Vikan - 10.04.1969, Blaðsíða 6
EFTIRIÚPUS
Alþýðuflokkurinn átti litlu
brautargengi að fagna í Borg-
arfirði lengi framan af, ef und-
an var skilið tryggasta verka-
lýðsfylgi hans á Akranesi, og
bar einkum tvennt til. Pétur
Ottesen var jafnan svo örugg-
ur um kosningu, að keppi-
nautar hans stóðu uppi von-
lausir, og borgfirzkir bændur
tregðuðust við að greiða jafn-
aðarmönnum atkvæði, þó að
sú stefna ætti hljómgrunn
meðal þeirra fyrr á árum.
Ennfremur skorti festu og
skipulag í framboðum Al-
þýðuflokksins í héraðinu
þangað til Benedikt Gröndal
kom til sögunnar, en honum
tókst þegar í upphafi að vekja
athygli og vinna traust kjós-
enda. Raunar hreppti hann
framboðið af tilviljun. Mun
hann sér í lagi hafa notið
móðurbróður síns, Hálfdanar
Sveinssonar, sem gerðist um
þær mundir drjúgur áhrifa-
maður í stjórnmálunum á
Akranesi, en hugði engan
veginn sjálfur á frama í sýsl-
unni. Hins vegar réði úrslit-
um, að Benedikt var ungur og
vaskur og nennti að leggja sig
duglega fram í baráttunni. Er
árangur hans einna söguleg-
6 VIKAN 15 tbl
astur af landvinningum Al-
þýðuflokksins síðustu tvo
áratugi, því að hann hefur
unnið stórt og erfitt kjördæmi
og gerzt umsvifamikill for-
ingi á ungum aldri.
Benedikt Gröndal fæddist
að Ilvilft í Onundarfirði í
Vestur-Isafjarðarsýslu 7. júlí
1924 og er sonur Sigurðar
Gröndals veitingamanns og
síðar yfirkennara í Reykja-
vík og konu hans, Mikkelínu
Maríu Sveinsdóttur. Fluttist
Benedikt með foreldrum sín-
um til höfuðstaðarins barn að
aldri og ólst þar upp elztur
í hópi margra systkina. Hann
varð stúdent í Reykjavík
1948, en hélt því næst vestur
um haf, stundaði nám við
Harvardháskóla í Massa-
chusetts í Bandaríkjunum og
lauk þaðan prófi 1940. Hafði
Benedikt unnið við Alþýðu-
blaðið menntaskólaárin jafn-
hliða náminu og mun snemma
hafa ákveðið að leggja fyrir
sig blaðamennsku. Heimkom-
inn að loknu námi sínu í
Bandaríkjunum varð hann
fréttastjóri Alþýðublaðsins og
gegndi því starfi til ársins
1950. Þá réðst hann ritstjóri
Samvinnunnar og var einnig
HHin
forstöðumaður fræðsludeildar
Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga síðustu árin, með-
an hann vann því.. Benedikt
varð ritstjóri Alþýðublaðsins
1959 og er ennþá. Ilann var
formaður útvarpsráðs 1950—
1959 og enn frá 1900. Hann
var kosinn í miðstjórn AI-
þýðuflokksins 1950 og hefur
verið endurkjörinn til þess
trúnaðar ávallt síðan, var
varaformaður flokksins 1059
—1954, þegar Hannibal
Valdimarsson skipaði þar önd-
vegi, en varð ritari flokksins
1907 og aftur varaformaður
hans 1908 og erfði bæði þau
embætti af Gylfa Þ. Gísla-
syni. Benedikt er landskunn-
ur útvarpsfyrirlesari og hef-
ur samið minnsta kosti þrjár
bækur. Aðalatvinna hans
telst þó blaðamennska og rit-
stjórn auk stjórnmálanna, en
hann er og fulltrúi Alþýðu-
flokksins í mörgum nefndmn
og við ýmis tækifæri heima
og erlendis.
Stjórnmálaáhugi Benedikts
Gröndals kom snemma í ljós,
og mun hann hafa gerzt jafn-
aðarmaður strax á mennta-
skólaárunum. Eftir námsdvöl-
ina í Bandaríkjunum kom
hann brátt við sögu í samtÖk-
um ungra jafnaðarmanna, og
þótti greinilegt, að hann
hygði á nokkum frama.
Hann valdist til framboðs
fyrir Alþýðuflokkinn í Borg-
arfjarðarsýslu við alþingis-
kosningarnar 1949, og þar
með var teningunum kastað.
Kom hann mjög á óvart í bar-
daganum, fékk 453 atkvæði
og stórjók fylgi flokksins frá
kosningunum 1940. Munaði
aðeins 24 atkvæðum á Bene-
dikt og frambjóðanda Fram-
sóknarflokksins í héraðinu, og
virtust þegar horfur á, að
hann tæki forustu í keppninni
við Pétur Ottesen um hylli
Borgfirðinga. Svo varð og í
kösningunum 1953. Hlaut
hann 548 atkvæði í kjördæm-
inu og 189 umfram frambjóð-
anda Framsóknarflokksins,,
en þá var Benedikt í þjónustu
SIS og þótti sýnu þýðari í
umgengni og málflutningi við
bændur en flokksbræður
hans, þó að mest munaði um
fylgisaukninguna á Akranesi.
í kosningunum 1950 var svo
Benedikt frambjóðandi
„hræðslubandalagsins“ í
Borgarfirði, og þóttu úrslit-
in þar stórtíðindum sæta..