Vikan


Vikan - 23.04.1969, Blaðsíða 8

Vikan - 23.04.1969, Blaðsíða 8
HAGSÝN HÚSMÓÐIR NOTAR HJÁ TANNLÆKNI Kæri draumráðandi! Mig dreymdi draum fyr- ir skömmu, sem mig lang- ar mjög mikið til að fá ráð- inn. Mig dreymdi að ég væri kominn með falskar tenn- ur og ég væri hjá tann- lækni, vegna þess að enda- jazlarnir væru vaxnir und- ir gómnum. Læknirinn sagði, að eina ráðið væri að draga þá úr, en það væri mjög erfitt og sárs- aukafullt. Hann sýndi mér eina slíka aðgerð og var gómurinn allur upprifinn. Við þá sýn vildi ég ekki láta draga jaxlana úr mér. En þá hafði hann engin umsvif, en með hjálp að- stoðarmannsins tóku þeir mig og settu í spennitreyju og byrjaði hann að draga jaxlana úr mér. Þess skal getið, að ég hef mjög góðar tennur, og endaiaxlarnir eru löngu komnir. Með fyrirfram þökk. E. U. Ég stóð ásamt tveimur vinkonum mínum og fleira fólki fyrir utan veitinga- hús hér í Reykjavík. Inni var Dýrlingurinn, eða sá sem leikur hann í sjón- varpinu, og alla langaði auðvitað til að komast inn Og sjá hann. Við vinkon- urnar voru svo heppnar að komast inn. Og þarna sat Dýrlingurinn í verka- mannafötum og var að borða ásamt fleiri mönn- um. Ég settist við borðið fyr- ir framan hann og byrjaði að kyssa hann, en hætti því fljótt og tók í staðinn að horfa í augun á honum. Þá stóð hann upp og fór, en kom aftur að vörmu spori til mín og var með eitthvað í skeið. Hann bað mig að borða það, og auðvitað vildi ég gera það, af því að þessi frægi maður bað mig um það. En mér fannst þetta svo mikið, að ég setti svolítið af því á disk og ætlaði að fara að borða það. Þá segir Dýrlingurinn: — Þetta er skotsár Ro- berts heitins Kennedy! Um leið sá ég greinilega sárið. Ég tók það upp og kreisti það, svo að úr því vall blóð. En ég borðaði það aldrei, því að draum- urinn varð ekki lengri. Með fyrirfram þökk, Ein sem dreymir sjaldan. Gólfdúkur — plast, vinyl og línóleum. Postulíns-veggflísar — stærðir 7V2X15, 11x11 og 15x15 cm. Ameriskar gólffiísar — Good Year, Marbelló og Kentile. Þýzkar gólfflísar — DLW. Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur. Málningavörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slippfél. Rvíkur. Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi. Fúavarnarefni — Sólinum, Pinotex. Silicone — úti — inni. Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung. Vinyl veggfóður — br. 55 cm. Veggfóður — br. 50 cm. Þú lendir í þeirri erfiðu aðstöðu að þurfa að gera vini bínum eitthvað, sem Viann mun líklega seint fyrirgefa þér. Þið eruð m’ö<>- samrvmdir Og góðir vinir. en hannig er í pott- inn búið. að þér þer skvlda að ritthvað. sem vinur binn vill alls ekki að bú gerir og snertir hann miö»- wikið. Þetta veldur bér miklum erfiðleikum og óbm'dndum. en þjá þessu v-rður ekki komizt. HÝPI iMm IRIMM no r£r porfrTS i/fmnfDYS Kæri draumráðninga- þáttur! Ég skrifa ykkur þetta bréf í von um, að þið ráð- ið fyrir mig draum, sem mig dreymdi fyrir stuttu. Hann er svona: Dreymi mann leikara er það oftast aðvörun um að gæta sín fyrir svikum, jafnvel í tryggðum. Einnig boðar það hættu þess efnis, að hinar nákvæmustu fyr- irætlanir kunni að renna út í sandinn vegna fljót- færni eða kæruleysis. Þetta kemur heim og saman við draum þinn. Blóð og sár eru undantekningalítið ills viti í draumi og enda þótt Dýrlingurinn hafi viljað láta þig borða sárið, þá gerirðu það ekki. Draum- urinn er sem sagt aðvör- un til þín, svo að þú skalt fara gætilega á næstunni. ÚTILEGA UM HAVETUR Kæra Vika! Mig dreymdi, að ég ók í bíl með manni, sem ég Framhald á bls. 50. 8 VIKAN «•tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.