Vikan - 02.04.1969, Qupperneq 6
Mnsétna
náskaeooiO
Barnasaoa eftir
Herdísi Eoílsdittir
*
Ég er bara mús.
Ég veit, alveg fyrir víst,
að ykkur finnst það lítið.
En þar er ég ekki
á sama máli.
Músa-líf er líka líf.
Og mitt músa-líf
er alveg ágætt.
£g er húsa-mús
og er einstaklega heppin
með fólkið, sem ég bý hjá.
Hér er hlýtt og notalegt.
Húsmóðirin er afar hreinleg
og afbragðs matreiðslu-kona.
Börnin eru betri en
annars staðar.
Bæði eru þau matvönd
og leifa alltaf af matnum,
svo ég fæ miklu meira en nóg
að borða af bezta mat
Og svo eru þau öll,
bæði konan og börnin,
laf-hrædd við mig,
músar-tetrið, sem ræður ekki við
smáfugl, hvað þá meira!
Það finnst mér
alveg spreng-hlægilegt.
í hvert skipti, sem mér dettur
það í hug,
set ég litlu loppuna mína
fyrir munninn á mér,
til að fela montlegt bros.
Já, það er gaman
að lifa svona góðu lífi.
£g leik mér oft inni
í íbúðinni,
meira að segja á daginn.
Einu sinni komst ég þó í klípu.
£g var að skemmta mér
V___________________________J
'-----------------------------------V
í leikfanga-kassa,
sem var undir rúmi
minni stelpunnar.
Þar var yndislega
ilmandi blikkdós,
ó, ég get ekki lýst lyktinni
og held þó helzt,
að í dósinni hafi
einhverntíma verið
mjög góðir vindlar.
Jæja, ég skreið alveg
inn í hálfopna dósina,
lygndi augunum
og þefaði af öllum kröftum.
Kemur þá ekki Dóra litla,
þrífur kassann fram,
og fer að bisa við að loka
dósinni, sem ég var í.
En ég var heldur þykk,
til að komast þarna fyrir.
Dóra reyndi og reyndi
og ég var alveg í klemmu.
Hjartað í mér hoppaði
eins og það ætlaði
út úr bæði mér og dósinni.
Loks gafst hún upp
og fór að leika sér að öðru.
Þá skreiddist ég heim,
þegar ég sá mér færi,
og var aum í kroppnum
marga daga á eftir.
En ég mátti
sjálfri mér um kenna.
Dóra litla gerði þetta óvart,
hún vissi ekki,
að ég var í dósinni.
Eina nótt var ég að
leika mér í herbergi telpnanna.
Þá fann ég undursamlega lykt.
Hún var enn betri en
vindla-lyktin úr dósinni.
£g gekk um allt, þefandi,
og eftir langa leit
fann ég það út,
að lyktin kom
ofan frá kommóðu,
sem stelpurnar áttu.
í fjórðu tilraun gat ég
klórað mig upp á hana
og þá blasti við mér
ilmandi dásemdin!
Þarna stóðu hlið við hlið
tvö falleg páska-egg
úr svona líka ilmandi
súkkulaði, að mig svimaði.
Jæja, svo það voru þá
v________________________________ y
C VIKAN 14 tbl