Vikan


Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 45

Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 45
„Sg er hræddur um, herra, að eldurinn sé slokknaður og það fyrir þó nokkru." „Þá er að gæta að því.“ Hann stökk upp stigann. „Núna,“ hvíslaði ég nokkuð hátt, líklega of hátt, en mér fannst ég ekki mundu koma upp nokkru hvísli. Hann var kominn áður en mig varði, tvífarinn minn, og hann fór ekki stigann, heldur gegnum rennihurð að mjóum öngstiga. Svo komumst við út að seglageymslunni, og skriðum á hnjánum yfir seglin. Þá datt mér nokkuð í hug allt í einu. Ég þóttist sjá sjálfan mig á gangi, berfættan, berhöfðaðan, brennheitt sólskinið úr hálofti og ekkert til hlífðar. Svo ég tók lina hattinn minn hvíta, og þrýsti honum í mesta flýti á kollinn á tvífara mínum, en hann stympaðist við. En svo held ég hann hafi allt i einu skilið hvað ég meinti með þessu, því hann lét undan. Og svo tók- umst við þéttingsfast í hendur, og allrasnöggvast hvíldi hand- takið kyrrt.... Hvorugur sagði neitt þegar við skildum. Eg stóð rólegur og hljóður við búrdyrnar þegar brytinn kom. „Því miður, herra. Hálfkalt í katlinum. Á ég að kveikja á sprittlampanum? “ „Nei, við skulum láta það eiga sig.“ Sg gekk hægt út á þilfarið. Nú varð ekki umflúið að fara eins nærri landi og framast var óhætt, því hvenær sem skipið stöðvaðist hlaut hann að stökkva fyrir borð. Hlaut hann? Héðan af varð ekki snúið við, hann átti einskis annars úrskosta. Eftir stutta stund gekk ég yfir að hlé- borða og ég fékk kökk í hálsinn, það var svo voðalega stutt til lands fyrir stafni. Ef öðruvísi hefði staðið á hefði ég ekki hik- að eina mínútu við að snúa. — Annar stýrimaður fylgdi mér áhyggjufullur. Ég dokaði við, þangað til ég treysti mér til að láta enga geðshræringu heyrast á mæli mínu. „Skipið kemst fyrir oddann,“ sagði ég rólega. „Ætlið þér að reyna það, herra?“ stamaði hann vantrúað- ur. Eg anzaði honum ekki en brýndi röddina rétt mátulega til þess að maðurinn við stýrið heyrði. „Látið skipið fara á fulla ferð.“ „Já, á fulla ferð, herra.“ Andvarinn blakti um vanga mína, seglin slöptu, allt var kyrrt. Og ég horfði og horfði eins og bergnuminn á landið hvar það færðist nær og nær og nær. Svo þoldi ég ekki lengur að horfa, slíka ógn bauð mér af — og ég lokaði augunum. Skip- ið varð að færast nær landinu! Engin leið önnur. Kyrrðin var Framhald á bls. 48. * RAFHA-HAKA 500 er sérstak- lega hljóðeinangruð. — Getur staðið hvar sem er án þess að valda hávaða. *■ Öruggari en nokkur dnnur gagnvart forvitnum börnum og unglingum. Hurðina er ekki hægt að opna fyrr en þeytivindan er STÖÐV- UÐ og dælan búin a6 tæma vélína. RAB’HA-HAKA 500 þvottavélin ‘yðar mun ávallt skila yður full- komnum þvotti ef þér aðeins gætið þess að nota rétt þvottakerfi,. þ.e. það sem við á fyrir þau efni er ér ætlið að þvo. Með hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfstæðu þeytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yðar. Þvottakerfin eru: 1. bllarþvottur 30°. 2. Viðkvæmur þvottur 40°. 3. Nylon, Non-Iron 90°. 4. Non-lron 90°. 5. Suðuþvottur 100°. ö. Heitþvottur 60°. 7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90° .8 Heitþvottur 90°. 9. Litaður hör 60°. 10. Stífþvottur 40°. 11. Bleiuþvottur 100°. 12. Gerviefnaþvottui 4u Og að auki sérstakt kerfl fyrir þejrtivindu og tæmingu. Vlfl ÓfllNSTORG SiMl 10322 HWflB ER ÖRKIH HflHS HBfl? Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð- um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð- launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram- leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói. SÍSast er dregið var hlaut verSlaunin: Hilmar Gunnarsson, Hverfisgötu 34, Reykjavík. Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar. Nafn Heimlli Örkin er á bls. e. tbi. VIKAN 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.