Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 20
STUTT HÁ RFER ÖLLUM
KONUM VEL
o
Krullur eru nú mikið í tízku.
Hárið þarf auðvitað að vera vel
klippt. Það er vafið upp á stórar
rúllur, millistærð fyrir hliðar-
hárið og mjóar í hnakkahárið.
Það er um að gera að hafa sem
minnst hár á hverri rúllu og
vefja því fast á rúllurnar. Burst-
ið þurrt hárið varlega, svo krull-
urnar haldist. Túberið hvern
lokk og vefjið upp á fingur og
dreifið mjúkum krullunum eftir
eigin geðþótta....
0
Stutt, þægileg hárgreiðsla.
Hnakkahárið er stuttklippt og
látið vera oddlaga í hnakkanum.
Hvirfil og hliðarhár nokkuð síð-
ara. Vefjið hárið upp á meðal-
stórar rúllur og setjið límband
yfir hnakkahárið. Burstið hárið
vel og túperið alla lokkana og
greiðið þá nokkuð óreglulega um
höfuðið. Hliðarhárið greitt fram
með eyrunum og ennistoppurinn
greiddur niður á ennið.
0
Mjög kvenleg hárgreiðsla sem
hentar vel þykku hári. Hvirfil-
hárið vafið upp á stórar rúllur,
hliðar og hnakkahár á meðal-
stórar. Burstið hárið vel. Skiptið
hárinu og túperið allt hvirfilhár-
ið svo það verði ekki of flatt.
Framhárið er svo burstað í
mjúkar bylgjur og krullur,
sömuleiðis hnakkahárið. Lyftið
hárinu upp svo það verði létt og
mjúkt.
o
Glæsileg hárgreiðsla — en hárið
' ::x; ;i
,, y' éj//
wJím
20 VIKAN 14- tbl