Vikan - 02.04.1969, Side 3
Láttu eins og ekkert sé... þetta éru bara
einhver ferðamannafífl, sem ætla að
spyrja okkur til vegar.
Við sjáum hvað setur!
'C
í SVONA FARÐ ER NAUD3YS AD HAFA KEÐJUR
w
., <7'
IÞESSARIVIKU
PÓSTURINN ..........................
MÚSÉTNA PÁSKAEGGIÐ .................
DAGLEGT HEILSUFAR ..................
MIG DREYMDI ........................
Á HVERFANDA HVELI ..................
HANN VINNUR AFREKIN FYRIR DÝRLINGINN
FYRRI KONAN HANS ...................
ANGELIQUE í VESTURHEIMI ............
PX—13 ............................
27 MISMUNANDI HÁRGREIÐSLUR .........
HANN GEIR ER OF LÍTILL .............
VIÐ HVERJA SNERTINGU HANS ..........
Bls. 4
Bls. 6
Bls. 8
Bls. 9
Bls. 10
Bls. 11
BIs. 12
Bls. 14
Bls. 16
Bls. 18
Bls. 24
BIs. 28
VÍSUR VIKUNNAR:
Loðnan dýrmæt að landi berst
og liggur þar oft við skemmdum
og alltaf 'meira í odda skerst
hjá atvinnumálanefndum.
Þykir víst fáum gatan greið
og greina hér nægan vanda
síldin er farin sína leið
og samningar flestir stranda.
Launakröfunum linnir sízt
lífskjörum engir fórna
á allskonar vegu auðnan snýst
einkum hjá þeim sem stjórna.
FORSÍÐAN:
Geir Hallsteinsson er tvímælalaust fremsti handknatt-
leiksmaður okkar um þessar mundir. Þessa skemmti-
legu forsíðumynd af honum hefur Baltasar teiknað
fyrir Vikuna, en á bls. 24—27 er viðtal við Geir, sem
Jón Birgir Pétursson, fréttastjóri Vísis, hefur tekið.
I CUDAHNA BANUH REYHDU AD PINNA
EINKVEHJA FLJOTVIRKAHI SJXLPS-
hohðsaofehð:
VIKAN — ÚTGEFANDI: IIILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Grön-
dal. Blaðamaður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning:
Snorri Friðriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Aug-
lýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar 35320—35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 50.00.
Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900
kr. fyrir 26 tölublöð misserislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð
mánaðarlega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar
eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst, eða mánaðarlega.
INÆSTU
VIKII
Ohætt er að fullyrða, að ekk-
ert efni, sem sjónvarpið hef-
ur flutt hafi öðlazt slíkar vin-
sældir sem Saga Forsyteætt-
arinnar. Margir hugsa til þess
með kvíða, þegar henni ljúki,
en 26. og síðasti þátturinn
verður fluttur í næstu viku.
En við getum glatt aðdáend-
ur Forsyte-sögunnar með því,
að um leið og sagan hættir
í sjónvarpinu, heldur hún á-
fram í Vikunni. f næsta blaði
byrjar ný framhaldssaga, sem
er úrdráttur úr þremur síð-
ustu bókum Johns Galswort-
hys. Þessir kaflar fjalla aðal-
lega um Cherrell-fjölskyld-
una, sem er tengd Forsyte-
ættinni. Aðal sögupersónan er
Dinny Cherrell, en hún og
Michael Mont eru systkina-
börn, og Dinny og Fleur eru
góðar vinkonur. Við hittum
líka síðar gamlan kunningja,
Wilfrid Desert, skáldið, sem
fór af landi brott vegna ofur-
ástar á Fleur. Ekki er að efa,
að margir munu vilja halda
áfram að fylgjast með lífi og
örlögum þeirra persóna, sem
hafa svo mjög hrifið sjón-
varpsáhorfendur og haldið at-
hygli þeirra í heilan vetur.
Margt fleira verður í næsta
blaði, svo sem palladómur
eftir Lúpus um Benedikt
Gröndal, grein og myndir um
Handíða og myndlistaskólann
í Reykjavík, þýdd grein um
Genfar-vatnið og smásaga
eftir hinn kunna norska höf-
und Arthur Omre, í þýðingu
Friðjóns Stefánssonar.
Síðast en ekki sízt ber að
nefna grein um Astrid Gil-
mark, sem er kunnasti miðill
á Norðurlöndum um þessar
mundir. Frú Gilmark segir
frá lífi sínu og stai-fi sem mið-
ill, m.a. segir hún frá því,
þegar hún sá fyrir morðið á
Robert Kennedy.