Vikan


Vikan - 14.08.1969, Page 7

Vikan - 14.08.1969, Page 7
Valin eiturefni Kæri Póstur! Nú á samkvæmt lögum al- þingis að merkja alla sígarettu- pakka og gera öllum viðskipta- mönnum ljóst, að hér sé um val- in eiturefni að ræða, sem geti valdið bæði krabbameini og kransæðastíflu. Þetta er að vísu ekki komið til framkvæmda enn, en mun vera í bígerð. Þetta er svosem allt í lagi í sjálfu sér, svo langt sem það nær. En skyldi ekki fleirum en mér finn- ast það svolítið einkennilegt, þegar sjálft ríkið græðir á því að selja eiturlyf, sem allir eru sammála um að séu stórhættu- leg og banvæn? Ungu fólki eins og mér finnst þetta vægast sagt furðulegt. Ég hef aldrei reykt og hef reynt eins og ég hef get- að að fá foreldra mína til að hætta að reykja. Ég vil nefni- lega fá að njóta þeirra eins lengi og hægt er. Ég þakka fyrir þáttinn „Eftir eyranu“ og margt fleira efni, sem Vikan birtir. Táningur. Enginn neitar því, að tóbak og áfengi séu skaðleg fyrirbæri, þótt þau séu ekki „eiturlyf" í þeim skilningi, sem við leggjum í það orð. Og auðvitað er það óþægileg tilfinning, að ágóði af tóbaks- og áfegnissölu skuli vera ein helzta tekjulind ríkissjóðs. Þú skalt halda áfram að berjast gegn tóbaksreykingum og linna ekki látum. fyrr en þú hefur náð árangri. Það er góðs viti, þegar táningarnir eru farnir að ala upp foreldra sína. Fjarverandi Kæri Póstur! Ég ætla að biðja þig að hjálpa mér, ef þú getur. Þannig er, að ég kaupi BRAVO blöðin, þýzku, þegar þau koma í bókabúðir hér. En í haust sem leið var ég fjarverandi og missti af þeim fram yfir áramót. Nú langar mig til að eignast þessi blöð. Hvað á ég að gera? Dísa. P.S. Hvernig er stafsetningin? Snúðu þér til bóksalans þíns. Hann ætti að geta hjálpað þér. Stafsetningin er ekki nógu góð: Biðja er ekki með ypsiloni, og orðið fjarverandi er ekki staf- sett fjærverandi. Farin að grána Kæri Póstur! É'g er ung kona, ekki nema rétt um þrítugt, en ég á mér eitt alvarlegt vandamál: ég er farin að grána. Mér finnst allir horfa á mig, mér finnst þetta alls stað- ar bitna á mér. Litla systir er meira að segja farin að kalla mig „kerlinguna". Ég hef alltaf verið á móti háralitun, því að mér finnst hún bæði óeðlileg og svo fer hún víst illa með hárið. Nú les maður stundum, í blöð- um og tímaritum, um meðul sem eiga bæði að lækna skalla og kalla aftur fram hinn upphaf- lega, eðlilega háralit. Getur þú bent mér á nokkurt slíkt? Með kærri kveðju. L.S. Sjálfum finnst mér oft mjög að- laðandi að sjá konur á þínum aldri sem eru farnar að grána örlítið. Það gefur þeim oft ein- hverja reisn. En ef þetta er svona á sinninu á þér, finnst mér þú ættir ekki að hika við að lita á þér hárið — þetta gerir orðið önnur hver manneskja, og hin nýju hárlitunarefni fara ekki nærri eins illa með hárið (einkum hárskol) og áður var raunin. Það hefur ekki enn ver- ið fundið upp neitt allsherjar- meðal til að lækna skalla og endurlífga háralit, þótt mark- aðurinn sé yfirfullur af allskyns blöndum. Sumar þessar blöndur geta kannske orðið nokkrum einstaklingum að liði. en einhlít- ar eru þær aldrei. Þú skalt fara varlega í að kaupa þér slík með- ul. Skrímsli í umferðinni Póstur góður! Það sem mig langar til að kvarta yfir (eru ekki allir sí- kvartandi?) eru strætisvagnarn- ir, eða öllu heldur bílstjórar þeirra, í Reykjavík. Nú er kom- ið svo, að mér virðast vera vald- ir mestu ruddar fyrirfinnanleg- ir í þetta starf, sem óneitanlega þarfnast hins gagnstæða. Ef ég er einhvers staðar á bíl, og sé strætisvagn nálgast, er ég fljót- ur að leggja bílnum mínum þar til skrímslið er komið úr aug- sýn. Það er eins og þessir háu herrar haldi, að þeir geti leyft sér allt í umferðinni. Svo afsaka þeir sig með því að þeir verði að halda áætlun. Gott og vel, en eru ekki þessar strætisvagna- ferðir fyrst og fremst þjónusta við borgarana? Þið, strætis- vagnastjórar, ættuð að gera ykk- ur grein fyrir því. Valdi. Ætli strætisvagnastjórar séu ekki upp og ofan eins og geng- ur. sumir varkárir og örue-gir bílstjórar, en aðrir svolítið djarfir. Að minnsta kosti eru árekstrar og slys hjá strætis- vögnunum engan veginn óeðli- lega tíð. Strákurinn, sam ég ar meS, gaf mér minnsta kveikjara sam ég hef séð — svo Iftinn aS óg fae varla nógu litla steina ( hann. Annar strákur gaf mér kveikjara, sem hann keypti ( siglingu — honum er fleygt þegar hann er tómur. Ekki man ég, hvorn ég lét róa fyrr, kveikjarann eða strákinn. Ég er alltaf aS kaupa eldspýtur, en þœr misfarast með ýmsum hætti. En eld þarf ég aS hafa. Hver vill gefa mér RONSON? Mig Iangar svo í einhvern af þessum MtUdy gas kveikjari Comet gas kveikjarl Adonis gas kveikjari Empress gas kveikjari Til gefenda RONSON kveikjara: Áfyllingin tekur 5 sekúndur, og endist svo mánuðum skiítir. Og kveikjarinn. — Hann getur enzt að eilífu. RONSON Einkaumboð: I. Guðmundsson & Co. hf. 33. tbi. viKAN 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.