Vikan - 10.04.1969, Page 22
MOTAÐ OG MALAÐ
FRÁ MORGNI TIL KVÖLDS
í anddyri skólans er höggmynd af
Lúðvig Guðmyndssyni, stofnanda
Handíðaskólans og skólastjóra hans í
rúma tvo áratugi. Myndin er gerð af
Sigurjóni Ólafssyni, myndhöggvara.
LJÓSMYNDIR:
KRISTJÁN MAGNÚSSON
MYNDLISTA- OG HANDÍÐASKÖLINN VERÐUR ÞRÍ-
TUGUR í HAUST. AÐSÖKN AÐ SKÖLANUM HEFUR
ALDREI VERIÐ MEIRI EN NÚ, ENDA FER ÁHUGI Á
MYNDLIST STÖÐUGT VAXANDI. - Á ÞESSUM OPN-
UM ER BRUGÐIÐ UPP NOKKRUM SVIPMYNDUM AF
HINU FJÖLBREYTTA STARFI SKÖLANS, ÞAR SEM
NEMENDUR MÖTA OG MÁLA FRÁ MORGNI TIL
KVÖLDS.
T\/n yndlistaráhugi er nú meiri hér
M á landi en nokkru sinni fyrr.
Opnun nýrra málverkasýninga
má heita daglegur viðburður, þótt
ekki séu menn sammála um list-
rænt gildi þeirra allra. Þessi mynd-
I istará hugi kemur meðal annars
fram í stöðugt vaxandi aðsókn að
Myndlista- og handíðaskóla Islands.
Skólinn verður þrjátíu ára í haust.
Lúðvíg Guðmundsson var stofnandi
hans og skólastjóri í rúma tvo ára-
tugi. Brautryðjendastarf hans hefur
orðið myndlist í landinu til mikils
ávinnings og mun seint ofmetið.
Kurt Zier gerðist snemma starfsmað-
ur við skólann og segja mál, að
hann hafi byggt kennsluna upp.
Hann kenndi um árabil, en hvarf
síðan aftur til Þýzkalands. 1961
fluttist hann aftur hingað til lands
og varð skólastjóri. Hann gegndi
því embætti þar til í fyrra, er hann
lét af störfum samkvæmt eigin ósk.
Tók Hörður Ágústsson, listmálari, þá
við stjórn skólans.
Vikan heimsótti Myndlista- og
handíðaskólann fyrir nokkru og tók
svipmyndir af því lifandi og fjöl-
breytta starfi, sem þar fer fram.
Hörður Ágústsson leiddi okkur úr
einni stofunni í aðra og sýndi okk-
ur, hvað væri að gerast. Það var
unnið af kappi á öllum hæðum við
ólíklegustu verkefni, bæði hagnýt
og listræn. Nemendur skólans eru
nú alls um 400 hundruð. Þeir eru á
öllum aidri, en mest ber þó á ungu
fólki.
Námið skiptist í tvo hluta, for-
22 VIKAN 15- tbl