Vikan - 19.12.1968, Side 45
Ameríku, koma sér burt, svo auðveldara væri að gleyma Fleur og
ástinni til hennar.
— Þú ættir að láta Francis heimsækja vini þína í London, þá '
gæti hann skrifað og sagt þér hvernig þeim liði.
Jon hristi höfuðið. —• Raunverulegir vinir mínir eru hér.
Og allt í einu, án þess hann gæti gert sér grein fyrir því hvernig
það skeði, lá Anne í faðmi hans. Hann þrýsti henni blíðlega að
sér og lagði kinnina við mjúkt hár hennar.
— Hér hef ég þig, Anne, segðu að þú viljir verða mín. . . .
Framhald í næsta blaði.
Rómverskur hermaður
Framhald af bls. 13.
Að svo mæltu hvarf hann í
myrkrið. Maríus sat einn eftir
við bálið og velti fyrir sér, hvað
hann ætti að taka til bragðs.
Hann fýsti í fjör og líf og félags-
skap drykkjubræðra sinna. Á
hinn bóginn fannst honum það
skylda hans að bíða, þar til vin-
ur hans kæmi aftur. Að lokum
ákvað hann að hugga sig í ein-
verunni við vínkútinn sinn, á
meðan vinur hans gekk í gegn-
um þorpið og tók stefnu í átt að
ánni Jórdan.
Þorpið var fullt af ókunnu
fólkinu, sem varð á vegi hans. En
komið til að greiða skatt og láta
skrásetja sig. Það var enn líf og
fiör á markaðstorginu. Þar var
vin, krydd og döðlur á boðstól-
um. Hvarvetna var hávaði og
skarkali, ys og þys.
Hann sinnti ekki hið minnsta
fólkinu, sem varð á vegi hans. En
það sá hann og vék úr vegi fyr-
ir honum. Hann var rómverskur
hermaður og ekki sömu trúar og
það. Það vildi bersýnilega eiga
sem minnst samskipti við hann.
Hann strunzaði áfram, án þess
að líta til hægri eða vinstri;
framhjá dökkeygum stúlkum
með skýluklúta um höfuð sér;
sterklegum karlmönnum, sem
virtust geta myrt hann með
augnaráðinu einu saman og öld-
ungum, sem tautuðu í sífellu
kvöldbænir sínar. Flann heyrði
ekki einu sinni hróp krypplings-
ins, sem sárbað hann um ölmusu,
né virti viðlits konu, sem nugg-
aði sér upp við kirtil hans, sagði
að hann væri íallegur og mændi
á hann ástaraugum. Allt var
þetta svo fjarlægt huga hans á
þessari stundu. Hann gekk svo
hranalega framhjá konunni, að
hann hafði næstum hrint henni
um koll.
HEI, SXGGA, t>AÐ EH EKKI
SVONA HEITT OTJNA:
V________________________Z
Smeðjuleg rödd hennar skipti
um hljóm á samri stundu. Hún
formælti honum á sinni eigin
tungu. Það gat hann heyrt, þótt
hann skildi ekki orðin. Hann
stanzaði andartak og leit í átt-
ina til hennar. Hann hafði aldrei
lært hebresku, utan eitt og eitt
stakt orð. En hann sá, að hún
var enn aðeins barn að aldri, og
honum rann það til rifja. Hann
var að því kominn að ganga til
hennar og segja: Þetta er ekkert
líf fyrir þig. Þú eyðileggur sjálfa
þig. Farðu heim og vertu sið
prúð stúlka. En allt. þetta gat
hann ekki sagt, og ef til vill hefði
hann heldur ekki gert það, þótt
hann hefði kunnað móðurmál
hennar. Iiann lét sér nægia að
fleygja til hennar einum skild-
ingi.
Ifún tók hann ekki strax upp,
heldur starði á eftir þessum
ókunna hermanni. Hann sá þó,
að um leið og hanp bjó sig und-
ir að halda förinni áfram, beygði
hún sig niður og greip periinginn
áfjáðum höndum. Þetta fólk var
fátækt og átti við skort að búa.
En það unni börnunum sínum og
sinnti þeim eins vel og kostur
var á.
Eftir lanea þögn kom hann loks
á opna svæðið handan við þorp-
ið. Hann var einn. Hér var enga
sálu að sjá og ekkert hús, utan
óhrjálegt gistihús langt í burtu.
Hann hallaði sér upp að eikar-
tré og starði til himins. Stjarn-
an skæra blikaði enn í austri.
Hann rak ckki minni til að hafa
nokkru sinni fyrr séð stjörnu,
sem virtist jafn stór og svo nærri.
Skin hennar var svo sterkt, að
hann fékk ofbirtu í augun. Hann
gat ekki horft í hana lengur.
Hann blygðaðist sín og huldi
andlitið í höndum sér. Aðeins
guðirnir vissu, hvað Marcus Juli-
us hiá lífverði keisarans mundi
segja, ef hann sæi til hans á
þessari stundu. En sem betur fer
varð enginn vitni að auðmýkt
hans og vesaldómi. O, Júpiter!
Hvernig gátu minningarnar um
lítið barn, sem lifði aðeins
skamma hríð, verið svo sársauka-
fullar? Hann gaf hugsunum sín-
um lausan tauminn. Þær flugu
inn í hið stóra og dimma völ-
undarhús minninganna, sem
hann hafði forðazt eins og heit-
an eld þar til nú. f hverju nýju
herbergi, í hverju skúmaskoti sá
hann eitthvað nýtt, sem jók
hugarangur hans og sálarkvöl.
Hér var okkur ætlaS
auglýsingarými en við
þurfum ekki að auglýsa.
Þjónusfa okkar er þegar
landskunn.
fröst,
íngólfsstræti 8, Reykjavík. Sími 10 2 40
MUNiÐ
NIÐURSUÐUVÖRUR
MERKIÐ TRYGGIR GÆÐIN
★
AÐEINS VALIN HRÁEFNI
★
ORA VÖRUR í HVERRI BÚÐ
★
ÖRA VÖRUR Á HVERT BORÐ
Niðursuðuverksmiðjan ORA hf.
Símar: 41995 - 41996
V____________________________________/
5°. tbi. vikAN 45