Vikan


Vikan - 19.12.1968, Blaðsíða 18

Vikan - 19.12.1968, Blaðsíða 18
SILAS og hesturinn hans eitthvað að. Bartolin stóð reiðubúinn við glugg- ann. En úti fyrir gerðist ekki neitt. Drengurinn sat á sínum steini og starði á fol- ana, og hrossakaupmaðurinn tók að gerast óþol- inmóður. Hvers vegna sat hann þarna? Hvað átti það að þýða að látast vera að horfa á hestana? Bartolin hafði aldrei komizt í annað eins, og hann var viss um, að þar byggi eitt- hvað undir. Og þarna varð hann að standa og eyða dýr- mætum tíma sínum til einskis vegna þessa stráks, sem bara sat þarna og lézt vera sakleysið sjálft. Reiðin tók að krauma í honum innst inni yfir slíku óréttlæti, og þegar hann fékk ekki lengur við sig ráðið, hratt hann hesthússhurðinni frá stöfum með braki og brestum. En ekki varð það til þess, að drengurinn tæki til fótanna eins og hann hafði vonað, og það tók út yfir allan þjófa- bálk — þeir voru því vanastir að grípa sprettinn um leið og þeir urðu hans varir, enda vissu þeir það vel, að hann var þeim ekki mjúkhentur, sem hann náði tökum á. En þessi þokkapiltur þarna á steininum lét sér lítið bregða. Hann hreyfði höfuðið nákvæmlega eins og með þurfti til þess að hann gæti litið sem snöggvast til mannsins í dyrunum, svo sat hann aftur eins og hann hefði hvorki sjón né heyrn. Það var meira en Bartolin þoldi. í öllu sínu veldi skálmaði hann yfir að steininum og starði nístandi augnaráði í bakið á drengnum, sem sat hinn rólegasti eins fyrir það. Og þetta var ekki einu sinni stór og gerðarlegur drengur — nei, þetta var mesti væskill og með hár eins og stelpa. Þurfti að klippa hann eins og hvern ann- an sauð, en sá skyldi fá að liðka sig, maður lif- andi. Bartolin tók tvö löng skref og greip óþyrmi- lega ( hnakkadrambið á honum, Hvað ert þú að vilja hér? Drengurinn gerði hvorki að veita viðnám né reyna að losa sig, hann leit einungis með erfiðis- munum upp á manninn, og það var eins og augnatillitið kæmi langt að. Ekkert, svaraði hann rólega. Ekki það, þrumaði Bartolin. Heldurðu, að ég kannist ekki við ykkur? Ég er svangur, sagði drengurinn. Hvað kemur mér það við? En það var eitthvað í fasi piltsins, sem gerði Bartolin hikandi, það var langt síðan hann hafði hitt fyrir dreng, sem ekki var hræddur við hann — og það þar að auki slíkur rindill. Svangur, sagði hann og sleppti takinu, svo að drengurinn hlammaðist aftur niður á steininn. Já. Þetta var ekki strákur úr bænum. Það var eitt- hvað framandlegt bæði við andlit hans og hvern- ig hann hneigði orðin — og svo þetta hár. Barto- lin hafði aldrei séð dreng með þvílíkt hár, það var eins og þykk, svört hetta niður fyrir eyrun. Ég hef ekki bragðað neitt síðan ( fyrradag. Rödd drengsins kom langt að eins og augna- tillitið. Kemur mér það kannski við? Hefur þér dottið í hug, að þú fáir eitthvað hjá mér? Já, sagði drengurinn án þess að brosa. Þvílik frekja, hugsaði Bartolin og klóraði sér gremjulega í kollinum. Samt var hann á báðum áttum, í rauninni var drengurinn þesslegur að hann hefði ekki fengið mat i marga daga. Það mætti halda, að maður væri skyldugur að gefa annarra krökkum að éta hvenær sem þau hafa ekki í sig, urraði hann. Maður getur ekki lifað til lengdar á tómu vatni, sagði drengurinn. Það var eins og eitthvað gengi úr skorðum innra með hrossakaupmanninum, eitthvað léti undan. Fyrir bragðið varð hann hranalegur i röddinni. Komdu þá með mér, skipaði hann. Ekki mátti það henda, að drengurinn blátt áfram legðist út af og sálaðist undir húsvegg hans, sagði hann afsakandi við sjálfan sig. Það gat kallað yfir mann alls konar óþægindi og vandræði. Drengurinn stóð upp reikandi á fótunum. Bartolin gaut til hans augunum og flýtti sér á undan honum inn í hesthúsið og inn að þeim gaflinum, sem fjær var, þar sem hann hafði gert sér herbergi. Drengurinn elti hann dálítið hissa framhjá langri röð af hestum, þegar hann kom inn í herbergisdyrnar nam hann fyrst staðar og leit undrandi í kringum sig innan hvitkalkaðra veggj- anna, þar sem ekki gat að líta nein húsgögn, en þó mátti greinilega sjá, að það var mannabú- staður. Gólfið var þakið þykku hálmlagi veggja á milli, það var allt og sumt. Stígvél og tréskór lágu á víð og dreif f hálm- inum ásamt ýmsu öðru, og á veggjum héngu aktygi og þykk yfirhöfn. Hann leit seinlega í kringum sig og andaði að sér þeim ramma þef af leðri og gömlu tóbaki og rökum ullarfatnaði, sem sezt hafði að innan hvítra veggjanna. Komdu þér nú inn fyrir, bauð Bartolin óþolin- móður. Það má vel vera, að þetta sé ólíkt því, sem þú átt að venjast, en þú verður að sætta þig við það. Augu drengsins höfðu staðnæmzt við trékassa úti við einn vegginn. Þar lá brauð og pylsur í hrúgu, og það var ekki að sjá, að þar væri yfir- leitt tekið af borðum. Þú býrð vel hérna, sagði hann alvarlegur. Bartolin sneri sér að honum og glápti gremju- lega á hann. Hvað áttu við? Mér finnst viðkunnanlegt hér inni, sagði drengurinn. Veiztu ekki, að það eiga að vera húsgögn? 18 VIKAN 50-tbl-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.