Vikan - 10.04.1969, Síða 48
STUNDUM GETUR VERIÐ GOTT AÐ BREYTA
ÍRSKUR FISKRÉTTUR
3 sneiðar beikon, brytjað
3 sneiðar af lauk
1 Vz pund ýsu- eða þorskflök
3 miðlungsstórar gulrœtur,
sneiddar smátt
1 pund kartöflur, brytjaðar
fremur smátt
4 tesk salt
Yz tesk pipar (eða nokkur heil
piparkorn eftir smekk)
Vatn, tómatlögur eða heilir
tómatar, þegar þeir fást.
Beikon brasað í potti og látið
brúnast örlítið. Tekið upp úr og
geymt á pappír. Laukurinn lát-
inn í pottinn og mallaður vel
meyr. Fiskurinn skorinn í frem-
ur litla bita, látinn í pottinn
ásamt gulrótum, kartöflum og
kryddi. Vatni hellt yfir svo fljóti
yfir fiskinn, lok látið á pottinn
og látið krauma við fremur væg-
an hita í 15—20 mín. Tómatlegi
bætt í eftir smekk, sömuleiðis
salti, ef með þarf. Beikoninu
stráð yfir og rétturinn borinn
fram í pottinum. Með þessu má
hafa hrökkbrauð eða seytt rúg-
brauð.
FISKUR í OFNI
1 kg fiskflök (nægir handa 6).
Fiskurinn skorinn í hæfileg
stykki, eða lítil flök höfð heil.
Stykkjunum skal nú dýfa í salt-
aða mjólkurblöndu (2 tesk salt
í V4 bolla mjólk), síðan velt upp
úr brauðmylsnu (raspi) eða fín-
muldu corn flakes. Þessa mylsnu
má bragðbæta með dálitlum
rifnum osti, sem á mjög vel við
steiktan fisk. Fiskinum raðað í
eldfast mót, saladolíu eða dálitlu
bræddu smjörlíki hellt hér og
hvar yfir fiskinn, bakað í vel
heitum ofni 15-—20 mín. Þá á
fiskurinn að vera orðinn fallega
brúnn.
FISKUR í PÖNNU
1 Yz pund fiskflök
2 tsk salt
1 matsk smjör eða smjörlíki
1 brytjaður laukur, meðalstór
V\ bolli vatn
Vz tsk sítrónusafi.
Notið stóra pönnu með loki.
Feitin brædd á pönnunni og
laukurinn látinn í, Fiskbitunum
raðað ofaná, salti stráð yfir. Um
leið og sýður er pönnunni lokað
vel. Látið sjóða við fremur góð-
an hita í 5—10 mín.
Þessari grunnaðferð má svo
breyta, hvað bragð snertir t.d.
með þvi að sjóða tómata með
fiskinum þegar þeir fást, blanda
2—4 matsk. af sveppasúpudufti
út í soðið og láta það smákrauma
í svolitla stund, áður en fiskur-
inn er borinn fram. Einnig má
krydda með örlitlu hvítlauks-
dufti, papriku eða Worchesters-
hiresósu fyrir þá, sem það vilja.
Til þess að flýta fyrir fisk-
suðunni og einnig til þess að
minna vatn þurfi til þess að sjóða
í, er gott að hafa stykki af vax-
eða smjörpappír lagt yfir pönn-
una, undir lokið, síðan er gert
gat á miðju pappírsins svo guf-
an komist út, síðan er pönnunni
lokað á venjulegan hátt.
FISKUR MEÐ KARRY
30 gr. smjör eða smjörlíki
1 meðalstór laukur, sneiddur
1 lítið epli, sneitt
4 tesk. karryduft
2 bollar fisksoð eða vatn
Salt eftir smekk
1 Vz pund fiskflök, skorin í stykki
1 tesk. sítrónusafi.
Feitin brædd í potti, laukur og
eplasneiðar látnar malla í, unz
þær eru meyrar, ekki brúnaðar.
Karryduftið látið útí, látið
krauma aðeins með, þá er fisk-
stykkjunum raðað í, saltað og
vökvanum hellt yfir, soðið undir
loki við fremur vægan hita í
5—10 mín. Borið fram með soðn-
um hrísgrjónum.
BAKAÐUR FISKHLEIFUR
2 pund ýsa
2 bollar mjúk brauðmylsna
2 bollar mjólk
2 matsk. rifinn laukur
3 þeyttar eggjarauður
2 tesk. salt
V\ tesk. pipar
Vz tesk. selerisalt (má sleppa)
3 þeyttar eggjáhvítur
Fiskurinn grófhakkaður eða
skafinn, öllu blandað saman
nema eggjahvítunum, hrært að-
eins saman. Þá er þeyttum eggja-
hvitunum blandað varlega sam-
an við. Bakað í eldföstu móti,
sem látið er standa í vatni í ofn-
skúffunni. Bökunartími ca. 1
klst. við meðalhita.
FISKRÉTTUR MEÐ OSTI
500 gr. fiskflök
salt, pipar og paprika
40 gr. smjör eða smjörlíki
Vz dl.vatn
100 gr. feitur ostur
2 matsk. franskbrauðsmylsna
(eða rasp)
Eldfast fat smurt vel. Fiskflökin
skorin í hæfilega bita, lögð í fat-
ið og kryddinu stráð yfir. Smjör-
líkisbitunum stráð yfir og vatni
hellt yfir. Lok látið yfir eða ál-
pappír lagður þétt yfir, soðið ca.
10 mín. í ofni. Þá er fiskurinn
þakinn með ostsneiðum, mylsn-
unni stráð yfir, látið í ofninn
aftur unz osturinn er bráðinn og
aðeins gulbrúnn. Borðað strax
með kartöflum og einhverskonar
hrásalati, ef til er.
FISKUR í HÁTÍÐABÚNINGI
1 kg þétt ýsuflök eða þunnar
sneiðar af heilagfiski
salt
3 dl vatn og safi af hálfri
sítrónu
100 gr rœkjur
50 gr. sveppir.
GRATINSÓSA:
4 matsk. smjör eða smjörlíki
3Vz matsk. hveiti
4 dl. síað fisksoð
2 dl mjólk eða rjómi
salt og pipar eftir smekk
1—2 eggjarauður
Fiskurinn hreinsaður, núinn með
salti og skorinn í hæfilega bita.
Þeim raðað í smurt eldfast mót
og vatn og sítrónublöndunni hellt
yfir. Fatinu lokað með loki eða
álpappír, soðið í 250° heitum
ofni í ca. 30 mín.
Smjör og hveiti bakað upp í
sósuna, þynnt út með fisksoði og
mjólk (rjóma). Sósan látin smá-
sjóða í 5 mín. Tekin af eldavél-
inni og eggjarauðunum hrært
saman við, þá rækjum og smjör-
steiktum sveppum. Saltað og
48 VTKAN 15- tbl