Vikan


Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 40

Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 40
Ronson HÁRÞURRKA HEIMILANNA TILVALIN TÆKIFÆRISGJÖF EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK n Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Kunnátta þín £ vissu sviði er heldur rýr, en starf þitt krefst þess að þú beitir henni við og við. Það myndi auka vellíðan þína ef þú tækir á þig rögg og fengir þér góða tilsögn þar að lútandi. Wf Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Maður nokkur veitir þér mikla athygli, sem þér er ekki mikið um. Þú ferð í alllangt ferðalag í fá- mennum hópi. Nágrannar þínir halda fyrir þér vöku. Fimmtudagur hagstæður innkaupadagur. Tvlburamerkið (22. maí — 21. júnf): Þú verður að herða þig með ákveðið verkefni, ef þú vilt ekki verða af lestinni næst. Þú ættir að vera mikið heima og hvíla þig vel. Þú færð bréf er veldur þér nokkrum áhyggjum. © Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Ættingjar þínir œtlast til að þú eyðir meira af tíma þínum með þeim. Þú átt erfitt með að taka ákvarð- anir. Þú ættir að vera sparsamari og takmarka skemmtanir þínar. Heillatala er sjö. Ljónsmerkið (24. júií — 23. ágúst): Þú ert ekki nógu vel upplagður til að geta notið félagsskapar annarra og skalt því haga þér sam- kvæmt því. Þú finnur galla á hlut er þú hefur ný- lega keypt. Þ úfærð gjöf frá vinnuveitanda. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Um nokkurt skeið hefurðu varðveitt vel hluti sem eru mikils virði, sérstaklega þarftu að vera vel á verði þessa viku. Þú skemmtir þér vel í leikhúsi. Þú tfest á ferðalagi. & Vogarmerkið (24. september — 23. október) Vikan einkennist af glaðværð; njóttu þess að vera 1 svo áhyggjulausum félagsskap. Eldri kona leitar aðstoðar þinnar. Þú eignast nýtt áhugamál. Þú reið- ist heiftarlega við ættingja þinn. & Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Byggðu ekki á aðstoð annarra. Útgjöld þín íara nokkuð vaxandi. Þú þarft bráðlega að taka mikils- verða ákvörðun. Þú tekur upp nýja aðferð við tekjuöflun. Þú færð góðar fréttir. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Þú hefur í mörg horn að líta, en það styttist óðum í að þá fáir aðstoð. Innan skamms þarftu að sýna getu þína á vissu sviði og skaltu undirbúa þig. Þú ferð í stutta ferð með kunningjunum. $ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þeir aðilar sem þú átt mest komið undir eru ekki sammála um þau atriði, sem þér liggur mest á. Ef þú gengur ekki vel á eftir þeim mönnum er þú hefur valið til aðstoðar, stenztu ekki áætlun . Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Ennþá hefurðu ekki fengið rétta tækifærið, svo þú skalt hinkra við ögn. Hörð samkeppni á vinnustað veidur þér nokkrum erfiðleikum. Ráðleggingar ann- r arra fara í taugarnar á þér. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú hefur nám sem þú hefur lengi haft í huga. Kröfur þínar til umhverfisins eru of hátt stemmd- ar, svo þér líður ekki eins vel og verið gæti. Þú verður mikið á ferðinni og lítið heima. 40 VIKAN 6- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.