Vikan - 10.04.1969, Qupperneq 49
TIL í MATREIÐSLU Á FISKI OG ERU HÉR BIRTAR NOKKRAR TILBREYTINGAR
piprað eftir smekk. Sósan látin
kólna í lokuðu íláti svo ekki
myndist börkur ofaná.
Um það bil 25 mín. áður en
setjast skal að borði er sósunni
hellt yfir fiskinn og allt bakað í
250° ofni í þessar 25 mín. Borið
strax fram með heitum kartöfl-
um.
FISKRÚLLUR
lVz pund fiskflök
lVz bolli mjólk
1 tesk. salt
ögn af pipar
200 gr ostur
3 matsk. smjörlíki
3 matsk. hveiti
3 matsk. sítrónusafi
Flökin skorin í hæfilegar lengj-
ur svo hægt sé að snúa þau sam-
an í rúllur eins og myndin sýn-
ir. Rúllunum raðað í grunnt eld-
fast mót.
Mjólk hellt yfir, kryddað. Lát-
ið á ofngrindina í miðlungsheit-
an ofn og bakað í ca. 30 mín. Á
meðan fiskurinn bakast er ost-
urinn rifinn og smjörlíki brætt.
Mjólkinni heilt varlega af
fiskinum, einnig má ausa henni
upp með skeið ef hætta er á að
flökin losni sundur. Hveiti hrært
út í feitina, þynnt út með mjólk-
ursoðinu, látið sjóða hægt. Ost-
urinn látinn í, hrært unz hann er
bráðinn. Sítrónusafa bætt útí.
Sósunni er hellt varlega yfir
fiskrúlurnar, ögn af papriku má
strá yfir. Hitinn aukinn aðeins í
ofninum, fatið látið á ofngrind-
ina og hún færð ofar. Látið brún-
ast örlítið. Borið fram með kart.-
öflum eða soðnum hrísgrjónum.
Sósur er gott að hafa með
steiktum fiski og þurfa þær helzt
að vera fljótgerðar og ekki mjög
dýrar.
Gott er að baka upp: 75 gr
smjörlíki og 75 gr hveiti og þynna
með mjólk. Síðan má láta margs-
konar bragðbæti í t.d. ögn af
majones og sítrónusafa. Þá er
komin sítrónusósa.
Saxið súrsað grænmeti (picles)
og hrærið saman við jafninginn
ásamt dálitlum majones þá er
komin remolaðesósa. Sinnep-
sósa fæst með því að láta ca. 2
tesk. af sinnepi útí og þannig
getur hver og einn fundið krydd
að eigin smekk.
☆
Gott að vlta
Til þess að vinna sér í hag
við smákökubakstur er eít-
irfarandi ráð mjög gott: Búið
til einskonar „plötnr“ úr ál-
pappír, jafnstórar bökunar-
plötunni. Smákökurnar eru
svo búnar til og látnar á eins
margar álplötur og með þarf.
Þegar bökun befst er ekki
annað að gera en renna bök-
unarplötunni varlega undir
álplötuna og láta allt í ofn-
inn, síðan koll af kolli og eng-
in bið eftir að látið sé á
plötu jafnhliða bökuninni.
] pund af saltfiski afvatnað yfir nótt. Soðið á þann
hátt að vatnið er hitað upp að suðu og síðan látið vera
á minnsta straum þangað til fiskurinn er gegnsoðinn
án þess að losna í sér. Fiskurinn á lielzt ekki að hafa
neitt saltbragð þegar hann er soðinn, svo jafnvel þyrfti
að skipta um suðuvatn a.m.k. einu sinni.
Látið 'ý bolla af smáskornum lauk malla í 2 matsk.
af smjörlíki. Hrærið saman við / mcitsk. hveiti, 1\•>
teslc. karry og bakið upp, þynnt út með mjólk og dá-
lillu liænsnakjötssoði (af teningum). Látið sjóða í gegn.
1 ó bolli kókósmjöl er látinn malla í 2 tesk. af smjörlíki.
Látið til hliðar og sneiðar af beikon brúnaðar á pönn-
unni unz þær eru stökkar. Saltfiskurinn Uitinn í sósuna,
soðið á minnsta straum í 10 mín., hrært af og til. Kók-
ósmjölinu blandað útí, ásamt 1 tesk. sítrónusafa og ögn
af pipar. Soðin hrísgi’jón borin með og beikonið mulið
og stráð yfir þau. Þetta ætti að nægja handa 4—6.
Þessa uppskrift mætti sem bezt hafa til þess að nota
upp saltfiskafganga, því ekkert gerir til þótt fiskurinn
sé kaldur.
15. tbi. VIKAN 40