Vikan - 19.12.1968, Blaðsíða 4
3opp «15
Mottavélar
Zoppas uppþvoftavélin getur bæði staðið frítt á gólfi (hún er á
hjólum) eða verið byggð inn í eldhúsinnréttinguna.
Vélin tekur fyrir 6—8 manns með pottum og getur tekið inn á sig
annað hvort heitt eða kalt vatn.
Zoppas vélarnar eru ítalskar, framleiddar í samvinnu við banda-
rískt heimilisfyrirtæki.
Ársábyrgð. — Verð kr. 32.700. — Greiðsluskilmálar.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF. - AÐALSTR/ETI 18 SÍMI 16995.
Biöjið um OSRAM perur í sýn-
ingarvél yðar, vegna gæðanna.
NÍÐZT Á REYKINGA-
MÖNNUM?
Kæri Póstur!
Þegar þessar línur eru
páraðar er nýbúið að
hækka vín og tóbak. Mað-
jr er nú hættur að kippa
sér upp við allar þessar
stöðugu hækkanir. En
samt fór svo í þetta sinn,
að ég reiddist. Ekki er það
af því, að mér þyki sopinn
góður. Mér er sama, þótt
þeir hækki brennivínið upp
úr öllu valdi. Ég get verið
án þess. Hins vegar reyki
ég einn pakka á dag af
sígarettum. Það er í raun-
inni eini munaðurinn, sem
ég veiti mér í lífinu, og
mér þykir svo gott að
reykja, að ég get ekki
hugsað mér að hætta því,
jafnvel þótt ég gæti það,
sem ég er þó alls ekki viss
um. Það er engan veginn
auðvelt að hætta að reykja
fyrir þá, sem hafa reykt í
áratugi. Enda reikna for-
ráðamenn þjóðarinnar alls
ekki með því, að fólk taki
upp á þeim fjanda að fara
að hætta að reykja í stór-
um stíl. Þá væri lítið gagn
í hækkuninni og þá kæmi
lítið í kassann hjá tóbaks-
einkasölunni. Nei, tóbakið
er hækkað, af því að þess-
ir háu herrar vita, að það
er keypt, hversu dýru verði
sem það er selt. En finnst
þér þetta réttlátt, kæri
Póstur? Er hægt að níðast
endalaust á þessum vesa-
lings mönnum, sem eru
orðnir þrælar tóbaksnautn-
arinnar?
Með þökk fyrir birting
una.
To-Baccus.
Það er ekki til nema eitt
ráð við þessu, þótt ekki sé
það kannski árennilegt:
nefnilega að hætta að
reykja hvað sem það kost-
ar; sýna þessum „háu herr-
um“ hvar Davíð keypti öl-
ið. Það kom út bók hér á
dögunum, sem hét „Ilvern-
ig á að hætta að reykja?"
eða eitthvað í þá áttina. Þú
skalt fá þér þessa bók og
hefja baráttuna strax af
l'ullum krafti.
MEÐ EÐA MÓTI SÓL
Kæri Póstur!
Nú liggur mikið við. Ég
er að rífast við gamlan,
reyndan og eldkláran sjó-
mann um það, hvort við
förum með eða móti sól
frá Ólafsvík til Reykjavík-
ur, sem sagt frá vestri til
suðurs. Ég segi, að við för-
um móti sól, en hann seg-
ir með sól.
Mig langar til að biðja
þig að skera úr þessu máli
fyrir mig, því að þetta
liggur mér þungt á hjarta
og ég veit, að þú ert svo
fær í öllu svona.
Með þökk fyrir gott og
fljótt svar.
Ein reið.
Að okkar dómi hefur þú
rétt fyrir þér. Maður fer á
móti sól, þ. e. a. s. sólar-
ganginum, þegar ekið er
frá Ólafsvík til Reykjavík-
ur. Hins vegar gefur auga
leið, að þú getur haft sól-
ina í bakið á þessari leið
á ákveðnum tíma dagsins.
LEIÐINLEGIR FORELDRAR
Kæra Vika!
Þú hefur stundum hlaup-
ið undir bagga og hjálpað
fólki, sem á við persónu-
leg vandamál að glíma.
Mig langar til að biðja þig
að hjálpa mér ef þú getur
í slíku tilfelli.
Ég er 18 ára og er með
strák, sem ekki er í frá-
sögur færandi. Þegar við
höfðum verið saman í
nokkra mánuði, fannst mér
tími til kominn, að ég
kynnti hann fyrir foreldr-
um mínum. Það hefði ég
aldrei átt að gera, eða gat
ég komizt hjá því? Það er
skemmst frá því að segja,
að stráknum mínum geðj-
ast ekki að foreldrum mín-
um. Honum finnst þeir
vera leiðinlegir smáborgar-
ar. Einu sinni sagði hann,
að hann skildi ekkert í
því, að foreldrar mínir
gætu átt jafn fallega og
skemmtilega stelpu og ég
væri. Hann sagði þetta
auðvitað í gríni, en öllu
gamni fylgir nokkur al-
vara. Það er ekkert út á
foreldra mína að setja, að
minnsta kosti ekki að mín-
um dómi. Þeir eru sóma-
fólk, þótt þeir séu kannski
svolítið rexgjarnir og gam-
aldags, en hvaða foreldrar
eru það ekki? Ég varð
mjög undrandi og vonsvik-
in, þegar ég fann inn á
það, að stráknum mínum
líkaði illa við pabba og
4 VTKAN
50. tbl.