Vikan - 02.04.1969, Qupperneq 23
eftir er af hárinu er snúið upp í
lausan tappatogara, sem lagður
er yfir aðra öxlina. Hliðarlokk-
arnir greiddir fram á við og enn-
istoppurinn vel niður á ennið.
o
Grátt hár getur verið mjög
glæsilegt, það er að segja ef það
er vel snyrt. Það þarf ekki að
vera sítt, nema það eigi að vera
sett upp eins og hér er sýnt. Not-
ið millistórar rúllur og burstið
þurrt hárið varlega. Hnakkahár-
ið er túperað og ennishárið er
greitt í mjúkri bylgju til ann-
arrar hliðar. Hvirfilhárinu er svo
skipt niður í lokka, sem eru fest-
ir niður með spennum.
0
Það er hægt að gera margt við
sítt hár. Þessi hárgreiðsla er ein-
föld en hátíðleg. Það er hægt að
hafa hana einfaldari til daglegs
brúks. Hvirfilhárið er vafið upp
á stórar rúllur, millistórar og
mjóar í hnakkahárið. Framhárið
er burstað aftur og fest við með
teygju við hnakkahárið. Krull-
urnar eru burstaðar varlega og
vafið upp á fingur, svo þær verði
jafnar og fastar, festar niður með
ósýnilegum spennum. Hnakka-
hárið er beygt vel inn á við.
o
Uppsett hár getur verið mjög
glæsilegt, ef það er fallega sett
upp. Notið stórar rúllur fremst,
stórar efst í hnakkahárið og mjó-
ar neðst. Hliðarrúllurnar eru
vafðar fram á við, það gefur
meiri fyllingu við eyrun. Burstið
hárið frá enninu og skiptið því
svo í efra og neðra lag. Neðra
lagið er sett upp í rúllu, efra lag-
ið er bundið í tagl. Skiptið svo
hárinu í jafna lokka, túperið þá,
vefjið þeim upp á fingur og fest-
ið niður með spennum, yfir og
kringum rúlluna í hnakkanum.
0
Notið stórar rúllur í hvirfilhárið
og minni fyrir hnakkahárið.
Skiptið hárinu í þrennt og byrj-
ið á neðsta hárinu, sem sett er
upp í rúllu. Miðlokkurinn er
túperaður og greiddur niður yfir
rúlluna og festur með spennum.
Hvirfilhárið er túperað, greitt
slétt aftur með höfðinu og fest
með spennum. Það er gott að
festa líka til hliðar með spenn-
um, svo hárið falli ekki niður.
Við hárgreiðsluna sem er neðst
er hægt að nota annaðhvort laus-
ar fléttur eða að flétta eigið hár.
Hárið er vafið upp stórar rúllur
og burstað varlega. Framhárið
greitt til hliðar. Hvirfilhárið
fléttað og bundið um fléttuna í
slaufu. Hnakkahárið er svo greitt
og túperað neðst svo það slái sér
vel út. Framhárið er svo greitt
aftur og fest þar sem fléttan
byrjar.