Vikan


Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 9

Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 9
BRONKITIS (lungnakvef) Lungnakvef (sem al- mennt er kallað bronkit- is) er bólga í lungnapípu- slímhimnum. Það eru sýklar sem orsaka þessa bólgu. Þessir sýklar eru venjulega til staðar í háls- og lungnapípuslímhimn- um, en þeir gera ekki neitt af sér, nema að mótstöðu- afl slímhimnunnar veikist, þannig að sýklarnir kom- ist í gegn og orsaki bólgu. Venjuleg ofkæling, með nasakvefi og kverkaskít, auðveldar sýklunum leið niður í lungnapípurnar, og þá bólgna slímhimnurnar. Mótstöðuafl slímhimna í lungnapípum getur minnk- að við langvarandi inn- öndun mengaðs andrúms- lofts, þær verða veikari fyrir, og þá er greiður gangur fyrir sýklana. Það er mjög mismun- andi hve fólk er næmt fyr- ir lungnakvefi. Það er sennilegt að þeir sem hafa verið kvefsæknir á barns- aldri, séu móttækilegri á fullorðinsárum. Eldra fólki er lika hætt- ara við lungnasjúkdómum, en þeim sem yngri eru. Vissir hjartasjúkdómar veikja líka mótstöðuafl lungnapípuslímhimnanna. Bronkitis byrjar, eins og áður er sagt, með kvefi, kverkaskít og ónotatilfinn- ingu. Eftir nokkra daga kemur þurr hósti, hæsi, sárindi fyrir brjósti og nokkur sótthiti, en sjaldan hár hiti. Með hóstanum fylgir uppgangur. Eftir nokkra daga losnar um uppgang- inn, hann verður þynnri og oft blandaður gulgræn- um kekkjum. Þessu fylgir máttleysi og þreyta, og það er algengt að hinn sjúki heyrir urg í lungna- pípunum. Þetta urg, sem heyrist við öndun, er vegna slimsins sem safn- ast í lungnapípurnar. Það er táknrænt fyrir Jsennan sjúkdóm og heyrist mjög vel í hlustunarpípu lækn- isins. Andardráttur verður líka sár og erfiður. Við slæmu lungnakvefi eru mörg húsráð, en fyrst og fremst er að halda sig í rúminu. Það getur linað sviðann að anda að sér gufu, sérstaklega ef mat- arsódi er settur í vatnið. Heitir drykkir, eins og t. d. sítrónusafi, sólberjasaft í heitu vatni, er ágætt til að lina hóstann. Hóstasaft fæst í lyfjabúðum, og önn- ur leysandi lyf fást gegn lyfseðli frá lækni. Ef batinn lætur bíða eft ir sér, eða ef sótthiti gerir vart við sig aftur, þá er það oftast merki um lungnabólgu, sem sagt: bólgan í lungnapípunum hefur brotizt inn í lungna- vefina. Lungnabólgu er hægt að sjá með röntgen- myndum, en það er ekki alltaf hægt að staðfesta það að um lungnabólgu sé að ræða með venjulegri rannsókn. Við lungnabólgu eru notuð sérstök fúkalyf, sem ekki eru almennt not- uð við lungnakvefi, nema þá til að fyrirbyggja eftir- köst, t. d. hjá ungbörnum og gömlu eða veikburða fólki. (Ef smábörn fá slæman og langvarandi hósta, reynast fúkalyfin vel). Lungnakvef kemur oft án nokkurrar áþreifan- legrar ástæðu, en stundum er það afleiðing annarra þráasjúkdóma, eins og t. d. astma, útvíkkunar í lungna- pípum, berkla eða æxla. Svo hefur líka bólga í kinnholum áhrif á lungna- pípurnar. Sýklarnir berast með slíminu frá kinnhol- unum gegnum nefkokið. Þegar um langvarandi lungnakvef er að ræða, er nauðsynlegt að finna or- sökina og haga sér eftir því. T. d. er oft nauðsyn- legt að stinga á kinnhol- unum, fá ofnæmislyf við astma, eða jafnvel að skipta um vinnustað, til að forðast ryk og mengun í andrúmsloftinu.... ☆ H3C0*fh SÚPIIR Svissneskar súpur Ekkert land stendurframar í gestaþjónustu og matargerd en SVISS. HACO súpur eru frá Sviss Hámark gæda Vegetable de Luxe Chickcn Noodle Primavera Leek Oxtail Celery Asparagus Mushroom Tomato 6. tbi. VIKAN !) NvjoisvoNissionv®

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.