Vikan - 23.04.1969, Blaðsíða 2
Colgate fluor
gerir tennurnar sterkari
við hverja burstun
Spyrjið tannlækni yðar...
hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate Fluor hefur
mikla þýðingu fyrir tennur yðar og allrar fjölskyldunnar.
Byrjið í dag
- það er aldrei of seint...
Frá allra fyrstu burstun styrkír Colgate Fluor tannglerunginn
og ver tennurnar skemmdum. IVIeð þvi að bursta tennurnar
daglega með Colgate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn
gegn sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög er hætt
við að eyðileggi tennurnar, ekki sízt tennur barnanna.
Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem aöeins Colgate Fluor tannkrem hefur.
Hungurvaka
Hungurvakan, sem Æsku-
lýðsráð efndi til um páskana,
vakti talsverða athygli. Mörg-
um þótti þetta uppátæki ung-
linganna fánýtt og broslegt og
í engu samræmi við mesta
vandamál mannkynsins:
hungrið.
En gagnrýni af þessu tagi
er á misskilningi byggð. Tákn-
rænar athafnir eins og þessi
leysa að vísu ekki vandamál-
ið sjálft og eru að því leytinu
vanmáttugar, en þær eru mik-
ils virði þeim einstaklingum,
sem taka þátt í þeim. Þarna
gafst æskunni tækifæri til að
sýna hug sinn í verki; sanna
áþreifanlega, að hún er reiðu-
búin til að leggja mikið á sig
til þess að votta sveltandi lýð
heimsins samúð og virðingu.
Skyldi ekki einmitt þetta hug-
arfar vera fyrsta skrefið í þá
átt, að meira verði unnið að
því að leysa þetta uggvæn-
lega vandamál?
Meðan landsmenn sátu við
ríkulegt matarborð um pásk-
ana og kýldu vömbina, — sat
unga fólkið niður í fþöku og
fastaði. Með því móti vakti
það á áhrifamikinn hátt at-
hygli á þeirri staðreynd, að
helmingur mannkyns sveltur
— og mótmælti henni.
Fordæmi æskunnar mætti
vera umhugsunarefni þeim,
sem eldri eru og lífsreyndari.
Auðvitað er það vonlaus hug-
sónabarátta að ætla sér að
frelsa heiminn og seðja hung-
ur milljóna með tómum hönd-
um. En það skaðar ekki, að
lýsa því yfir, að maður uni
illa slíku ástandi.
G.Gr.