Vikan - 10.04.1969, Blaðsíða 3
IÞESSARIVIKU
PÓSTURINN ........................ Bls. 4
PALLADÓMUR EFTIR LÚPUS ........... Bls. 6
DAGLEGT HEILSUFAR ................ Bls. 8
MIG DREYMDI ...................... Bls. 9
SAGA FORSYTEÆTTARINNAR ........... Bls. 10
HÚN SÁ FYRIR MORÐIÐ Á KENNEDY..... Bls. 12
MÚSAGILDRAN ...................... Bls. 14
GENFARVATN ....................... Bls. 16
ANGELIQUE í VESTURHEIMI .......... Bls. 18
EFTIR EYRANU ..................... Bls. 20
MÓTAÐ OG MÁLAÐ FRÁ MORGNI TIL KVÖLDS Bls. 22
VIÐ HVERJA SNERTINGU HANS......... Bls. 28
VÍSUR VIKUNNAR:
Nú vorar senn og veðrin fara að hlýna
og vorköld jörðin tekur gleði sína
og jafnvel gamlir skarfar skerpa róminn
og skipa oss að hætta að berja lóminn.
Er langur vetur leggur upp og kveður
þá lifnar flest er hjörtun ungu gleður
og vakna upp af dvala lönd og lýðir
en Langholtsprestar hætta að syngja tíðir.
FORSÍÐAN:
Sögu Forsyte-ættarinnar er lokið í sjónvarpinu, en
hún heldur áfram í Vikunni. Við hefjum í þessu blaði
birtingu úrdrátts úr þremur síðustu bindunum, sem
ekki voru kvikmynduð. Á forsíðunni sjáum við hina
vinsælu Fleur Forsyte, sem leikin var af Susan
Hampshire.
VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Grön-
dal. Blaðamaður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning:
Snorri Friðriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Aug-
lýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, aígreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar 35320—35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 50.00.
Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900
kr. fyrir 26 tölublöð misserislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð
mánaðarlega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar
eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst, eða mánaðarlega.
I NffSTU
VIKU
Fyrir nokkrum árum hafði
dr. Aspirín fasta þætti í Vik-
unni, þar sem hann fjallaði
um ýmis málefni þjóðlífs,
bæði á sviði efnahags- og at-
vinnumála og eins á sviði
menningar. Dr. Aspirín kom
víða við og hafði skorinorðar
skoðanir á öllu. Hann var lít-
ið fyrir að láta almennings-
álitið ráða fyrir sig eða veita
því brautargengi. Dr. Aspirín
hefur nú látið tilleiðast að
skrifa á ný þátt fyrir Vikuna
og geta þeir hugsanlega orð-
ið fleiri. Þátturinn birtist í
næsta blaði og heitir Þjóff-
ernisrembingur í anda Sölva
Helgasonar.
„Á lágum ás milli Hóps og
Húnavatns stendur höfuðból-
ið Þingeyrar. Þar gerðust
fyrr á öldum frægir atburðir
og þar hefur löngum verið
höfðingja- og helgisetur, fyrst
í kaþólskum og síðar í lút-
herskum sið. En þótt yfir
sögu Þingeyra sé víða ljómi
guðsdýrkunar og góðra siða,
þá hefur veraldargleði ekki
alltaf verið þar útlæg gerð.“
— Þetta er ofurlítið brot úr
grein, sem Þorsteinn Matthí-
asson skrifar í næsta blað
undir fyrirsögninni Síffsum-
arsdagur viff Húnavatn.
1 sjónmáli er sagt frá upp-
töku á þættinum Á vetrar-
kvöldi, grein er um nýju,
hljóðfráu þoturnar og síðast
en ekki sízt minnum við á
nýju framhaldssöguna, Sögu
Forsyte-ættarinnar. Hún er
hætt í sjónvarpinu, en held-
ur áfram hér í Vikunni.