Vikan - 02.04.1969, Side 21
þarf að vera þykkt. Notið stórar
rúllur í hvirfilhárið, minni í
hliðar og hnakkahár. . Burstið
varlega, skiptið hárinu öðru-
hvorumegin við miðju, túperið
hvern lokk varlega. Svo er hárið
greitt í þykkar krullur, og stór
pylsulaga krulla dregin fram yf-
ir skiptinguna.
0
Tvær hárgreiðslur fyrir stutt
hár. Hárið lagt í óreglulegar
krullur um allt höfuðið. Vefjið
upp á millistærð af rúllum og
setjið límband yfir hnakkahárið.
Hárið er allt túperað og greitt í
bylgjur og krullur. Hliðarhárið
er hægt að greiða fram að kinn-
unum eða aftur með eyrunum.
o
Þessar greiðslur fyrir grátt hár
eru sérstaklega fallegar ef hárið
er vel hirt. Og þegar hárið
fer að grána er sérstaklega
nauðsynlegt að það sé vel klippt
reglulega. Það er ekkert eins öm-
urlegt og gráar hárflækjur
kringum gamalt andlit. Báðar
þessar hárgreiðslur hafa stutt
hnakkahár, en þykkt hársins
ræður hvort heppilegra er að
hafa það stutt eða frekar sítt.
Hárið er vafið upp á meðalstór-
ar rúllur, hnakkahár og jafnvel
hliðarhár fest niður með lím-
bandi. Burstið svo varlega þurrt
hárið og túperið það létt. Svo
er hárið greitt eftir geðþótta,
ýmist með mjúkum bylgjum
fram á ennið og niður með eyr-
unum, eða því er lyft frá enn-
inu. Báðar þessar hárgreiðslur
eru kvenlegar og henta mjög vel
miðaldra og eldri konum.
14 tbl VIKAN 21