, bjó hann í stóru einbýlishúsi i Weybridge í Surrey. Það kostaði 20 þúsund pund, og liann eyddi öðru eins með því að breyta því og lagfæra eftir sínu höfði. Hann viðurkennir, að hann hafi eytt alltof miklu í hús- ið sitt, og líklega muni hann ekki geta selt það aftur nema fyrir hálfvirði. Þau höfðu sérstakan garðyrkju- mann, vinnukonu, sem hét Dot, og bílstjóra, sem hét Anthony. I þessu stóra og dýra húsi var hver stássstofan inn af annarri. Allar voru þær bjartar og búnar dýrum hús- gögnum; verkuðu eins og nýjar og ónotaðar, enda voru þær sýnilega notaðar sem eins konar gangar, sem menn gengu í gegnum, þegar farið var inn í húsið eða út úr því. Fjölskyldan hélt til í lítilli stofu innst. Einn vegg- ur hennar var allur úr gleri og vissi út í garðinn. John, fyrrverandi kona hans, Cyntia, og sonur þeirra, Julian, voru nær alltaf í þessari stofu eða eldhúsinu. Allur lúx- usinn umhverfis þau virtist vera þeim óviðkomandi. Cyntia eldaði matinn sjálf, en öðru hverju hitaði Jolm te handa þeim á kvöldin. Einnig gætti hún Jidians 47. tbi. VIKAN 25

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.