Vikan - 10.04.1969, Side 27
Híjj 7T\ íp f Iffl
■ JUÍn]. U 11 ínl iU u.
Hér er námskeið í teiknun, málun og
föndri barna á aldrinum 6 til 8 ára.
Kennari er Katrín Briem, dóttir Jó-
hanns Briem, listmálara. Þegar mynd-
irnar voru teknar voru páskarnir í
nánd og krakkarnir. teiknuðu hænu-
unga og páskaegg í öllum regnbogans
litum.
Síðast litum við inn í tíma í hagnýtri grafík og auglýsingateiknun.
Þar er kennd teiknun umbúða og merkja, bókaskreytingar, stafagerð,
umbrot blaða og tímarita, skipulag sýninga, mótun og smíði líkana
og ótalmargt fleira. Hér er kennarinn, Gísli B. Björnsson, að ræða
verkefni dagsins við nemendur sína.
Myndirnar fjórar vinstar megin hér á opnunni eru teknar í tíma 1 myndmótun
eða höggmyndalist hjá Jóhanni Eyfells (til vinstri á myndinni hér til hægri).
í þessari deild er kennd frjáls mótlist, líkams og andlitsmyndir, lágmyndir,
gipsskurður, afsteypingaraðferðir og fleira. Þegar okkur bar að garði voru
nemendur hver og einn að vinna sitt eigið skúlptúr-verk. Eins og sjá má eru
formin margvísleg og margs konar efni notað.
26 VIKAN 15- tbl-
15. tbi. VIKAN 27