Vikan


Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 2

Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 2
* IFULLRI MOXZEMA-DEODORBNT SVITAEYÐIR. REYNIÐ OG ÞÉR MUNUÐ vSANN- FÆRAST UM AÐ BETRI SVITAEYÐI FÁIÐ ÞÉR EKKi. Brennandi spurning Löngum hafa stjórnmál hér á landi einkennzt um of af fánýtu karpi, en málefnaleg- ar rökræður verið sjaldgæf- ar. Það gegnir í rauninni furðu, hve sárafáir stjórn- málamenn hafa lagt í vana sinn að tala og skrifa ljóst og skýrt, svo að allir megi skilja, jafnt leikir sem lærðir. Það virðist vera til siðs í heimi stjórnmálanna að tala um málefni líðandi stundar á flóknu, „fræðilegu" og óljósu rnáli og nota orð og hugtök, sem bögglast fyrir brjóstinu á almenningi. Mikið hefur verið rætt og ritað um þá botnlausu erfið- leika og þrengingar, sem yfir okkur hafa dunið og við er að glíma á nýbyrjuðu ári. En lítið sem ekkert hefur til dæmis verið fjallað um eftir- farandi spurningu, sem brenn- ur á vörum þúsunda heimilis- feðra þessa köldu og dimmu vetrardaga: Hvað er hægt að gera til að hjálpa mönnum að halda íbúðum sínum, — mönnum, sem keyptu sér þak yfir höfuðið í góðri von og trú meðan allt virtist leika í lyndi, atvinna var mikil og lánsmöguleikar nógir? Meginþorri iðnaðarmanna og verkamanna hefur nú enga eftirvinnu, og dagvinnukaupið hrekkur naumlega fyrir fæði og klæðum. Og lán er hvergi að fá. Hátt á annað þúsund umsækjenda bíða lánsloforða hjá húsnæðismálastjórn, sam- kvæmt nýjustu fréttum. Missir allt þetta fólk íbúðir sínar eða verður því hjálpað til að lifa af núverandi erfið- leika í von um betri tíma og batnandi afkomu? Almenning fýsir að fá skýr svör við spurningum sem þessari, en hefur lítið gagn af löngum ræðum og greinum um hagvöxt og greiðslujöfn- uð. G.Gr. COVER GIRL fæst í öllum snyrtivöruverzlunum. FRIÐRIK BERTELSEN Laufásvegi 12 - Sími 36620. Va ralitir, 12 fallegir tízkulitir. Heildsölubirgðir: PressaS púður, 4 fallegir beige litir. Cleansing Lotion, hreinsar betur en sápa og er mildara en krem. Astrigent Tonic. Andlitsvatn fyrir þurra og feita húð. MAKE-UP, 3 fallegir litir. Á r COVER GIRL snyrtivörur eru viðurkenndar af hin- um vandlátu. — Ég stend í ævarandi þakk- arskuld við yður, læknir ....! Ég man ekki hvort það er ég sem er veikur, eða hvort það er konan mín....! IÞESSARIVIKU TONGA ................... PÓSTURINN BÍLAPRÓFUN .............. PALLADÓMAR UM ALÞINGISMENN EINU SINNI VAR ......... EFTIR EYRANU ............ LEYNIFARÞEGINN MINN ..... AÐ LESA í LÓFA........... ÞEGAR LANDIÐ FÆR MÁL.... ANGELIQUE í VESTURHEIMI ... SÍÐAN SÍÐAST ........... NÝ VERÐLAUNAGETRAUN ..... AÐ MERKJA MEÐ STAFNUM . . AFTÖKUR Á GÖTUM ÚTI .... HAMINGJULAUSI NJÓSNARINN SÚPUR OG SMURT BRAUÐ Bls. 4 Bls. 6 Bls. 8 Bls. 10 Bls. 12 Bls. 14 BIs. 16 Bls. 18 Bls. 20 BIs. 22 Bls. 24 Bls. 26 Bls. 30 Bls. 32 Bls. 34 Bls. 46 VÍSUR VIKUNNAR: Á þekkingarsviðinu þrá vor er jafnan rík og þar eru stöðugt reyndir nýjustu vegir því jörðin er orðin úrelt og gömul sem flík en aðrir hnettir dæmalaust forvitnilegir. Og geimfarar eiga efalaust skilið hrós á eldflaugarangli í þjónustu jarðarbarna nú hafa þeir játað að jafnvel sé komið í ljós að jörðin sé góð en tunglið leiðindastjarna. Með rafeindaheilum reikna hálærðir menn og reyna að leysa þá spurning sem heitast brennur: Er Máninn fullur mánaðarlega enn og miður sín og fúll þegar af honum rennur? FORSÍÐAN: í þessu blaði hefst ný verðlaunagetraun. Vinningarnir eru allir frá hinum heimsþekktu Ronson-verksmiðj- um. Auk kveikjara eru margir óvenjulegir hlutir, eins og rafmagnstannbursti, rafmagnshnífur, rafmagnsskó- bursti og fleira. Á forsíðunni sjáum við nokkra af hinum glæsilegu vinningum. VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR IIF. Ritstjóri: Sigurður Ilreiffar. Meffritstjóri: Gylfi Grön- dal. Blaffamaffur: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friffriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Aug- lýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Simar 35320-35323. Pósthólf 523. Verð í lausasölu kr. 50.00. Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir 26 tölublöð misserislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð mánaðarlega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst, eða mánaðarlega. IIUESTU VIKU „Janine gekk inn í baðher- bergið og henni brá, er hún leit í spegil. Þetta var ekki hennar andlit. Ókunn kona starði á hana. Allt sem gerði hana fagra og töfrandi var eins og þurrkað burtu. Hún var þreytuleg, magnlaus og föl sem afturganga.... “ Þetta er upphafið að nýrri framhaldssögu, sem hefst í næsta blaði og heitir Við hverja snertingu hans eftir Jens Bekker. Þá segjum við í sama blaði frá ellefta merki dýrahrings- ins og því næstsíðasta. Það er Vatnsberinn, en þeir sem fæddir eru í honum eru gjarnan fíngerðir og við- kvæmir. Gott dæmi um Vatnsbera eru tónskáldin Mozart og Mendelssohn, en tónsmiðir eru einmitt tiltölu- lega fjölmennastir í þessu merki. Vatnsberinn vill losna við þunga efnisins, flýja hin- ar dýrslegu hvatir, sem hann finnur að koma illa heima við dýrlingslegar tilhneigingar hans. Af þýddu efni vildum við nefna myndagrein um nýja kvikmynd, sem mikla athygli hefur vakið erlendis. Aðal- persóna hennar er gamall bíll og þess vegna heitir myndin Chitty chitty, bang bang. Hér er um að ræða mynd, sem er alveg 1 sérflokki og hefur notið gífurlegra vinsælda um allan heim. Þá verða grein- arnar Langaði aff lifa flott og gerðist njósnari, Harmleikur í Brasilíu og fleirL Síðast en ekki sízt minnum við á nýju verðlaunagetraun’ ina, sem hófst í síðasta blaðL Það eru glæsilegir vinningar í boði, allt úrvalsvörur frá hinum þekktu Ronson-verk- smiðjum.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.