Vikan


Vikan - 19.12.1968, Blaðsíða 30

Vikan - 19.12.1968, Blaðsíða 30
 OPAL 30 denier GOLDSTRIPE sokkarnir fara sigurför um landiS, vegna frábærra gæða. OPAL sokkarnir eru framleiddir af stærstu sokkaverksmiðju Vestur-Þýzkalands, úr fyrsta flokks perlonþræði. Berið saman verð og gæði QPAL sokkanna við aðra sokka, og þér munuð sannfærast um, að OPAL sokkarnir eru beztu fáanlegu sokkarnir á markaðnum. OPAL sokkarnir eru framleiddir í tízkulitun- om: Jasmin, Inka og Roma. OPAL sokkarnir eru fáanlegir í 20, 30 og 60 cSenier. OPAL - OPAL - OPAL - OPAL - OPAL - OPAL Einka.rr.bcSsmsnn fyiir OPAL Textilwerke G.m.h. Ilorstma:/Westfalen. Kr*. Þorvaldsson & Co. heiBcflvePzlun, Grettisgötu 6 - símar: 24730,24478,23105 Framhald af bls. 15. Hann rak tappann í hana og festi hana aftur við beltið. — Ég ætla að haida áfram. Þegar við erum komin i gegnum þessa skógarspildu, þurfum við að fara gegnum annað klettabelti og ég verð að hjálpa vesalings Madame Elvire, sagði hann og hélt áfram. Angelique beindi hryssunni aftur inn á stíginn. Hún horfði á Cantor og henni fannst hann glæsilegur; hann var hugulsamur og góður við hana og hún myndi ekki eiga í neinum erfiðleikum með að vinna trún- aðartraust hans aftur, en hún hafði fundið það nú um nokkra hríð að hann bar kala til Honorine. Hún andvarpaði og drúpti ofuriítiö höfði. Myndi hún nokkru sinni hafa hugrekki til að tala við syni sina um Honorine? Hvað átti hún að segja þeim? Það var fullkomlega skiijan- legt, að drengirnir væru hugsi, út af þessari hálfsyslur, sem móðirin hafði fært þeim frá gamla heiminum! Hver af elskhugum móður þeirra var faðir hennar? Því hlutu þeir að hafa velt fyrir sér. Hver höfðu innri viðbrögð þeirra verið við þessum óvæntu og óþægilegu fréttum? Hvaða álit höfðu þeir á föður sínum, sem hafði fyrirgefið henni og boðið barnið velkomið? Honorine var holdtekja alls þess sem þeir óskuðu að gleyma, hinni grimmu fortíð með aðskilnaði sínum og óhjákvæmilegri ótryggð .... — Hefði ég átt að skilja hana eftir i Gouldsboro? spurði Angelique sjálfa sig. — Abigail hefði litið eftir henni með ást og umhyggju. Nei, ég hefði aldrei getað það! Ég veit að þú hefðir dáið ef þú hefðir verið skilin l'rá mér vesalings litla óskilgetna barnið mitt, sagði hún við sjálfa sig, leit um öx! á litla, hnöttótta kollinn, sem hallaði sér upp að henni 30 VIKAN 50- tbI- svo fullur trúnaðartrausts. — Og hefði ég nokkru sinni getað gleymt þér, hefði ég nokkru sinni getað lifað hamingjusöm eftir að varpa þér út úr lífi mínu? Vesalings litla örlagabarn, sem kastað var út í heim- inn með slíku ofbeldi og ósköpum. Nei, það gæti ég aldrei gert. Hversvegna hafði Honorine einmitt þtnnan morgun krafizt þess að snúa aftur til móður sinnar? Var það táknrænt? Hvenær sem barninu var órótt einhverra hluta vegna, leit- aði það alltaf til Angelique Fram til þessa hafði hún verið félagslynd og mjög gl'jð í ferðinni. Ilverskonar hættu kynnu þau að standa andspænis i dag, sem kom Honorine til að leita sér verndar? Voru einhver vandræði framundan? Kæmi þrumuveður? Fellibylur? Myndu þau rekast á Iroka? Það sem af var ferðinni höfðu Indíánarnir, bæði vinir og óvinir verið næstum ósýnilegir. Perrot og Maupertuis höfðu sagt að ættflokkarnir hefðu farið til strandarinnar að selja loðfeldina sína og skipin lægju þar fyrir festum, bíðandi eftir þeim, hlaðin af koniaki, jlrnvöru og perlum. Ferðalangarnír höfðu farið framhjá viðlegurjóðrum, fullum af pilviði og hunangsgulum graskersblómum, með bikarlaga blöðum, sem héldu morgundögginni. Þetta voru síðustu ábendingarnar á einhverskonar mannaferðir, en þær hurfu smám saman eftir því sem skógurinn varð þéttari. Hinir fjölmörgu Abenaki ættbálkar, hin upprunaíega, innfædda ættkvísl i Maine, hafði flökkueðli í blóðinu. 1 upphafi ferðarínnar höfðu þau að visu rekizt á þennan hóp Meta- lakka, sem slóst í íylgd með þeim. — En burtséð frá þeim höfðu þau ekki rekizt á neina aðra, hvorki Iroka né Abenaka. Og þessi mannafjarvist, sem um langan tíma hafði virzt vottur um öryggi, var nú farin að leggjast þungt á þau. Til hægri komu fjöllin aftur í ljós, handan við breiða landsspildu, eydda af eldi. Angelique starði vongóð til fjallanna, því hún vissi að við rætur Appalachiansfjalla var útvörður Katarunk, sem de Peyrac átti, og þau stefndu þangað. í Katarunk áttu þau að vera um veturinn, en um vorið var fyrirhugað að halda til námanna, sem lágu lengra inn í landinu. Hryssan hélt áfram yfir sóti þakta sléttuna, sterkur þefur af brenndum viði og viðarkvoðu grúfði i loftinu eins og reykelsiseimur. I ofsaþurrkum síðsumarsins brutust eldarnir auðveldlega út. Það þurfti ekki nema einn neista til að tendra risastórt, öskrandi bál, sem gereyddi skóginum með ósegjanlegri græðgi, risavaxins dreka og undan eldtungunum hlupu ofsahrædd dýrin og eldurinn nam ekki staðar, fyrr en hann rakst á klettavegg eða fljót. Löngu eftir að eldurinn var kuln- aður lá brunalyktin í loftinu og barst hægt út um nærliggjandi skóga. Það var bersýnilegt að hér hafði eldurinn nýlega geysað, því hest- arnir þyrluðu upp volgri ösku með fótunum. Sviðnar greinar skildu eftir svört strik á öllu, sem rakst á þær og trjástofnarnir, sem eftir stóðu voru útkulnaðir og dauðir. Milli lauflausra og nakinna greina þeirra glitraði á fjölmörg stöðuvötn á sléttunni. Þau komu að einu þessu vatni og sáu að eldurinn hafði geysað alveg ofan að vatnsborðinu og þar var ekki eitt einasta strá handa hestunum að grípa í sig. Þau héldu áfram meðfram vatninu gegnum öskuna, þar til þau komu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.