Vikan


Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 41

Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 41
— Ertu ánægð yfir því? spurði hann. — Hvort ég er, sagði hún. — Þetta hefir verið dásamlegt ferðalag, en það verður líka dá- samlegt að komast Lnn í hvers- dagslífið aftur. Finnst þér það ekki líka? — Jú, ástin mín, sagði hann og þrýsti hönd hennar undir borðinu. Þau höfðu verið gift í hálfan mánuð, og hann elskaði hana meira en hann gat lýst með orð- um, þrátt fyrir Marianne. — Hversvegna sagði ég Mari- anne ekki frá Jeannine? spurði hann sjálfan sig. Ég hefði getað sagt að konan min væri á hár- greiðslustofu, og óskað þess að hún kæmi með til að heilsa upp á hana. En hann vildi ekki blanda þessarri nýfengnu ham- ingju við neitt frá gamalli tíð, þegar honum hafði liðið svo illa. Og svo fannst honum líka ó- sjálfrátt að hann hefði orðið að taka tillit til konunnar frá æsku- árunum. Hví skildi hún ekki fá að halda draummyndinni um forna ást? Hann leit út um gluggann, þar var ílugvél að taka á loft. Það var líklega vélin sem bar Mari- anne burt frá honum.... Burt fyrir fullt og allt.... ☆ Kirkjan á fjallinu Framhald af bls. 21. ögn lengur á guð og lukkuna fremur en lyklavöld sveitar- sjóðs.“ „Þú hefur ekkert leyfi til að stofna svona stóru heim- ili í voða með þrákelkni þinni“ — „Já, satt er það, stórt er heim- ilið, en engir aukvisar munu hér upp vaxa, þótt stundum hafi verið hart undir tönn á borð borið.“ — Allt í einu þungur dynur. Þeim verður öllum litið til fjalls- ins. Hengjan er fallin úr brún- inni og snjóskriðan sýnist stefna beint á bæinn. — Sá hinn skrift- lærði hefur misst töskuna sína og hún runnið fram í varpann. Flóðið, sem nú æðir fram rétt við tær þeirra, þrífur hana með sér og ber á sjó fram. — — Hljóðir og fölir halda aðkomumennirnir heím á leið. Hin skráðu skjöl, vofctorðin um allsnægtir eins og eymd annars, hafa þeir af hendi látið. Rödd fjallsins hefur til þeirra talað á ótvíræðan hátt. — Hinn næsta dag brá til bata. Suðrænn andvari bræddi klak- ann. Hafísinn var horfinn af fló- anum og hóglát alda kviknaði við sandinn. Að kvöldi var fag- ur fiskur úr sj(ó dreginn á borð, borinn. Álögum vetrarins var af- létt í bili. Mörg slík saga lifir í vitund þeirra sem ungir muna hin síð- ustu aldahvörf. BINDINDI BORGAR SIG TRYGGIÐ BÍLINN H3Á ABYRGÐt ABYRGD H r TRYGGINGA1:I:.LAG FYRIR BINDINDISMENN Skúlagötu 63 - Símar 17455 - 17947 Eftir því sem tækninni fleygir fram og bílarnir verða fullkomnari og einfaldari - og þar af leiðandi auðveldari í notkun, eftir því ætti umferðin að verða greiðari og léttari og umferðarslysin færri. En er raunin sú? Nei. - Hvers vegna? Vegna þess að í langflestum tilfellum eru umferðarslysin ökumönnunum að kenna, en verða ekki rakin til galla eða bilunar á ökutækinu. Bílum hefur fjölg- að mjög mikið undanfarin ár, umferðin eykst stöðugt og með betri bílum hefur hraðinn einnig auk- izt. Allt krefur þetta meiri leikni og aðgæzlu af ökumanninum, hann verður ávallt að vera vel vak- andi við aksturinn, alltaf allsgáður í fyllstu merkingu þess orðs. Og ekki aðeins undir stýri, heldur í öllu lífi sínu. Yfir 35 ára reynsla ANSVARS, alþjóðlegs tryggingafélags fyrir bindindismenn, hefur ótvírætt sýnt, að bindindismenn valda færri umferðarslysum en aðrir ökumenn. Þessvegna hafa á þessum árum þróazt bindindistryggingafélög í samvinnu við Ansvar International á öllum Norðurlöndum, Eng- landi, Hollandi, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálandi. Ábyrgð hf. er einn hlekkur í þessari stóru tryggingarkeðju bindindismanna. Heildariðgjöld félaganna er um 1.6 milljarður króna á ári og um 260 þúsund ökutæki eru tryggð hjá samtökunum. Fyrir bíl yðar býður ÁBYRGÐ eftirfarandi tryggingar: 1. ÁBYRGÐARTRYGGINGU, þ. e. hina lögbornu skyldutryggingu. 2. ÖKUMANNS- OG FARÞEGASLYSATRYGGINGU. 3. ALKASKÓTRYGGINGU. Með þeirri tryggingu er bíllinn tryggður fyrir vagntjóni, þ. e. á- rekstri, veltu, hrapi; brunatryggður, rúðutryggður (allar rúður) og þjóftryggður. 4. HÁLFKASKÓTRYGGINGU, sem tryggir bílinn fyrir bruna-, rúðu- og þjófnaðartjónum. 5. „GRÆNA KORTS" UTANLANDSTRYGGINGU, sem gildir fyrir bílinn á ferðalagi erlendis. Kjör Ábyrgðar eru hagstæð, þar sem Ábyrgð tryggir eingöngu bindindismenn. Ábyrgð hefur frá upphafi kappkostað að veita góða þjónustu og fljót og örugg tjónauppgjör. Leitið upplýsinga og sannfærist um að BINDINDI BORGAR SIG. 6. tbi. vikaN 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.